10/12/2025
Edda Björgvinsdóttir: Húmor er lífsins nauðsynlegur, líka á vinnustöðum - Fólk sem mengunarvaldar í vinnunni, ,,gleðibankinn“ okkar og freki kallinn… hvað finnst Eddu fyndið og hver eru hennar uppáhaldshlutverk?
🎧 Nýr þáttur af Forysta & samskipti er mættur í loftið og sá er svo sannarlega bæði skemmtilegur og innihaldsríkur!
✨ Að þessu sinni ræðir Sigurður Ragnarsson, forseti Viðskiptadeildar og stjórnenda- og forystuþjálfari, við einn allra ástsælasta gleðigjafa landsins: Eddu Björgvinsdóttur. Edda er ekki bara leikari, leikstjóri og skemmtikraftur – hún er einnig með meistaragráðu í menningarstjórnun og diplómu í jákvæðri sálfræði og sálgæslu. Hún veit því allt um samskipti, tilfinningar og húmor.
Í þættinum ræða þau m.a.:
▫️ Af hverju húmor skiptir sköpum á vinnustöðum
▫️ Hvernig húmor getur bætt samskipti, minnkað streitu og hjálpað okkur í krísu
▫️ „Mengunarvalda“ á vinnustöðum – eins og slúður og neikvæðni
▫️ Reglurnar sem Edda vill sjá á öllum vinnustöðum
▫️ „Gleðibankann“ og hvernig við getum safnað inn á hann daglega
▫️ Hvernig velja á rétta stjórnendur – og hvers vegna tilfinningagreind er lykillinn
▫️ „Freka kallinn“ (sem getur verið hvaða einstaklingur sem skortir tilfinningagreind – ekki bara karl!)
Að sjálfsögðu er líka farið yfir nokkrar af bestu perlum Eddu í gegnum tíðina: uppáhaldshlutverk, hvað henni finnst fyndið og hversu lík hún er Stellu í orlofi… og já, hún segir líka frá Felix og Klöru 😉
👇 Hlekkir á þáttinn (YouTube & Spotify) í athugasemdum!