26/06/2026
Frábær fulltrúi Lagadeildar í Stanford-háskóla!
Elín Snæfríður Maximiliansdóttir Conrad, nemi í Lagadeild Háskóla Íslands, er ein níu nemenda HÍ sem halda í sumar til náms við Stanford-háskóla í Kaliforníu í gegnum International Honors Program.
Námið stendur yfir í átta vikur og gefur nemendum tækifæri til að kynnast alþjóðlegu háskóla- og vísindasamfélagi, afla sér nýrrar þekkingar og tengsla og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá með áherslu á nýsköpun, frumkvöðlafræði og alþjóðlega sýn.
Við í Lagadeild erum stolt af því að eiga fulltrúa í þessum glæsilega hópi og óskum Elínu innilega til hamingju með þetta spennandi tækifæri.
Gangi þér vel í Stanford, Elín!
Lesa má fréttina á hi.is
Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun