Carbfix

Carbfix Carbfix captures CO2 and turns it into stone underground in less than two years.

Our mission is to significantly contribute to climate recovery through the worldwide scaling of underground CO₂ mineral storage.

Íslensk þekking og nýsköpun sýna hvað verður mögulegt þegar jarðhiti, öflugir innviðir og loftslagstækni vinna saman.Í n...
28/08/2026

Íslensk þekking og nýsköpun sýna hvað verður mögulegt þegar jarðhiti, öflugir innviðir og loftslagstækni vinna saman.

Í nýlegri umfjöllun austurríska ríkismiðilsins ORF er fjallað um hvernig reynsla Íslands af nýtingu jarðhita getur nýst við uppbyggingu jarðhitaverkefna í Austurríki. Þar er meðal annars sjónum beint að þeirri nýsköpun sem hefur átt sér stað á Hellisheiði.

Hellisheiðarvirkjun Orka náttúrunnar er gott dæmi um hvernig rótgrónir orkuinnviðir og loftslagslausnir geta farið saman. Þar bindur Carbfix CO₂ með því að leysa það upp í vatni og dæla því niður í hvarfgjarnt basaltberg, þar sem náttúruleg ferli umbreyta því varanlega í stein.

Árangurinn byggir á áralangri rannsóknarvinnu, samstarfi og uppbyggingu þekkingar. Hann sýnir hvernig íslenskt hugvit og reynsla geta lagt sitt af mörkum til loftslagsaðgerða, ekki aðeins hér heima heldur einnig langt út fyrir landsteinana.
Það er sannarlega ástæða til að vera stolt.

Ólafur Elínarson, samskiptastjóri Carbfix, ræddi við ORF um Carbfix-aðferðina og hlutverk steindabindingar í loftslagslausnum framtíðarinnar.

Við þökkum ORF og tökuteyminu kærlega fyrir heimsóknina á Hellisheiði og fyrir að segja þessa íslensku sögu áhorfendum í Austurríki.

Horfðu á umfjöllun ORF hér:

Mit Wasserkraft und Geothermie schaffte Island bereits vor Jahrzehnten die Energiewende. Auch in Österreich könnte Geothermie durch eine Gesetzesänderung bald möglich sein. Darüber hinaus ist die Insel bei neuen Technologien wie CO2-Speicherung vielen Ländern voraus. Grund für uns, sich den K...

Carbfix tekur þátt í sýningunni In Other Worlds, nýju metnaðarfullu verkefni BAFTA-tilnefnda listamannsins og kvikmyndag...
24/08/2026

Carbfix tekur þátt í sýningunni In Other Worlds, nýju metnaðarfullu verkefni BAFTA-tilnefnda listamannsins og kvikmyndagerðarmannsins Liam Young í Barbican Centre í London.

Sýningin sameinar vísindi, tækni, listir og sagnalist og veltir upp spurningum um hvernig framtíð okkar gæti litið út í heimi sem stendur frammi fyrir stórum loftslagsáskorunum.

Með myndverkum, upplifunarrýmum og framtíðarsenum er gestum boðið að skoða hugmyndir um loftslagslausnir, nýja innviði og þá tækni sem gæti hjálpað okkur að draga úr losun og byggja sjálfbærara samfélag. Þar er meðal annars fjallað um kolefnisförgun og varanlega bindingu CO₂.

Við þökkum Liam Young, teyminu hjá Barbican Immersive og öðrum samstarfsaðilum fyrir gott samstarf.

Ef þú átt leið um London mælum við með heimsókn á In Other Worlds í Barbican Centre. https://www.barbican.org.uk/whats-on/2026/event/in-other-worlds

Framhaldsskólakennarar víðs vegar að af landinu heimsóttu Carbfix á Hellisheiði í gær til að kynna sér loftslagslausnir,...
20/08/2026

Framhaldsskólakennarar víðs vegar að af landinu heimsóttu Carbfix á Hellisheiði í gær til að kynna sér loftslagslausnir, jarðfræði, kolefnisbindingu og sjálfbæra orkunýtingu.

Markmið dagsins var að miðla þekkingu, skapa vettvang fyrir samtal og veita kennurum innblástur og efni sem þeir geta nýtt í kennslu um loftslagsmál og framtíðarlausnir. Líflegar umræður sköpuðust um vísindi, nýsköpun og loftslagsáskoranir samtímans.

