Háskóli Íslands

Háskóli Íslands Háskóli Íslands er elsti og stærsti háskólinn á Íslandi og býður nám á fjölbreyttum fræðasviðum. Virðing og jafnrétti eru undirstaða þess að öll njóti sín.

Við skólann eru 26 deildir og á fjórða hundrað námsleiðir í boði. Betri háskóli - betra samfélag: Stefna HÍ 2021-2026

Áherslur í starfi skólans 2021-2026

Opinn og alþjóðlegur
Hlutverk Háskóla Íslands er að skapa umhverfi þar sem þekkingarsköpun nemenda og starfsfólks blómstrar. Í því felst m.a. náið samstarf við nær- og alþjóðasamfélag á sama tíma og Háskólinn skapar skjól, stuðning og svigrúm f

yrir nýjar hugmyndir og hagnýtingu þeirra. Háskólinn tekur markviss skref til að styðja í hvívetna við þverfræðilega samvinnu, aukið alþjóðasamstarf í kennslu og námi og öflugt umhverfi nýsköpunar. Nám við skólann býr nemendur undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi. Sjálfbærni og fjölbreytileiki
Heimurinn stendur frammi fyrir flóknum áskorunum. Rannsóknir, sérfræðiþekking, kennsla og miðlun háskóla gegna lykilhlutverki í að stuðla að lýðheilsu og velferð, heilbrigðum hagkerfum og sjálfbærum og réttlátum samfélögum. Háskóli Íslands tekur markviss skref í átt að sjálfbærum heimi í krafti rannsókna og kennslu og í eigin starfsemi. Hann berst gegn áhrifum falsfrétta og leggur fram rannsóknir, gögn og sérfræðiþekkingu til að styðja opinbera stefnumörkun og stuðla að lýðræðislegri umræðu. Afl á grunni gæða
Rannsóknir og kennsla eru kjarninn í starfi Háskóla Íslands og sameiginlegt verkefni rannsakenda, kennara, stjórnsýslu og nemenda. Allt starf skólans er háð því að gæði rannsókna og kennslu séu tryggð og að starfið sé í sífelldri þróun í takt við þarfir nemenda og starfsfólks og þróun samfélagsins. Uppbygging námssamfélags og stafrænnar kennslu sem byggist á framsækinni kennslufræðilegri sýn stuðlar að öflugum háskóla. Aukinn stuðningur við rannsakendur, vandað framhaldsnám, skarpari umgjörð stjórnunar, auk stafrænnar umbyltingar stjórnsýslu og þjónustu styrkir Háskólann í alþjóðlegri samkeppni. Góður vinnustaður
Starfsfólk og nemendur mynda framsækið og lifandi þekkingarsamfélag. Breytingar tengdar upplýsingatækni hafa víðtæk áhrif á vinnuumhverfi framtíðarinnar. Það þarf að nýta í þágu starfsfólks, nemenda og starfseminnar allrar. Háskóli Íslands tekur vel á móti fjölbreyttum hópi nýs starfsfólks og nemenda og skapar hvetjandi umhverfi með traustum rannsóknainnviðum og góðri aðstöðu til þróunar náms og kennslu. Uppbygging háskólasvæðisins, heilsusamlegt starfsumhverfi og vistvænar samgöngur stuðla að jöfnu aðgengi og samheldnu og sjálfbæru samfélagi. Stefnan HÍ26: https://stefna.hi.is/

Háskóli Íslands áskilur sér rétt til þess að fjarlægja ummæli á samfélagsmiðlum skólans sem eru niðrandi eða ósæmileg og beinast t.d. gegn tilteknum einstaklingum, kynþáttum, trúarhópum eða kyni

Bókin Skattland: Valdstjórn á Íslandi 1281-1551 eftir Sverri Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við Deild heimspeki, sag...
03/09/2026

Bókin Skattland: Valdstjórn á Íslandi 1281-1551 eftir Sverri Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands, var að koma út.

