31/08/2026
Forstöðumaður setursins var viðstaddur hátíðarfrumsýningu á heimildamyndinni "Um tímann og vatnið". Hann var einn af þremur vísindalegum ráðgjöfum við gerð myndarinnar og var svo beðinn um að stýra umræðum eftir frumsýninguna með leikstjóra hennar, Sara Dosa, og Andra Snæ Magnasyni, rithöfundi, en myndin byggir á samnefndri bók hans. Sjá nánar:
Heimildarmyndinn Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar, var frumsýnd með pompi og prakt í stóra sal Háskólabíós í gærkvöldi. Meðal gesta voru forseti Íslands, ráðherrar, Vigdís Finnbogadóttir og fjöldi nafntogaðra gesta.