Háskólalestin

Háskólalestin Í Háskólalestinni eru valin námskeið úr Háskóla unga fólksins fyrir grunnskólanemendur.
(1)

Í Háskólalestinni eru valin námskeið úr Háskóla unga fólksins fyrir grunnskólanemendur og jafnvel leikskólabörn og framhaldskólanemendur. Að auki er slegið upp litríkum vísindaveislum fyrir alla heimamenn með stjörnuveri, sýnitilraunum, eldorgeli, mælingum og pælingum, að ógleymdu Sprengjugenginu landsfræga.

Fjölmennt og fróðlegt Opið vísindahús á Egilsstöðum. Takk fyrir frábæra samveru! Í meðfylgjandi frétt má lesa meira og s...
04/05/2026

Fjölmennt og fróðlegt Opið vísindahús á Egilsstöðum. Takk fyrir frábæra samveru! Í meðfylgjandi frétt má lesa meira og skoða myndir frá ferð Háskólalestarinnar til Egilsstaða.

Opið vísindahús Háskólalestar Háskóla Íslands sem haldið var í Egilsstaðaskóla miðvikudaginn 30. apríl tókst með eindæmum vel. Fjöldi fólks á öllum aldri lagði leið sína í skólann þar sem boðið var upp á lifandi, fjölbreytta og skemmtilega miðlun á vísindum, tækni ...

Opið vísindahús fyrir alla fjölskylduna er hafið og stendur til kl. 18 í Egilsstaðaskóla. Öll hjartanlega velkomin! Engi...
30/04/2026

Opið vísindahús fyrir alla fjölskylduna er hafið og stendur til kl. 18 í Egilsstaðaskóla. Öll hjartanlega velkomin! Enginn aðgangseyrir – bara mæta og upplifa vísindin á lifandi hátt. Opið vísindahús í Egilsstaðaskóla. Sveitarfélagið Múlaþing Egilsstaðaskóli

Háskólalestin er mætt á Egilsstaði! Eftir frábærar kennarasmiðjur og fjörug námskeið síðustu tvo daga hvetjum við öll ti...
30/04/2026

Háskólalestin er mætt á Egilsstaði!

Eftir frábærar kennarasmiðjur og fjörug námskeið síðustu tvo daga hvetjum við öll til að kíkja á Opið vísindahús í Egilsstaðaskóla í dag fimmtudaginn 30. apríl kl. 16:00–18:00.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir forvitna krakka, foreldra, ömmur og afa til að upplifa vísindin á lifandi og spennandi hátt.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

Myndir úr ferð Háskólalestarinnar á Egilsstöðum má finna í meðfylgjandi frétt.

Háskólalestin mætti á Egilsstaði þriðjudaginn 28. apríl og hóf ferðina strax á kennarasmiðjum. Kennarar úr Egilsstaðaskóla, Brúarskóla og Fellaskóla sóttu smiðjur í Skapandi sjálfbærni-lífprent og verklegri raunvísindakennslu. Þar fengu kennarar aðgang að nýrri þekkingu...

27/04/2026

Háskólalestin er á leiðinni til Egilsstaða. Austurfrétt fjallar um komu lestarinnar, sem mætir með fjör og fræði fyrir allt samfélagið 28.-30. apríl. Við hlökkum til að hitta sem flesta Austfirðinga og eiga saman skemmtilegar og fróðlegar stundir á Egilsstöðum.

Háskólalestin er að hlaða batteríin og leggur leið sína austur til Egilsstaða dagana 28.–30. apríl. Austfirðingum á öllu...
24/04/2026

Háskólalestin er að hlaða batteríin og leggur leið sína austur til Egilsstaða dagana 28.–30. apríl. Austfirðingum á öllum aldri er boðið upp á fræði og fjör. Við hlökkum til að hitta sem flesta. Endilega komdu og vertu með!

Háskólalestin verður á Egilsstöðum 28.–30. apríl með fjör, fræði og vísindagleði fyrir allt samfélagið.  Á Egilsstöðum verður boðið upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá fyrir kennara, nemendur og almenning, þar sem fræði og fjör mætast í fræðilegri og skemmtilegri ...

