Íþróttafræði HR

Íþróttafræði HR Upplýsinga- og samskiptasíða íþróttafræðideildar HR Íþróttafræði til BSc gráðu
MSc í íþróttavísindum og heilsuþjálfun
MEd í heilsuþjálfun og kennslu

31/08/2026

Ragna Ingólfsdóttir nemandi í MSc í íþróttavísindum skrifar hér áhugaverðan pistil um samskipti foreldra og þjálfara. Linkur á pistilinn í athugasemdum.

Hér er hlekkur á HAUSTMÓTIÐ sem er að fara af stað... kl. 13:00-15:00
21/08/2026

Hér er hlekkur á HAUSTMÓTIÐ sem er að fara af stað... kl. 13:00-15:00

Zoom is the leader in modern enterprise cloud communications.

Hlökkum til að taka á móti ykkur á eftir í stofu M105 og streymi (hlekkur væntanlegur inn á viðburðinn)
21/08/2026

Hlökkum til að taka á móti ykkur á eftir í stofu M105 og streymi (hlekkur væntanlegur inn á viðburðinn)

04/06/2026

Íþróttafræðingar vinna fjölbreytt störf, hér eru bara nokkur dæmi!
Umsóknarfrestur er til 5. júní.

Íþróttakennarar úr Engjaskóla, Sjálandsskóla og Rimaskóla hlutu viðurkenningu íþróttafræðideildar HR fyrir framúrskarand...
03/06/2026

Íþróttakennarar úr Engjaskóla, Sjálandsskóla og Rimaskóla hlutu viðurkenningu íþróttafræðideildar HR fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Viðurkenningin fór fram í Háskólanum í Reykjavík 28. maí sl. í annað sinn og mun verða endurtekið að ári.

Hér er nýjasta hlaðvarpsútspilið okkar. Það er þáttur um nálgun Tryggva Jóhanns Heimissonar íþróttakennara í Hrafnagilss...
03/06/2026

Hér er nýjasta hlaðvarpsútspilið okkar. Það er þáttur um nálgun Tryggva Jóhanns Heimissonar íþróttakennara í Hrafnagilsskóla við námsmat í skólaíþróttum. Tryggvi fékk viðurkenningu íþróttafræðideildar fyrir umsóknina sína í fyrra. Í þættinum er komið inn á margt fleira er við kemur íþróttakennslu og áskorunum í þeim efnum. Endilega leggið við hlustir :)

Við megum til með að hvetja íþróttafræðinga til mætingar á þennan fund hér sem fer fram kl. 17-19 í Borgartúni 27 - Visk...
26/05/2026

Við megum til með að hvetja íþróttafræðinga til mætingar á þennan fund hér sem fer fram kl. 17-19 í Borgartúni 27 - Visku. https://www.viska.is/um-visku/i-frettir/opinn-fundur-fyrir-ithrottafraedinga

Opinn fundur félagsnets íþróttafræðinga í fundarsölum Visku – stéttarfélags, Borgartúni 27, þriðjudaginn 26. maí frá kl. 17:00 til 19:00.

Hér er áhugaverð umfjöllun um Jessicu Bartley, en hún kom og kenndi hjá okkur í námskeiðinu Klínísk íþróttasálfræði en þ...
21/05/2026

Hér er áhugaverð umfjöllun um Jessicu Bartley, en hún kom og kenndi hjá okkur í námskeiðinu Klínísk íþróttasálfræði en það námskeið tilheyrir meistaranáminu og örnáminu í íþróttasálfræði.

Í meistaranámsáfanganum (M.Ed.) Námsefnisgerð I og II vinna nemendur að stóru lokaverkefni allan veturinn. Verkefnin eru...
08/05/2026

Í meistaranámsáfanganum (M.Ed.) Námsefnisgerð I og II vinna nemendur að stóru lokaverkefni allan veturinn. Verkefnin eru fjölbreytt og það verður spennandi að draga frá tjöldin á opnum kynningardegi þann 28. maí nk.

Hér má sjá Kjartan Stefánsson taka upp kynningarmyndskeið fyrir verkefnið sitt í myndveri. Skemmtileg og krefjandi reynsla að lesa handrit í myndavélina.

KKÍ og íþróttafræði HR auglýsa kostaða meistaranámsstöðuKOSTUÐ MEISTARANÁMSSTAÐA Umsóknarfrestur er til 22. maí 2026Laus...
07/05/2026

KKÍ og íþróttafræði HR auglýsa kostaða meistaranámsstöðu
KOSTUÐ MEISTARANÁMSSTAÐA
Umsóknarfrestur er til 22. maí 2026
Laus er til umsóknar námsstaða í meistaranámi í íþróttavísindum og þjálfun (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík.

Staðan eru kostuð af Háskólanum í Reykjavík (HR) og Körfuknattleikssambandi Íslands (KKÍ) og mun nemandi ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur. Umsóknarfrestur er til 22. maí og mun nemandi hefja nám strax á haustönn, samkæmt skóladagatali.

Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi:
- Nemandi skuldbindur sig til að gera meistaraverkefni sem tengist landsliðum Íslands í körfuknattleik. Nemandi skrifar lokaritgerð í nánu samstarfi við leiðbeinanda (akademískan starfsmann HR), þjálfarateymi landsliða og KKÍ. Nemandi skuldbindur sig jafnframt til þess að kynna niðurstöður meistaraverkefnisins samkvæmt óskum KKÍ.

- Nemandi skuldbindur sig til þess að sjá um mælingar á yngri landsliðum í körfuknattleik undir handleiðslu þjálfarateymis landsliðanna og kennara íþróttafræðisviðs HR á meðan námstíma stendur.

- KKÍ og þjálfarateymi þeirra geta óskað eftir því að nemandi sjái um ráðgjöf er varðar líkamlega þjálfun fyrir leikmenn landsliða Íslands. Slík ráðgjöf yrði alltaf í nánu samstarfi við þjálfarateymi og undir handleiðslu kennara íþróttafræðideildar HR.

- Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við landsliðin og veita þjálfarateymi aðgang að verkefnum sínum. Dæmi um slíkt væri að gera frammistöðugreiningu á A-landsliðið kvenna í námskeiðinu Frammistöðugreining í íþróttum. Þá er nemandi skuldbundinn til að ljúka 10 ECTS eininga verknámi hjá KKÍ sem hluta af námi sínu.

- Nemandi skuldbindur sig til að halda eðlilegri námsframvindu og mæta samviskusamlega í kennslustundir ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi á vegum HR sé þess óskað. Dæmi um slíkt væri viðvera á Háskóladeginum.

Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á tölvupósti til:
[email protected] og [email protected].

Address

Menntavegi 1
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íþróttafræði HR posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share