Við þökkum kennurunum kærlega fyrir komuna, áhugann og góðar umræður. Samstarf milli vísinda og menntunar skiptir miklu máli til að efla skilning og styðja við upplýsta umræðu um loftslagsmál og þær lausnir sem geta hjálpað okkur að takast á við áskoranir framtíðarinnar.

Vegna þeirra jákvæðu viðbragða sem ferðin fékk hyggst Carbfix halda áfram að bjóða upp á sambærilega fræðslu- og kynningarviðburði á komandi misserum.

Fræðsluferðin var haldin í samstarfi við Geothermal Exhibition / Jarðhitasýningin, Orka náttúrunnar og Orkuveitan.

Samstaða sést líka í verki.Í tilefni Hinsegin dagar - Reykjavik Pride komu samstarfsfélagar okkar saman við regnbogatröp...
07/08/2026

Samstaða sést líka í verki.
Í tilefni Hinsegin dagar - Reykjavik Pride komu samstarfsfélagar okkar saman við regnbogatröppurnar hjá Orkuveitan til að sýna stuðning við hinsegin samfélagið.

Fjölbreytileiki og inngilding verða ekki til af sjálfu sér. Þau byggjast á því hvernig við mætum hvert öðru, rýminu sem við sköpum fyrir ólíka reynslu og því að öll geti verið þau sjálf.

Við erum stolt af því að standa saman fyrir virðingu, jafnrétti og samfélagi þar sem öll eiga heima.

Gleðilega Hinsegin daga frá okkur hjá Carbfix. 🏳️‍🌈
Ljósmyndari: Einar Örn Jónsson

Það er ánægjulegt að sjá íslenska þekkingu, jarðfræði og samstarf á Hellisheiði í alþjóðlegri umfjöllun um loftslagslaus...
06/08/2026

Það er ánægjulegt að sjá íslenska þekkingu, jarðfræði og samstarf á Hellisheiði í alþjóðlegri umfjöllun um loftslagslausnir í framkvæmd.

Carbfix kemur við sögu í lokaþætti DecarboNations þáttaraðar ENERGY OBSERVER, þar sem fjallað er um kolefnisföngun og varanlega bindingu CO₂.

Í þættinum heimsækir teymi Energy Observer meðal annars Climeworks á Hellisheiði og fylgir ferðalagi fangaðs CO₂ inn í Carbfix-ferlið. Þar er CO₂ leyst upp í vatni og dælt djúpt niður í basaltberg og verður að steini.

Við þökkum Energy Observer fyrir áhugaverða umfjöllun og fyrir að varpa ljósi á hvernig ólík verkefni og samstarfsaðilar vinna saman að loftslagslausnum.

Hægt er að horfa á þáttinn og fylgja leiðangrinum á energy-observer.org: https://lnkd.in/eAN74bDQ

Season finale. After a year hunting for carbon capture solutions, t...

Varúð: löng færsla framundan.Það hefur líka verið mikið að gera hjá Carbfix á fyrri hluta ársins 2026. Allt okkar starf ...
29/06/2026

Varúð: löng færsla framundan.

Það hefur líka verið mikið að gera hjá Carbfix á fyrri hluta ársins 2026. Allt okkar starf og markmið er að vinna gegn loftslagsbreytingum með því að þróa og byggja upp örugga, mælanlega og varanlega aðferð til að binda CO₂ í bergi, hér á Íslandi og víðar.

Á síðustu mánuðum hefur vinnan spannað vísindi, stefnumótun, nýja samstarfsfélaga, margvíslega fræðslu og samtal, alþjóðlegar heimsóknir og viðburðir.

Nýjar vísindagreinar sem birst hafa á árinu hafa styrkt áfram vísindalegan grunn aðferðarinnar. Þar má meðal annars nefna rannsóknir á náttúrulegum efnafræðilegum „fingraförum“ sem geta hjálpað til við að sannreyna varanlega CO₂-steinrenningu, rannsóknir á nýjum svæðum fyrir kolefnisbindingu og aukna þekkingu á strandlægum jarðlögum, sjó, grunnvatnskerfum og basaltmyndunum.

Við náðum einnig mikilvægum áfanga í Sæbergsverkefninu þegar markmiði um niðurdælingu 500 tonna var náð. Sæberg er fyrsta verkefni sinnar tegundar þar sem sjór er nýttur með Carbfix-aðferðinni, og niðurstöðurnar skipta miklu máli fyrir áframhaldandi þróun tækninnar og möguleika hennar við ólíkar aðstæður.