Frábær mæting og einstök stemning í Opna vísindahúsinu í Árskóla á Sauðárkróki sl. laugardag. Takk fyrir okkur! Í meðfyl...
20/04/2026

Frábær mæting og einstök stemning í Opna vísindahúsinu í Árskóla á Sauðárkróki sl. laugardag. Takk fyrir okkur! Í meðfylgjandi frétt má lesa meira og skoða myndir frá deginum.

Opið vísindahús Háskólalestar Háskóla Íslands sem haldið var í Árskóla á Sauðárkróki laugardaginn 18. apríl var afar vel heppnað. Hátt í þúsund gestir lögðu leið sína á staðinn og nutu fjölbreyttrar dagskrár þar sem vísindi voru kynnt á lifandi, aðgengilegan og skem...

18/04/2026

Við höfum nú hafið Opið vísindahús og verðum í Árskóla til kl. 14:00. Öll fjölskyldan er hjartanlega velkomin! Enginn aðgangseyrir – bara mæta og upplifa vísindin á lifandi og skemmtilegan hátt.

Háskólalestin er mætt á Sæluviku Skagfirðinga!                            Eftir frábærar kennarasmiðjur og fjörug námske...
17/04/2026

Háskólalestin er mætt á Sæluviku Skagfirðinga!

Eftir frábærar kennarasmiðjur og fjörug námskeið fyrir nemendur í 8.–10. bekk, hvetjum við alla til að kíkja á Opið vísindahús í Árskóla á morgun laugardag kl. 11:00–14:00.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir forvitna krakka, foreldra, ömmur og afa til að upplifa vísindin á lifandi og spennandi hátt. Prófaðu allt frá vélmennum og íþrótta- og heilsufræði yfir í japanska menningu og skurðlækningar!

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

Myndir úr ferðinni má finna í meðfylgjandi frétt.

Háskólalest Háskóla Íslands mætti í Skagafjörð miðvikudaginn 16. apríl og hóf ferðina með því að bjóða kennurum á svæðinu upp á fjölbreyttar kennarasmiðjur sem um 100 kennarar sóttu. Í boði voru smiðjur í verklegri vísindakennslu, hegðunarvanda og ofbeldi nemenda og g...

Háskólalestin brunar nú í Skagafjörð! Feykir fjallar um komu lestarinnar, sem mætir með fjör og fræði fyrir allt samféla...
15/04/2026

Háskólalestin brunar nú í Skagafjörð! Feykir fjallar um komu lestarinnar, sem mætir með fjör og fræði fyrir allt samfélagið 16.-18. apríl. Við hlökkum til að hitta sem flesta Skagfirðinga, endilega komdu og vertu með.

Dagana 16.–18. apríl 2026 heimsækir Háskólalestin Sauðárkrók og býður nemendum, kennurum og íbúum Skagafjarðar upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá og kynn

Fyrsta stopp Háskólalestarinnar í ár er á Sauðárkróki dagana 16.–18. apríl. Þar gefst nemendum kostur á að sökkva sér í ...
04/04/2026

Fyrsta stopp Háskólalestarinnar í ár er á Sauðárkróki dagana 16.–18. apríl. Þar gefst nemendum kostur á að sökkva sér í fjölbreytt og spennandi námskeið, kennarar sækja sér nýja þekkingu og innblástur í kennarasmiðjum og samfélaginu öllu er boðið til glæsilegrar vísindaveislu í Opnu vísindahúsi á Sæluviku Skagfirðinga.

Háskólalestin leggur af stað út í vorið 2026 og færir með sér fjör, fræði og undur vísindanna vítt og breitt um landið. Líkt og fyrri ár er markmiðið að efla tengsl Háskóla Íslands við samfélög landsins, kveikja forvitni, styðja við skólastarf og gera vísindi aðgengile...

Address

Sæmundargata 2
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Háskólalestin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share