20/11/2014
"Byggjum, tengjum og tökum þátt"
27. nóvember kl. 13:00-17:00 á Grand hóteli
Dagur upplýsingatækninnar (UT-dagurinn) hefur verið haldinn árlega frá
árinu 2006 af stjórnvöldum. Tilgangur dagsins er að fjalla um það sem er
efst á baugi hverju sinni hjá stjórnsýslunni. UT-dagurinn 2014 er
tileinkaður þeim verkefnum sem eru í gangi skv. upplýsingatæknistefnu
stjórnvalda og eru á framkvæmdastigi.
Dagskrá:
13:00-13:15 Setningarávarp:
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra
13:15-13:35 Opin og gegnsæ stjórnsýsla:
Opin gögn - nýsköpun og aukið gegnsæi
Tryggvi Björgvinsson, verkefnisstjóri, Open
Knowledge
13:35-14:15 Skipulag, öryggi og samvirkni:
Landsarkitektúr fyrir opinber kerfi
Hermann Ólason, framkvæmdastjóri
upplýsingatæknisviðs, Tryggingastofnunar
Net- og upplýsingaöryggi - hvað eru stjórnvöld að
gera í málinu?
Sigurður Emil Pálsson, sérfræðingur í
innanríkisráðuneyti
14:15-14:35 Hagræðing, skilvirkni og sjálfbærni:
Rafrænir reikningar um áramót
- mikilvægt skref til hagræðingar með rafrænum
viðskiptum
Hjörtur Þorgilsson, formaður Icepro
14:35-15:00 Kaffihlé
15:00-15:40 Lýðræði:
Virkir og gegnsæir samráðsferlar á netinu
Arnar Pálsson, ráðgjafi Capacent
Öruggar rafrænar undirskriftasafnanir
Halla Björg Baldursdóttir, sviðsstjóri hjá
Þjóðskrá Íslands
15:40-16:20 Þjónusta:
Sjúklingagáttin Vera komin í loftið
Ingi Steinar Ingason, verkefnisstjóri
og Guðrún Auður Harðardóttir, verkefnisstjóri
hjá Embætti Landlæknis
Rafræn fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra
Jóhannes Jónsson, sviðsstjóri þróunarsviðs
ríkisskattstjóra
16:20-16:40 Fjarskipti:
Árangur í fjarskiptum
Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður stjórnar
Fjarskiptasjóðs
Ráðstefnustjóri: Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytissstjóri í
innanríkisráðuneyti
Verð fyrir dagskrá UT-dagsins eftir hádegið:
Félagsmenn Ský: 10.500 kr.
Utanfélagsmenn: 15.900 kr.
Gestum UT-dagsins býðst að taka þátt í fræðslufundi á undan UT-deginum um
upplýsingaöryggi á opinberjum vefjum en gestir þurfa að skrá sig
sérstaklega á hann um leið og skráning á UT-daginn fer fram.
"Upplýsingaöryggi og opinberir vefir"
Fræðslufundur fyrir vefstjóra og aðra sem koma að þróun vefja
27. nóvember 2014, kl. 10:30-12:30 í Hvammi á Grand hóteli
Innanríkisráðuneytið stendur fyrir fræðslufundi í þeim tilgangi að efla
varnir opinberra vefja, ríkis og sveitarfélaga, gegn hvers kyns
tölvuárásum. Tölvuárásir eru stöðugt að aukast og eru nú orðnar alvarleg
ógn við fyrirtæki og opinbera aðila. Því er mikilvægt að þeir sem vinna
við opinbera vefi öðlist skilning á helstu áhættuþáttum og hvernig hægt sé
að bregðast við þeim.
Á fundinum verður fjallað, á einfaldan hátt, um öryggismál, hvað beri að
varast og hvernig hægt sé að auka öryggi vefja. Í vefhandbókinni sem er á
vefnum ut.is er ítarlegt efni um öryggi opinberra vefja og
verður stuðst við það efni.
Meðal þess sem verður tekið fyrir er:
- Hvaða öryggisþætti þarf að hafa í huga við val á vefumsjónarkerfum,
hýsingar- og þjónustuaðilum.
- Stjórnun aðgangs
- Öryggisafritun
- Mikilvægi öryggisprófana á veflausnum
Einnig verður farið yfir sjálfsmat varðandi öryggismál sem vefstjórar geta
framkvæmt sjálfir og fyrirhugaðar mælingar á öryggi opinberra vefja í
næstu könnun, Hvað er spunnið í opinbera vefi 2015? Hvatt er til spurninga
og umræðna á fundinum.
Leiðbeinandi verður Svavar Ingi Hermannsson, sérfræðingur í tölvuöryggi
Fræðslufundurinn er án endurgjalds fyrir ráðstefngesti á UT-degi en gestir
þurfa að skrá sig fyrirfram á fundinn og UT-daginn.
Ef einungis er mætt á fræðslufundinn þarf að greiða inná hann:
Verð fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Skráningarform http://www.sky.is/index.php/skraning
UT-vefurinn - vefur um upplýsingatækni. Efni er varðar upplýsingatækni á vegum hins opinbera gert aðgengilegt fyrir ríkisstofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og almenning í landinu.