Á Íslandi hefur kolefnisbinding frá iðnaði jafnframt fengið aukið vægi. Carbfix og Elkem Iceland fengu rúmlega 200 milljóna króna styrk úr Orku- og loftslagssjóði til að þróa lausnir sem miða að því að draga úr losun frá stóriðju.

Kolefnisstjórnun hefur einnig fengið skýrari stöðu í stefnumótun hér á landi. Föngun og binding CO₂ frá stóriðju hefur verið endurspegluð í loftslags- og atvinnustefnu stjórnvalda, meðal annars í tengslum við vaxtaráætlun. Þá hafa áform um fyrstu stefnu Íslands um kolefnisstjórnun verið kynnt, samhliða opinberum stuðningi við rannsóknarboranir á Grundartanga.

Alþjóðlegur áhugi hefur haldið áfram að vaxa. Á fyrri hluta ársins höfum við tekið á móti fjölda gesta og sendinefnda, meðal annars frá Japan, Harvard Business School, Saxlandi í Þýskalandi, Austurríki, NVIDIA og nú síðast forystufólki Renew Europe á Hellisheiði. Alþjóðlegir miðlar og stofnanir á borð við BBC, TRT World og World Intellectual Property Organization hafa einnig fjallað um Carbfix.

Við höldum áfram að byggja upp samstarf víða um heim, meðal annars með Elkem, CaptureMap by Endrava, ERMA FIRST, CleanTech Alliance og WECAN, þar sem Carbfix tekur þátt í samtali um hvernig hreinar tæknilausnir geta skalað á ábyrgan hátt.

Á sama tíma höfum við tekið virkan þátt í viðburðum og samtali við samfélagið. Á Iceland Innovation Week og HönnunarMars // DesignMarch deildum við sögunni af Carbfix, vísindunum á bak við aðferðina og hlutverki íslenskrar nýsköpunar í loftslagsmálum. Þá héldum við Jarðarhlaup í tilefni af Degi jarðar, þar sem um 200 manns komu saman til að hlaupa, hreyfa sig og minna á mikilvægi loftslagsaðgerða.

Aukinn áhugi sést líka vel í fjölda heimsókna. Á fyrstu s*x mánuðum ársins hafa verið bókaðar 80 Carbfix-ferðir hjá Geothermal Exhibition / Jarðhitasýningin ON, þar sem rúmlega 2.000 gestir hafa fengið tækifæri til að kynnast vísindunum, tækninni og jarðfræðinni á bak við íslenska loftslagslausn í framkvæmd.

Allt vinnur þetta saman, Carbfix hefur mikil tækifæri til þess að vera hluti af þeim fjölmörgum lausnum sem við þurfum á að halda vegna loftslagsbreytinga.

Við þökkum samstarfsaðilum, gestum, vísindafólki og Carbfix teyminu fyrir að hjálpa okkur að færa þessa vinnu áfram.

Seinni hluti ársins er þegar farinn að líta út fyrir að verða annasamur, og við hlökkum til að halda áfram að vinna að markmiði okkar: að þróa raunhæfar og varanlegar lausnir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. 💚

„Það er bæði óraunverulegt og eins og hringurinn hafi lokast að fá að starfa með Carbfix. Þegar ég ákvað að snúa aftur t...
26/06/2026

„Það er bæði óraunverulegt og eins og hringurinn hafi lokast að fá að starfa með Carbfix. Þegar ég ákvað að snúa aftur til Íslands í framhaldsnám var það sannarlega draumur að fá að vinna með Carbfix. Að mörgu leyti var starfsemin og sú nýsköpun sem á sér stað hjá Carbfix meðal ástæðna þess að ég flutti aftur til Íslands.“

Í sumar gengur Lucian til liðs við Carbfix og heldur áfram vinnu við Sæbergsverkefnið í samstarfi við Ljósleiðarinn.
Lucian útskrifaðist nýlega með MSc-gráðu í sjálfbærum orkuvísindum frá Háskólinn í Reykjavík. Í meistaraverkefni sínu rannsakaði hann hvernig nýta mætti ljósleiðara við vöktun við niðurdælingu koldíoxíðs í Helguvík. Markmiðið er að styðja við þróun hagnýtra vöktunaraðferða fyrir framtíðarverkefni Carbfix.

Samstarfið við Ljósleiðarinn gegnir þar mikilvægu hlutverki. Við uppsetninguljósleiðara bæði á rannsóknarstofu og í niðurdælingarholum nýtist sérþekking Ljósleiðarans vel, bæði við tæknilega uppsetningu kerfisins og miðlun þekkingar á rekstri ljósleiðarainnviða.

