Jarðræktarmiðstöð LbhÍ

Jarðræktarmiðstöð LbhÍ Daglegt amstur Jarðræktarrannsókna við Landbúnaðarháskóla Íslands

Nýlokið að sá tilraunum með vetrarhveiti sem er hluti af Kynbótaverkefninu Völu.  - sáð var 500 línum úr Norræna Genaban...
21/08/2026

Nýlokið að sá tilraunum með vetrarhveiti sem er hluti af Kynbótaverkefninu Völu.
- sáð var 500 línum úr Norræna Genabankanum ásamt öðrum völdum yrkjum annars staðar frá, í tveimur endurtekningum. Það eru 1000 reitir. Reitirnir eru 1 fermetri að stærð og hver tilraun 50x60 metrar (3000 fermetrar) Þessi efniviður (reyndar 1000 línur þá í heildina) var í úrvali og prófunum síðustu tvö ár í Gunnarsholti. Þessari tilraun var sáð út fjórum sinnum á mismunandi stöðum um landið, á Hvanneyri í Andakíl (11. ágúst), að Garði í Eyjafjarðarsveit (13. ágúst), Gunnarsholti á Rangárvöllum (14. ágúst) og Flatey á Mýrum við Hornafjörð (18. ágúst). Mikil þolinmæðis- og handavinna er að raða fræi í sáðbakkana og næstum svekkjandi fyrir tilraunafólk að vélarnar séu bara fjóra tíma að tæma þá í hverja tilraun.

- Á Hvanneyri var líka sáð úrvali frá USDA (Landbúnaðarráð Bandaríkja Norður-Ameríku) af 16 sérvöldum Vetrarhveitilínum sem eiga vera vetrarþolnar.
- Einnig eru lagðar út sáðdýptartilraun og sáðtímatilraun á Hvanneyri.

Samtals voru lagðir út 4.088 reitir, og margir kílómetrar að baki í akstri.

Tilraunir eins og þessar eru ekki aðeins háðar fjármagni, tækjabúnaði og því að það sé starfsfólk sem sinnir þeim. Heldur einnig samstarfi við bændur víða um land. Við erum ofboðslega þakklát fyrir hvað þeir taka okkur alltaf vel í þessum sáningarferðum og eru tilbúnir að láta okkur í té land, jarðvinnslu og oftar en ekki gott kaffi og annan kost að við tölum nú ekki um skemmtilegar samræður og pælingar.

29/07/2026
Byggyrkjatilraun í Klauf í Eyjafirði🌾Þann 11. maí 2026 var sáð í byggyrkjatilraun þar sem prófuð eru 12 yrki á markaði á...
13/07/2026

Byggyrkjatilraun í Klauf í Eyjafirði🌾

Þann 11. maí 2026 var sáð í byggyrkjatilraun þar sem prófuð eru 12 yrki á markaði ásamt 7 nýjum íslenskum kynbótalínum.

Við sáningu var borið á sem samsvarar 60 kg N/ha af 15-7-12 áburði.

Þann 11.júlí voru allir reitir metnir með tilliti til vaxtastigs.

Þar kom í ljós að finnsku yrkin Katri og Vertti voru komnar lengst í þroska en þau hafa ekki reynst jafn uppskerumikil og Smyrill í tilraunum.

Áhugavert er að sjá að nýju íslensku línurnar (merktar ISB) eru einnig fljótar í þroska. Það verður því spennandi að fylgjast með hver uppskeran verður í haust! 🌾🍀

Það er kominn tími til að segja aðeins frá Vetrarhveititilraunum. Við erum með nokkrar tilraunir í gangi í vetrarhveiti ...
09/06/2026

Það er kominn tími til að segja aðeins frá Vetrarhveititilraunum. Við erum með nokkrar tilraunir í gangi í vetrarhveiti sem sáð var 13. ágúst 2025
- Sáðdýptartilraun
- uppskerutilraun á tíu þekktum yrkjum
- Tvær áburðartilraunir á tveimur yrkjum með mismunandi skömmtum af köfnunarefni N og brennistein S
- Tilraun með efnivið úr genabanka NordGen og víðar að, þar sem við erum með 1200 reiti og veljum yrki til víxlana til að búa til nýjan efnivið sem hentar Íslenskum aðstæðum. Hér verður fjallað um þá tilraun.

Allar tilraunir voru metnar 22. apríl 2025 með tilliti til lifunar. Í 1200 reita tilraun voru aðeins 362 reitir af 1200 (30%) sem voru með 0-10% lifun og þar af 90 reitir (7,5%) sem voru með 0% lifun. Í fyrra í sambærilegri tilraun voru 784 reitir (65%) metnir dauðir með öllu í apríl. Reitir sem voru með 80-100% lifun voru 19 talsins (1,6%) núna í apríl 2026.
Aftur var farið að meta lifun 20. maí ásamt þrótti. Þá hafði heldur betur lifnað yfir öllu. 208 reitir (17%) voru með lifun 0-10% og 524 reitir (44%) voru með lifun 80-100% og þar af 41 reitur (3,4%) sem var með 100% lifun en þeir voru bara 6 reitir í fyrra í maí. Í fyrra í maí voru 35 reitir (3%) sem voru með lifun 80-100%.

Ætla eyða sem fæstum orðum í niðurstöður um þrótt annað en það að þær plöntur sem þó voru lifandi voru almennt þróttmiklar og hraustar að sjá.

Þetta er nánast sami erfðaefniviðurinn frá ári til árs svo munurinn skýrist fyrst og fremst af umhverfi og verður þá að telja að munur í veðurfari að vetri skýri muninn.

Morten Lillemo prófessor við NMBU í Ási Noregi kom við hjá okkur ásamt bræðrum sínum og föður. Þeir skoðuðu tilraunareit...
08/06/2026

Morten Lillemo prófessor við NMBU í Ási Noregi kom við hjá okkur ásamt bræðrum sínum og föður. Þeir skoðuðu tilraunareiti okkar í Gunnarsholti og Hvanneyri, sem og litu við í fjósinu á Hvanneyri. Sérlega fróðleg og skemmtileg heimsókn

Kornsáningar vorið 2026Sáningar á korntilraunum hófust þann 24. apríl í Gunnarsholti á Rangárvöllum, þar sem sáð var í 5...
22/05/2026

Kornsáningar vorið 2026

Sáningar á korntilraunum hófust þann 24. apríl í Gunnarsholti á Rangárvöllum, þar sem sáð var í 564 byggreiti og 380 hafrareiti - alls 944 reitir.

Þaðan var haldið á Hvanneyri í Andakíl, þar sem sáð var í 1480 byggreiti og 200 hafrareiti dagana 4.-13. maí.

Einnig var sáð í 400 byggreiti í Klauf í Eyjafirði þann 11. maí.

Heildarfjöldi reita í tilraunum ársins nemur því 3.024, þar af 2.444 byggreitum og 580 hafrareitum.

Fjöldi arfgerða í tilraunum 2026 er 357 hafrar og 805 bygg. Þar af eru 549 nýjar og spennandi byggkynbótalínur úr kynbótaverkefninu Völu.

Það verður spennandi að fylgjast með þróun þessara arfgerða í sumar 🌾

Hér má sjá nokkrar svipmyndir frá sáningunum

Address

Hvanneyrarbraut
Hvanneyri

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jarðræktarmiðstöð LbhÍ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Jarðræktarmiðstöð LbhÍ:

Shortcuts

Share