18/11/2025
Eftir að hafa prófað snyrtifræði og starfað á leikskóla um tíma, skipti hún um stefnu, sem leiddi hana í grafíska miðlun. Hrafnhildur er 24 ára og ólst upp í Kópavogi. Lengi vel hugsaði hún sér að fara í nám í ljósmyndun, en ákvað á síðustu stundu að skrá sig í grafíska miðlun, sem reyndist vera nákvæmlega það sem hún var að leita að. Námið snertir svið hönnunar, prentunar, stafrænnar miðlunar og ljósmynda 📸
◇
„Við fáum að kynnast öllu ferlinu frá fyrstu hugmynd til fullbúins verks og vinna verkefni sem nýtast vel þegar þau stíga inn á skapandi vinnumarkað. Námið ýtir undir frumleika, lausnamiðaða hugsun og sjálfstæð vinnubrögð.“
◇
Hrafnhildur útskrifast í desember með flottum og samheldnum hópi nemenda. Nú eru þau á lokasprettinum að undirbúa útskriftarsýningu sem verður haldin 5. Desember næstkomandi klukkan 15. Þema sýningarinnar er Murder Mystery. Hrafnhildur hefur tekið virkan þátt í skipulagningunni og nýtur þess að vinna verkefni utan hefðbundinna kennslustunda. Hrafnhildur útskrifast einnig með stúdentspróf, sem hún hefur lært samhliða náminu, en hún hefur þegar ákveðið að rauða útskriftarhúfan verði fyrir valinu. „Ég er bara mikið meira töff með þá húfu.“ Segir Hrafnhildur og brosir 😊
◇
Að loknu námi stefnir Hrafnhildur á vinnumarkaðinn. Hún veit ekki hvert draumastarfið er, en hún veit að hún nýtur sín best í skapandi umhverfi, með skemmtilegu fólki 👌
◇
Aðspurð hvort hún myndi mæla með námi í grafískri miðlun, svarar Hrafnhildur hiklaust játandi, hún segir að námið sé fjölbreytt og veiti nemendum bæði tæknilega og skapandi hæfni, sem nýtist á margvíslegan hátt 👏
◇
„Grafísk miðlun er ótrúlega góður grunnur sem þú getur byggt framtíð þína á.“