31/08/2026
📸 Rifjum upp einn skemmtilegasta dag sumarsins!
Þann 16. ágúst fögnuðum við 20 ára afmæli Iðunnar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og það er óhætt að segja að dagurinn hafi farið langt fram úr væntingum. Við fengum fullkomið sumarveður og fjöldi fólks mætti í garðinn til að fagna með okkur.
Boðið var upp á pylsur, ís og drykki, andlitsmálningu og ýmislegt skemmtilegt beið gesta í Iðutjaldinu. Á sviðinu var líf og fjör þar sem Leikhópurinn Lotta, Jón Jónsson, KK, Ragga Gísla og VÆB skemmtu gestum yfir daginn.
Við erum ótrúlega ánægð með daginn og þakklát öllum sem komu og fögnuðu þessum tímamótum með okkur 💙
Svona á að halda upp á afmæli! 🎉