19/06/2026
Félagsráðgjafafélag Íslands býður árlega nemum sem útskrifast úr MA námi til starfsréttinda í útskriftarhóf þar sem verðandi félagsráðgjöfum er boðið að skrifa undir heit félagsráðgjafa, hér má sjá hópmynd af kandidötum með deildarforseta og formannni FÍ, Steinunni Bergmann.
Verðandi félagsráðgjafar, útskriftarnemendur félagsráðgjafadeildar HÍ,mættu glaðbeittir í boð Félagsráðgjafafélagsins í Borgartún 27, fyrr í dag ásamt kennurum deildarinnar. Þessi árgangur er sá allra stærsti hingað til, vel á sjötta tuginn. Félagið óskar þeim öllum hjartanlega til hamingju með útskriftina og að bætast í hóp nærri 700 félagsráðgjafa, félaga í félagsráðgjafafélaginu.