Stjórnmálafræðideild við HÍ / Political Science

Stjórnmálafræðideild við HÍ / Political Science Vandað nám á grunn- og meistarastigi í alþjóðasamskiptum, blaðamennsku, kynjafræði, opinberri stjórnsýslu og stjórnmálafræði.

Upplýsingasíða Stjórnmálafræðideildar HÍ

Ert þú að hefja nám við Félagsvísindasvið?Komdu á móttöku nýnema föstudaginn 21. ágúst kl. 13 í Stóra sal Háskólabíós.Sj...
10/08/2026

Ert þú að hefja nám við Félagsvísindasvið?

Komdu á móttöku nýnema föstudaginn 21. ágúst kl. 13 í Stóra sal Háskólabíós.

Sjáumst þar – við hlökkum til að taka á móti ykkur!

Stefanía Óskarsdóttir prófessor hefur tekið við stöðu deildarforseta Stjórnmálafræðideildar frá 1. júlí 2026. Stefanía t...
02/07/2026

Stefanía Óskarsdóttir prófessor hefur tekið við stöðu deildarforseta Stjórnmálafræðideildar frá 1. júlí 2026.

Stefanía tekur við af Evu Marín Hlynsdóttur sem þakkað er fyrir góða forystu undangengin fjögur ár.

„Ég hélt að ég væri kannski orðinn of gamall til að fara aftur í nám en svo hugsaði ég: hverju hef ég að tapa?“Simon Joh...
26/06/2026

„Ég hélt að ég væri kannski orðinn of gamall til að fara aftur í nám en svo hugsaði ég: hverju hef ég að tapa?“

Simon John Turner útskrifast með ágætiseinkunn úr meistaranámi í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands.

Hann tók námið samhliða fullu starfi og lauk því á fimm árum. Í náminu stóðu meðal annars upp úr verkefni tengd samningaviðræðum, gagnrýninni hugsun og flóknum alþjóðlegum viðfangsefnum.

Lokaritgerð Simon fjallaði um áskoranir smáríkja í baráttunni gegn mansali, metnaðarfullt verkefni sem hann lagði mikla vinnu í.

Innilega til hamingju, Simon!

Lesa má viðtalið á hi.is

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

23/06/2026
Sæunn Emelía Tómasdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn úr alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands.Eftir BA-nám í heimspek...
22/06/2026

Sæunn Emelía Tómasdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn úr alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands.

Eftir BA-nám í heimspeki ákvað Sæunn að prófa eitthvað nýtt og fór í meistaranám í alþjóðasamskiptum. Það sem kom henni skemmtilega á óvart var hversu heimspekilegt námið g*t verið og meistararitgerðin stendur sérstaklega upp úr.

Eftir útskrift er hún komin í Skaftafell í Öræfum þar sem hún starfar sem landvörður.

Til hamingju með glæsilegan árangur, Sæunn Emelía!

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Nína Rut Magnúsdóttir útskrifaðist úr stjórnmálafræði við Háskóla Íslands en áhugi hennar á samfélagsmálum leiddi hana i...
22/06/2026

Nína Rut Magnúsdóttir útskrifaðist úr stjórnmálafræði við Háskóla Íslands en áhugi hennar á samfélagsmálum leiddi hana inn í námið. Með tímanum jókst áhuginn sérstaklega á öryggis- og varnarmálum.

Í lokaverkefni sínu fjallaði Nína um falsfréttir og upplýsingaóreiðu og skoðaði hvernig hugtökin birtast í þingræðum á Alþingi og hvernig íslenskir fjölmiðlar miðla þeirri orðræðu áfram. Hún segir hugtökin taka á sig ólíka merkingu eftir samhengi og að rannsóknin hafi gefið henni tækifæri til að kafa dýpra í samspil stjórnmála, fjölmiðla og upplýsingaflæðis.

Það sem stendur helst upp úr í náminu eru vináttuböndin sem mynduðust, frábærir samnemendur og námsferðin til Bandaríkjanna sem Nína mælir hiklaust með fyrir stjórnmálafræðinema.

Í sumar starfar Nína hjá Skattinum en framhaldið er enn opið. Hún hefur sótt um nokkur spennandi framhaldsnám og hlakkar til næsta kafla, hvort sem hann felur í sér frekara nám, ný verkefni eða eitthvað allt annað.

Nína mælir hiklaust með stjórnmálafræði við HÍ:

„Námið gefur manni frábæran grunn inn í framtíðina og tækifæri til að finna sitt áhugasvið og þróa það áfram.“

Til hamingju með áfangann, Nína Rut.

Doktorsvörn í kynja- og margbreytileikafræði fór fram í gær við Háskóla Íslands.Margaret Anne Johnson varði doktorsritge...
19/06/2026

Doktorsvörn í kynja- og margbreytileikafræði fór fram í gær við Háskóla Íslands.

Margaret Anne Johnson varði doktorsritgerð sína „Höfnun eða eftirsjá í tengslum við móðurhlutverkið: Tilfinningaleg togstreita og misvísandi orðræður í ákvarðanatöku um barneignir.“

Ritgerðin fjallar um einstaklinga sem hafna móðurhlutverkinu og konur sem upplifa eftirsjá í tengslum við móðurhlutverkið. Í rannsókninni er rýnt í frjósemissjálfræði, samfélagslegar væntingar og þær orðræður sem móta ákvarðanir fólks um barneignir.

Leiðbeinandi var dr. Gyða Margrét Pétursdóttir, prófessor í kynja- og margbreytileikafræði við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

Við óskum Margaret Anne Johnson innilega til hamingju með áfangann.

Flóðgáttir upplýsingaóreiðu stóðu galopnar og ógnuðu lýðræðinu.Í frétt RÚV er fjallað um áhrif rangra og villandi upplýs...
19/06/2026

Flóðgáttir upplýsingaóreiðu stóðu galopnar og ógnuðu lýðræðinu.

Í frétt RÚV er fjallað um áhrif rangra og villandi upplýsinga, samfélagsmiðla og gervigreindar á lýðræðislega umræðu og traust í samfélaginu.

Meðal viðmælenda var Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, sem ræddi upplýsingaóreiðu og þær áskoranir sem henni fylgja.

Framboð hefðbundinna fréttamiðla á traustum fréttum sem byggjast á sannreyndum upplýsingum hefur sjaldan ef nokkru sinni verið eins mikilvægt og nú. Óreiða og falsfréttir flæða um samfélagsmiðla og hafa áhrif á skoðanir fólks og þar með lýðræðið.

Indíana útskrifaðist með ágætiseinkunn í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.Í viðtalinu segir hún frá áhuganum á samfél...
18/06/2026

Indíana útskrifaðist með ágætiseinkunn í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Í viðtalinu segir hún frá áhuganum á samfélagsmálum, skiptinámi við KU Leuven í Belgíu og fjölbreyttum starfsmöguleikum stjórnmálafræðinga.

Innilega til hamingju, Indíana!

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Address

Gimli
Reykjavík
102

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Stjórnmálafræðideild við HÍ / Political Science posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Stjórnmálafræðideild við HÍ / Political Science:

Shortcuts

Share