30/08/2026
Efast formenn stjórnarandstöðuflokkanna nú um að umsókn hafi verið dregin til baka þegar þeir voru í ríkisstjórn? Hafa þeir ekki staðhæft í meira en áratug að þeir hafi dregið umsóknina til baka? Hvers vegna gera þeir svona lítið úr þáverandi utanríkisráðherra sem skrifaði bréfið til Brüssel.
Viðbót:
Hugur minn er enn hjá þáverandi utanríkisráðherra (Gunnari Braga) sem sór og sárt við lagði að hann hefði dregið umsóknina til baka. Ætla Miðflokkur og Framsóknarflokkur að gera þennan góða félaga beggja flokkanna að ómerkingi eins og gjörðir hans hafi verið eitthvað kák út í loftið sem engu máli skipti? Hvers vegna gera þeir sér leik að þvílíkri niðurlægingu?