23/05/2026
Í gær var annar hátíðardagur í MK en þá fór fram seinni brautskráning skólans við hátíðlega athöfn í Digraneskirkju. Þá útskrifuðust alls 148 nemar, 90 stúdentar af fjórum brautum, 7 nemar af starfsbraut og 43 iðnnemar úr þremur deildum. Alls útskrifast 230 nemar frá MK á þessu vori með brautskráningu leiðsögunema, matsveina og iðnmeistara á fimmtudag 👩🎓
Björg Baldursdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs afhenti nýstúdent, Helgu Soffíu Sigurðardóttur, peningaverðlaun úr viðurkenningarsjóði MK fyrir hæstu einkunn á lokaprófi til stúdentsnáms. Björg afhenti einnig nýsveini, Árnýju Lind Berglindardóttur, peningaverðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn á lokaprófi í verknámi frá Hótel- og matvælaskólanum í MK.
Háskólinn í Reykjavík veitti nýstúdent, Níelsi Jóhanni Júlíussyni, bókaverðlaun og niðurfellingu skólagjalda fyrstu önnina í HR fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi.
Háskóli Íslands veitti nýstúdent, Ingu Fanneyju Hauksdóttur, peningaverðlaun og frí skólasgjöld í HÍ fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi sem byggir á breiðum þekkingargrunni.
Þá hlaut nýstúdent, Diljá Dís Sigtryggsdóttir, sérstaka viðurkenningu fyrir einstakan dugnað og mikla þrautsegju í námi en hún lauk námi á þremur árum þrátt fyrir verulegar áskoranir og krefjandi aðstæður.
Þá hafa Rótarýklúbbarnir þrír í Kópavogi stutt veglega við bakið á skólanum með því að veita peningaverðlaun til nemenda sem skara fram úr í námi.
Snorri Tómasson frá Rótarýklúbbnum Þinghól veitti nýstúdent, Nadja Djurovic, viðurkenningu fyrir góðan árangur í félagsgreinum.
Páll Árni Jónsson frá Rótarýklúbbi Kópavogs veitti nýstúdent, Helgu Soffíu Sigurðardóttur, viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í raungreinum.
Erna Hauksdóttir frá Rótarýklúbbnum Borgum veitti nýsveini í bakstri, Önnu Kolbrúnu Stefánsdóttur, viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í verknámi.
Nýstúdent, Styrmir Hugi Sigurðsson, flutti ávarp nýstúdents og Jean Louis Aimé Alexandrenne, nýsveinn í bakstri flutti ávarp fyrir hönd iðnnema.
Óðinn Jarl Van Den Heerik Jónsson, hörpuleikari, flutti tónlistaratriði. Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir, formaður skólanefndar, flutti skólanum kveðju skólanefndar og Hafsteinn Karlson flutti ávarp frá 50 ára stúdentum.
Starfsfólk Menntaskólans í Kópavogi óskar útskrifuðum nemendum skólans og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju með daginn. Megi gæfan fylgja ykkur í lífi og starfi 💐
Ljósmyndari 📸: Rúnar Hreinsson