Verkefnið sýnir jafnframt þann styrk sem felst í samstarfi innan (Orkuveitan) Orkuveitusamstæðunnar, þar sem þekking á innviðum, jarðfræði og loftslagstækni kemur saman í raunverulegum nýsköpunarverkefnum.

Fyrir Lucian bennet hefur það verið einstaklega lærdómsríkt að vinna náið með Carbfix síðastliðið eitt og hálft ár, læra af teyminu og starfa með öflugum leiðbeinendum og samstarfsfólki. Sú reynsla hefur verið meðal þess dýrmætasta sem hann hefur öðlast á námsferlinum og á meðan hann hefur verið á Íslandi.

Utan vinnu nýtur Lucian þess að vera sem mest úti við. Ísland hefur reynst fullkominn staður fyrir áhugamálin, svo sem fjallaskíðun, göngur, bakpokaferðir eða norðurljósaskoðun.
Velkominn í hópinn, Lucian! 💚

Í vikunni tókum við á móti forystufólki Renew Europe til að ræða hvernig varanleg CO₂-binding getur stutt við loftslagsa...
25/06/2026

Í vikunni tókum við á móti forystufólki Renew Europe til að ræða hvernig varanleg CO₂-binding getur stutt við loftslagsaðgerðir í Evrópu.

Í heimsókninni var meðal annars fjallað um Silverstone, evrópskt nýsköpunarverkefni sem vinnur að föngun, niðurdælingu og steinrenningu CO₂ við Hellisheiðarvirkjun ON Power.

Gestirnir heimsóttu einnig eina af niðurdælingarholum Carbfix, þar sem sjá má hvar fangað CO₂ er leyst upp í vatni og fer djúpt niður í basaltberg, þar sem það breytist að lokum í stein.

Við þökkum Renew Europe fyrir komuna, góðar umræður og áhugann á íslenskri loftslagslausn í framkvæmd.

Myndir: Ven Eta

Þegar litið er til upphafs Carbfix stendur eitt nafn sérstaklega upp úr: Wallace “Wally” Smith Broecker.Wally var einn a...
24/06/2026

Þegar litið er til upphafs Carbfix stendur eitt nafn sérstaklega upp úr: Wallace “Wally” Smith Broecker.

Wally var einn af risunum í jarðefnafræði og meðal fyrstu vísindamanna til að vara skýrt við áhrifum loftslagsbreytinga. Árið 1975 átti hann þátt í að koma hugtakinu “global warming” inn í vísindalega umræðu með greininni Climatic Change: Are We on the Brink of a Pronounced Global Warming?

En arfleifð hans felst ekki aðeins í því að hjálpa heiminum að skilja loftslagsvandann. Áratugum síðar átti vísindaleg forvitni hans einnig þátt í að móta það sem síðar varð Carbfix-verkefnið.

Eftir heimsókn til Íslands árið 2006, þar sem hann hélt fyrirlestur um loftslagsbreytingar og steinrenningu CO₂ í basalti, varð Wally einn af lykilvísindamönnunum á bak við Carbfix. Verkefnið var stofnað árið 2007 í samstarfi vísindafólks frá Háskóla Íslands, CNRS í Toulouse, Columbia University og Orkuveitan.

Hann sat í vísindalegri stýrinefnd verkefnisins á hönnunar- og tilraunastigi og tók þannig þátt í að leiða fyrstu skrefin sem síðar sýndu fram á að hægt væri að steinrenna fangað CO₂ hratt í basaltbergi.

Afstaða hans til ábyrgðar okkar var skýr: „Við höfum tekið að okkur umsjón með jörðinni og með því fylgir sú ábyrgð að hlúa að henni.“ Við erum þakklát fyrir sýn Wallys, vísindalegt hugrekki og varanlegt framlag hans til Carbfix.

Arfleifð hans lifir áfram í þeirri hugmynd að vísindin geti ekki aðeins hjálpað okkur að skilja loftslagsbreytingar, heldur einnig að þróa raunhæfar leiðir til að bregðast við þeim.

Nánari upplýsingar um arfleið hans má finna hér: https://lamont.columbia.edu/news/wallace-broecker-prophet-climate-change?utm_source=chatgpt.com

We Turn CO₂ Into Stone

Address

Bæjarháls 1
Reykjavík
110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Carbfix posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share