01/09/2026
🌿 Á þriðja tug nemenda hefja nú réttindanám í meðferð varnarefna hjá Endurmenntun LBHÍ.
Námið er unnið í samstarfi við umhverfis- og orkustofnun og Vinnueftirlitið og er ætlað þeim sem þurfa réttindi til að starfa við meðferð og notkun varnarefna.
Boðið er upp á ólíkar námsleiðir eftir starfssviði og þörfum þátttakenda, meðal annars nám í plöntuvernd, meindýravörnum og nám fyrir ábyrgðarmenn í markaðssetningu varnarefna.
Námið hefst 3. september og fer alfarið fram í fjarnámi. Nemendur geta því skipulagt námið að miklu leyti eftir sínum hentugleika áður en kemur að prófi í lok september.
Það er ánægjulegt að sjá góðan hóp leggja af stað í námið og við óskum öllum góðs gengis! 🌱
Landbúnaðarháskóli Íslands