04/06/2026
Aðalfundur Félags háskólakvenna var haldinn 21. maí 2026.
Á liðnu starfsári stóð félagið fyrir fjölbreyttum fræðslu-, menningar- og tengslaviðburðum sem nutu góðrar þátttöku félagskvenna.
Á fundinum var núverandi stjórn endurkjörin fyrir starfsárið 2026–2027:
Formaður: Guðmunda Smáradóttir
Varaformaður: Vala Georgsdóttir
Gjaldkeri: Vilborg Einarsdóttir
Ritari: Ásgerður Halldórsdóttir
Meðstjórnandi: Guðrún Gunnarsdóttir
Varastjórn:
Jónína Ingvadóttir og Linda Vilhjálmsdóttir
Við þökkum félagskonum fyrir stuðning og þátttöku á liðnu starfsári og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á komandi starfsári.