01/06/2026
Síðasta skráningarvikan er runnin upp og allra síðustu forvöð að skrá 12–14 ára krakka í spennandi vísindaupplifun í Háskóla unga fólksins.
Enn eru fáein laus sæti í stundatöflum B, E, F, L, M og N. Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Í boði eru fjölbreytt og skemmtileg þemu, námskeið og smiðjur, meðal annars:
• Eðlisfræðilegur þemadagur í Skuggsjá sem er tilraunastofa í
stjarneðlisfræði
• Gervigreindarþema með heimsókn í CCP Games og Vísindagarða
• STEM- og spagettíþema með eðlisfræði, verkfræði og efnafræði í forgrunni
• Tungumálaþema með innsýn í framandi menningarheima og undirstöðuatriði í frönsku, kóresku, spænsku og japönsku
• Afbrotafræði, þar sem skoðaðar eru skýringar á afbrotahegðun og hlutverk refsinga, lögreglu og fangelsa
• Sjúkraþjálfun á verklegum nótum
• Valslöngvusmíði og skotkeppni þar sem nemendur smíða sína eigin og kanna hver kastar lengst
• Íþrótta- og heilsufræði með áhugaverðum mælingum og kannað hvernig líkaminn bregst við
• Kínversk fræði þar sem farið er í menningarheiminn og grunnatriði í mandarín
…og margt fleira!
Kannaðu málið hér 👉 https://ung.hi.is/is/namskeid
Háskóli unga fólksins (HUF)
Hér fyrir neðan má sjá þau námskeið sem kennd verða í Háskóla unga fólksins dagana 10.–12. júní 2026. Dagskráin er fjölbreytt og gefur þátttakendum kost á að kynnast alls konar ólíkum vísindum á skemmtilegan hátt. Smellið á heiti námskeiðanna til að lesa nánar um þa...