Hugvísindasvið Háskóla Íslands

Hugvísindasvið Háskóla Íslands Háskóli Íslands býður upp á afar fjölbreytt nám í hugvísindum og er eini skólinn hérlendis sem býður upp á hugvísindanám á öllum háskólastigum.

Vilhjálmur Árnason, prófessor emeritus í heimspeki við Háskóla Íslands, mætti á Morgunvakt Rásar 1 og ræddi um lýðræðisl...
19/06/2026

Vilhjálmur Árnason, prófessor emeritus í heimspeki við Háskóla Íslands, mætti á Morgunvakt Rásar 1 og ræddi um lýðræðislegar skyldur þingmanna og stjórnvalda (hefst á 00:50:05).

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Dagana 22. og 23. júní fer fram opin alþjóðleg ráðstefna við Háskóla Íslands sem nefnist Whales and Humans: Past Entangl...
18/06/2026

Dagana 22. og 23. júní fer fram opin alþjóðleg ráðstefna við Háskóla Íslands sem nefnist Whales and Humans: Past Entanglements and Current Relations. Ráðstefnan fjallar um margslungin tengsl manna og hvala í gegnum tíðina. Lykilfyrirlestur ráðstefnunnar verður haldinn í Veröld 22. júní kl. 16:30-17:30. Það eru þær Vicki Szabo og Lísabet Guðmundsdóttir sem flytja fyrirlesturinn sem nefnist „A Transdisciplinary Study of Whale Use in Iceland from Landnám through Late Middle Ages: The Case of Hafnir.” Verið öll velkomin.

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands og Nýp menningarsetur, með stuðningi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, efna til máls...
16/06/2026

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands og Nýp menningarsetur, með stuðningi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, efna til málstofu sem nefnist Að skoða framandi heima, íslenskir ferðalangar í fjarlægum löndum frá 18. öld til öndverðrar 20. aldar: Árni Magnússon frá Geitastekk, Jón Vídalín og Steingrímur Matthíasson. Haldið að Nýp á Skarðsströnd, laugardaginn 20. júní kl. 13:30-15:30. Verið öll velkomin.

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Moira Millán, rithöfundur og aðgerðasinni fyrir hönd frumbyggja og náttúru, er aðalfyrirlesari á ráðstefnu norræna samst...
16/06/2026

Moira Millán, rithöfundur og aðgerðasinni fyrir hönd frumbyggja og náttúru, er aðalfyrirlesari á ráðstefnu norræna samstarfsnetsins REDES sem haldin verður við Háskóla Íslands 18. til 20. júní. Hún flytur opinn fyrirlestur sem hún nefnir „Terricidio y la defensa de los pueblos telúricos“ í Veröld – húsi Vigdísar, fimmtudaginn 18. júní kl. 9:30-10:30. Verið öll velkomin.

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Brautskráning Háskóla Íslands fór fram í Laugardalshöll á laugardag en þá voru brautskráðir ríflega 2.600 nemendur úr gr...
15/06/2026

Brautskráning Háskóla Íslands fór fram í Laugardalshöll á laugardag en þá voru brautskráðir ríflega 2.600 nemendur úr grunn- og framhaldsnámi, þar af 410 af Hugvísindasviði. Meðfylgjandi eru myndir sem Kristinn Ingvarsson, ljósmyndari HÍ tók við athöfnina.

Út er komin venesúelska skáldsagan Mamma Mjöll og minningar hennar eftir Teresu de la Parra í þýðingu Kristínar Guðrúnar...
15/06/2026

Út er komin venesúelska skáldsagan Mamma Mjöll og minningar hennar eftir Teresu de la Parra í þýðingu Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur, prófessors í spænsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Bókin kom út árið 1929 og byggir á æskuminningum venesúelska rithöfundarins. Þetta er fyrsta skáldsagan frá Venesúela sem kemur út á Íslensku en Teresa de la Parra er meðal fremstu höfunda Venesúela. Sjá nánar á hi.is/frettir/fyrsta_venesuelska_skaldsagan_i_islenskri_thydingu

Nathaniel Sharadin, lektor í heimspeki við Háskólann í Hong Kong, heldur opinn fyrirlestur á vegum Heimspekistofnunar HÍ...
15/06/2026

Nathaniel Sharadin, lektor í heimspeki við Háskólann í Hong Kong, heldur opinn fyrirlestur á vegum Heimspekistofnunar HÍ þann 18. júní kl. 15-16:30 í stofu 301 í Gimli. Fyrirlesturinn nefnist „The Slavish Labor of Self-Governance: Cognitive Enfeeblement and Political Legitimacy“ og verður á ensku. Verið öll velkomin.

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Þau Guðni Th. Jóhannesson og Rósa Magnúsdóttir, prófessorar við Háskóla Íslands, tóku þátt í ráðstefnu Háskólans í Vilní...
12/06/2026

Þau Guðni Th. Jóhannesson og Rósa Magnúsdóttir, prófessorar við Háskóla Íslands, tóku þátt í ráðstefnu Háskólans í Vilníus um tengsl Íslands og Litáen í gegnum aldirnar, menningu, persónur og hugmyndir. Ráðstefnan var haldin 5. og 6. júní í tilefni þess að nú eru 35 ár liðin frá því Ísland viðurkenndi fyrst ríkja sjálfstæði Litáens og hún var tileinkuð minningu Jörundar G. Hilmarssonar, dósents í almennum málvísindum við Háskóla Íslands og heiðurskonsúls Litáens á Íslandi.

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Fyrir rúmlega þrjú hundruð árum fórst flutningaskipið Höfðaskip í ofsaveðri úti fyrir Langanesi á norðausturhorni landsi...
11/06/2026

Fyrir rúmlega þrjú hundruð árum fórst flutningaskipið Höfðaskip í ofsaveðri úti fyrir Langanesi á norðausturhorni landsins en í rituðum heimildum kemur fram að aldrei hafi dýrmætari farmur sokkið við Íslandsstrendur. Í sumar hefst leit að Höfðaskipi úti fyrir Langanesi og fer Steinunn Kristjánsdóttir, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands, fyrir verkefninu í samstarfi við Ragnar Edvardsson, rannsóknadósent við Rannsóknasetur HÍ á Vestfjörðum.

Fyrir rúmlega þrjú hundruð árum fórst flutningaskipið Höfðaskip í ofsaveðri úti fyrir Langanesi á norðausturhorni landsins en í rituðum heimildum kemur fram að aldrei hafi dýrmætari farmur sokkið við Íslandsstrendur.

Steven Bird, rannsóknarprófessor við Charles Darwin háskóla í Ástralíu, flytur fyrirlesturinn Towards a General Theory o...
10/06/2026

Steven Bird, rannsóknarprófessor við Charles Darwin háskóla í Ástralíu, flytur fyrirlesturinn Towards a General Theory of Linguistic Diversity í fyrirlestrasal Eddu, föstudaginn 12. júní klukkan 11:00-12:00. Viðburðurinn fer fram á vegum Máltækniseturs og opinn öllum.

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Address

Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Friday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00

Telephone

+3545254000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hugvísindasvið Háskóla Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share