15/02/2024
Einhver hér sem hefur hug á meistaranámi sem tengist kortagerð? Við í Háskóla Íslands leitum að svoleiðis fólki, fyrir verkefni sem snýr að því að þróa framsetningu lýðfræðigagna og annarra staðtengdra hagtalna fyrir Ísland á vefsjárformi. Viðkomandi þarf að hafa lokið grunnnámi í landfræði eða tengdu fagi og auk þess að hafa góða þekkingu á kortagerð og áhuga á myndrænni framsetningu landfræðilegra gagna. Meistaraverkefnið verður styrkt að hluta. Hafa má samband við [email protected] til að fá nánari upplýsingar.