25/06/2019
Spennandi tilraun hjá Lbhí með afbrigði af blátopp sem fær æt ber. Níu yrki verða prófuð á Hvanneyri fyrst um sinn en gerum ráð fyrir að að bæta vænlegum yrkjum í Yndisgarðana.
Vert er að benda á að berin af hefðbundna blátoppnum og örðum toppum eru ekki góð og jafnvel aðeins eitruð.
Hér eru fínar upplýsingar um berjablátopp: https://www.rhs.org.uk/advice/profile?pid=728
Fyrstu berin af Lonicera caerulea stundum kallað berjablátoppur, hunangsber eða eftir japanska heitinu haskap. Berin eru nokkuð sæt en líka súr. Bragðinu hefur verið lýst eins og blanda af bláberjum og hindberjum sem á ágætlega vel við. Níu yrki eru í prófunum hjá LbhÍ sem fara í aldingarðinn á Hvanneyri seinna í sumar.