Í bókinni er fjallað um íslensk stjórnmál frá lögtöku Jónsbókar 1281 að staðfestingu siðbreytingarinnar 1551, hina vanræktu síðmiðaldasögu Íslands þegar Ísland var skattland Noregskonungs.

Nánar um bókina í athugasemdum.

Nýtt háskólaráð tekur til starfaNýskipað háskólaráð, sem starfa mun til loka júnímánaðar 2028, kom saman til síns fyrsta...
03/09/2026

Nýtt háskólaráð tekur til starfa

Nýskipað háskólaráð, sem starfa mun til loka júnímánaðar 2028, kom saman til síns fyrsta reglulega fundar í dag, 3. september. Háskólaráð fer með stjórn Háskóla Íslands ásamt rektor og er ráðinu m.a. ætlað að marka heildarstefnu í málefnum skólans og móta skipulag hans. Háskólaráð úrskurðar um ýmis mál innan skólans og stofnana hans og ber ábyrgð á framkvæmd samstarfssamninga sem háskóli gerir við fyrirtæki og aðrar stofnanir. Undir háskólaráð heyra ýmsar nefndir sem snerta ólíka þætti í starfi skólans, svo sem kennslu, vísindi, jafnréttismál, fjármál og stefnu.

Nánar í athugasemdum.

--------------------

A newly appointed University Council, to serve until the end of June 2028, convened for its first regular meeting today, 3 September. The University Council governs the University of Iceland together with the rector and is responsible for shaping the organisation of the University and setting its overall strategy. The University Council rules on various issues within the University and its institutes and is responsible for implementing any cooperative agreements the University makes with businesses and other institutions. Various committees operate under the auspices of the University Council, focused on different areas of the University’s work, such as teaching, science, equal rights, finance and strategy.

More in comments.

Karlhormón virðast geta dregið úr afleiðingum erfðabreytingar sem veldur sjaldgæfu taugaþroskaheilkenni og þannig skýrt ...
03/09/2026

Karlhormón virðast geta dregið úr afleiðingum erfðabreytingar sem veldur sjaldgæfu taugaþroskaheilkenni og þannig skýrt hvers vegna áhrif sjúkdómsins eru ólík eftir kynjum. Þetta sýnir ný alþjóðleg rannsókn undir forystu vísindafólks á Íslandi sem varpar jafnframt nýju ljósi á kynbundin áhrif erfðasjúkdóma.

Rannsóknin beinist að Pilarowski-Björnsson-heilkenni, sjaldgæfu heilkenni sem veldur taugaþroskaröskun og hefur töluverð áhrif á tal- og málþroska. Heilkenninu var fyrst lýst fyrir átta árum af Hans Tómasi Björnssyni, prófessor í barnalækningum við Háskóla Íslands og yfirlækni við Barnaspítala Hringsins hjá Landspítala, og Genay Pilarowski, doktorsnema hans hjá Johns Hopkins Háskóla, ásamt samstarfsfólki. Heilkennið dregur nafn sitt af þeim báðum.

Nánar um rannsóknina í athugasemdum.

-----------------

Androgens – the male s*x hormones – seem to reduce the effects of pathogenic variants that cause a rare neurodevelopmental disorder, potentially explaining why the condition manifests differently between the s*xes. These are the findings of a new international study led by scientists in Iceland, which also sheds new light on s*x-specific effects of genetic disorders.

This study focused on Pilarowski-Björnsson syndrome, a rare neurodevelopmental disorder with significant impact on speech and language development. The condition was first described eight years ago by Hans Tómas Björnsson, professor of pediatrics at UI and senior consultant at the Landspítali Children’s Hospital, and Genay Pilarowski, his PhD student at Johns Hopkins University, together with their colleagues. The syndrome is named after both scientists.

More comments.

Rektorar háskóla landsins hittust ásamt háskólaráðherra á Akureyri.
03/09/2026

Rektorar háskóla landsins hittust ásamt háskólaráðherra á Akureyri.

