Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands er rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun.

Það var fullt út úr dyrum á opnum fundi Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki í hádeginu í dag þegar staða ...
28/08/2026

Það var fullt út úr dyrum á opnum fundi Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki í hádeginu í dag þegar staða smáríkja í breyttu öryggisumhverfi Evrópu var til umræðu. Þar var jafnframt verið að kynna bókina Security, Defence, and the Future of Europe: Views from the Capitals.

Í pallborðsumræðum voru Paul Schmidt, forstöðumaður Austrian Society for European Politics og ritstjóri bókarinnar, Baldur Thorhallsson, prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og einn af kaflahöfundum, Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og Hugo Brady, sérfræðingur í stefnumótun við International Centre for Migration Policy Development (ICMPD).

Afar líflegar umræður sköpuðust um breytt öryggisumhverfi Evrópu, stöðu Íslands og annarra smáríkja sem hafa reitt sig á bandalög og skjól stórvelda. Þjóðaratkvæðagreiðslan um framhald aðildarviðræðna Íslands að Evrópusambandinu bar vitanlega á góma þar sem erlendu sérfræðingarnir gáfu meðal annars innsýn í þeirra viðhorf til stöðunnar.

Takk öll kærlega fyrir komuna.

Hvernig bregðast smáríki við breyttu öryggisumhverfi Evrópu? 🛡️🎙️ Baldur Þórhallsson, prófessor, og Vilborg Ása Guðjónsd...
27/08/2026

Hvernig bregðast smáríki við breyttu öryggisumhverfi Evrópu? 🛡️

🎙️ Baldur Þórhallsson, prófessor, og Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, ræddu málið í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Hlustaðu á þáttinn hér fyrir neðan 👇

📍 Í hádeginu á morgun verður opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands í Þjóðminjasafninu þar sem fjallað verður nánar um sama málefni undir fyrirsögninni:

Nýjar ógnir, nýjar áherslur: Smáríki og breytt öryggisumhverfi Evrópu

Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og Baldur Þórhallsson prófessor ræddu í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 um breytt öryggisumhverfi Evrópu frá sjónarhóli smáríkja. Á föstudag verður fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs u...

Takið daginn frá! Miðvikudaginn þann 7. október verður árlegur forviðburður Háskóla Íslands og UArctic fyrir Arctic Circ...
26/08/2026

Takið daginn frá! Miðvikudaginn þann 7. október verður árlegur forviðburður Háskóla Íslands og UArctic fyrir Arctic Circle ráðstefnuna haldinn frá 13:00-17:00 í hátíðarsal Háskóla Íslands.

Hvernig getur Ísland tryggt öryggi sitt án eigin hers? Hvaða áhrif hefur breytt öryggisumhverfi á norðurslóðum á stöðu Í...
18/08/2026

Hvernig getur Ísland tryggt öryggi sitt án eigin hers? Hvaða áhrif hefur breytt öryggisumhverfi á norðurslóðum á stöðu Íslands?

Í nýlegri umfjöllun DW News fjallar Pia Elizabeth Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar um öryggis- og varnarmál Íslands og hvernig breytt alþjóðlegt öryggisumhverfi hefur áhrif á stöðu landsins.

🎥 Hlekkur á umfjöllun DW News í fyrstu athugasemd👇

Beint streymi - Samskipti Íslands og Spánar Utanríkisráðherrar Íslands og Spánar ræða samskipti ríkjanna, mannréttindi, ...
23/06/2026

Beint streymi - Samskipti Íslands og Spánar
Utanríkisráðherrar Íslands og Spánar ræða samskipti ríkjanna, mannréttindi, jafnréttismál og Evrópumál.
//
Live stream - Iceland-Spain Relations
The Foreign Ministers of Iceland and Spain discuss relations between the two countries, human rights, gender equality issues, and European Affairs

Address

Institute Of International Affairs
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share