31/08/2026
🎓 Ertu að skoða framhaldsnám í Bandaríkjunum?
Við viljum sérstaklega vekja athygli á Cobb Family Fellowship fyrir íslenska nemendur sem stefna á meistara- eða doktorsnám við University of Miami.
Styrkurinn er opinn nemendum í öllum fræðigreinum og felur í sér:
💰 $15,000 framfærslustyrk
🎓 Fulbright-styrk
📚 Yfirleitt einnig afslátt af skólagjöldum, þó það geti verið mismunandi eftir deildum
University of Miami býður upp á fjölbreytt námsúrval á framhaldsstigi, hvort sem er á sviði lista, raun- , félags- eða hugvísinda. Þetta getur verið sérstaklega góður kostur fyrir þá sem vilja sameina öflugt nám í Bandaríkjunum við góðan fjárhagslegan stuðning.
🔗 Kynntu þér námsframboð University of Miami og lestu meira um Cobb Family Fellowship og aðra samstarfsstyrki á fulbright.is