Síðastliðna tvo daga var ég á Akureyri á fundum annars vegar með samstarfsnefnd háskólastigsins og hins vegar á ráðstefnu Gæðamats háskóla. Við gleymdum að mynda fyrri fundinn þar sem við vorum allar s*x, en tókum mynd af okkur rektorunum með ráðherra þegar hann leit við í lok ráðstefnunnar í gær. Takk Áslaug Ásgeirsdóttir rektor Háskólans á Akureyri fyrir góðar móttökur og þið hinar fyrir góða fundi.

Ársæll Már Arnarsson er prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og kennir foreldrum að vera leiðinlegir á vinsæl...
02/09/2026

Ársæll Már Arnarsson er prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og kennir foreldrum að vera leiðinlegir á vinsælu námskeiði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Ársæll ræddi samband barna og foreldra og listina að vera leiðinlegt foreldri í síðasta þættinum af Íslandi í dag á Sýn fyrr í vikunni.

Ársæll Arnarsson er prófessor við menntavísindasvið Háskóla Íslands og kennir foreldrum að vera leiðinlegir. Jú, þú last rétt - leiðinlegir! Ársæll segir það lækkun í tign að vera vinur barnanna sinna og foreldrar þurfi að setja reglur og fara eftir þeim. Ekki missa af Árs...

🌳🌎GRÆNFÁNI OG GRÓÐURSETNING Á NÝNEMADÖGUMÞað er mikil gróska í Háskóla Íslands í öllum skilningi þess orðs. Í gær var sv...
02/09/2026

🌳🌎GRÆNFÁNI OG GRÓÐURSETNING Á NÝNEMADÖGUM

Það er mikil gróska í Háskóla Íslands í öllum skilningi þess orðs. Í gær var svokölluðum grænum nýnemadegi fagnað á Háskólatorgi og á grænum svæðum skólans. Þá tóku fulltrúar starfsfólks og nemenda við Grænfána Landverndar í sjötta sinn fyrir hönd skólans en fánann hlýtur HÍ fyrir framlag til umhverfis- og sjálfbærnimenntunar og áherslur skólans í umhverfismálum. Fáninn var svo dreginn að húni við Aðalbyggingu og í framhaldinu gróðursetti starfsfólk og stúdentar fleiri plöntur í gróðurreitnum milli Aðalbyggingar og Þjóðminjasafnsins sem vex að umfangi ár frá ári.

Kristinn Ingvarsson festi græna nýnemadaginn á flögu.

Hvers konar stuðningur, umgjörð og samfélag þarf að vera til staðar til að hlúa að samspili vísindarannsókna og nýsköpun...
01/09/2026

Hvers konar stuðningur, umgjörð og samfélag þarf að vera til staðar til að hlúa að samspili vísindarannsókna og nýsköpunar sem þjónar íslensku samfélagi og stuðlar að heilbrigði, velferð og sjálfbærni til framtíðar?

Leitast verður við að svara þessari spurningu á málstofunni „Rannsóknatengd nýsköpun sem mætir þörfum framtíðar“ sem fram er í Grósku föstudaginn 4. september kl. 9-10.30.

Málstofan er öllum opin, sjá nánar í athugasemdum.

Um leið og ítrekum hamingjuóskir okkar til styrkhafa úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands birtum við f...
01/09/2026

Um leið og ítrekum hamingjuóskir okkar til styrkhafa úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands birtum við fleiri myndir Kristins Ingvarssonar frá úthlutuninni á Háskólatorgi í gær.

Til hamingju, kæru nýnemar og aðstandendur!

Stjórn og lykilstjórnendur Byggðastofnunar heimsóttu nýverið Háskóla Íslands á Hólum þar sem stjórnendur skólans kynntu ...
01/09/2026

Stjórn og lykilstjórnendur Byggðastofnunar heimsóttu nýverið Háskóla Íslands á Hólum þar sem stjórnendur skólans kynntu starfsemi hans, framtíðarsýn og þau tækifæri sem felast í nýrri háskólasamstæðu Háskóla Íslands.

Address

Sæmundargötu 2
Reykjavík
101

Telephone

+3545254000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Háskóli Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Háskóli Íslands:

Shortcuts

Share