02/06/2025
Háskóli Íslands býður nú upp á örnám í fötlunarfræði – sveigjanlegt fjarnám sem hentar vel með vinnu. Námið er ætlað þeim sem lokið hafa BA-prófi eða sambærilegu háskólaprófi og vilja:
✅ Auka þekkingu sína á fjölbreyttum þáttum fötlunar
✅ Taka þátt í samfélagslegri umræðu og breytingum
✅ Byggja grunn að frekara námi – hægt er að fá námið metið upp í MA-nám að uppfylltum skilyrðum
📅 Umsóknarfrestur rennur út 5. júní!
📌 Skráðu þig hér: https://hi.is/framhaldsnam/fotlunarfraedi_ornam
Upplýsingar veita:
Hanna Björg Sigurjónsdóttir formaður námsbrautar í fötlunarfræðum [email protected]
Gerður Guðrún Árnadóttir verkefnastjóri [email protected]
Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun