Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands Skemmtilegt og hagnýtt nám sem nýtist á flestum sviðum atvinnulífsins.

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands (University of Iceland School of Business) er elsti og stærsti viðskiptaháskóli á Íslandi. Viðskiptafræðideildin hefur gegnt forystuhlutverki í menntun stjórnenda og sérfræðinga á sviði viðskiptafræði í rúma átta áratugi. Á sama tíma hefur deildin lagt metnað sinn í að auka og miðla framúrskarandi og alþjóðlega viðurkenndri þekkingu á þessu sviði með því að vera

leiðandi í rannsóknum, kennslu og þjónustu við íslenskt atvinnulíf. Gæði og gott orðspor
Nám í viðskiptafræði í Háskóla Íslands er þekkt fyrir gæði og gott orðspor. Námið er bæði fjölbreytt og framsækið og það gerir miklar kröfur til metnaðarfullra nemenda. Námið er þekkt fyrir að veita nemendum góða fræðilega undirstöðu, ýta undir skapandi hugmyndir og öguð vinnubrögð og nemendur öðlast góða innsýn í verkefni og áskoranir atvinnulífsins í gegnum kennslu og vinnu hagnýtra verkefna. Með metnaði sínum hefur Viðskiptafræðideild tryggt að menntun nemenda sem útskrifast frá deildinni nýtur trausts og hefur á sér öruggan gæðastimpil.

Viðskiptafræðideild og Tengslatorg HÍ/NHÍ bjóða nemendum á stutt upphafsnámskeið fyrir starfsþjálfun.4. september kl. 12...
28/08/2026

Viðskiptafræðideild og Tengslatorg HÍ/NHÍ bjóða nemendum á stutt upphafsnámskeið fyrir starfsþjálfun.

4. september kl. 12:00–12:45, Stofa O-106

Skráning fer fram hér: https://forms.gle/1BTryAeDk7aWy17n6

Langar þig að öðlast reynslu af viðburðastjórnun og markaðsmálum?Hugverkastofan og Viðskiptafræðideild HÍ bjóða starfsþj...
17/08/2026

Langar þig að öðlast reynslu af viðburðastjórnun og markaðsmálum?

Hugverkastofan og Viðskiptafræðideild HÍ bjóða starfsþjálfun á haustönn við skipulagningu og kynningu 35 ára afmælisviðburðar Hugverkastofunnar.

Spennandi tækifæri fyrir framtakssaman og vandvirkan nema með áhuga á samfélagsmiðlum, nýsköpun og hugverkaréttindum.

Tvær spennandi starfsþjálfunarstöður hjá LifePass Iceland:Markaðsmál og samfélagsmiðlar ogVerkefnastjórnun og viðskiptaþ...
14/08/2026

Tvær spennandi starfsþjálfunarstöður hjá LifePass Iceland:

Markaðsmál og samfélagsmiðlar og
Verkefnastjórnun og viðskiptaþróun

Kynntu þér stöðurnar og sæktu um!

Starfsnám í heilsuvörudeild ArtasanErt þú nemandi í markaðs- eða viðskiptafræði með áhuga á heilsu, vörumerkjum og neyte...
14/08/2026

Starfsnám í heilsuvörudeild Artasan

Ert þú nemandi í markaðs- eða viðskiptafræði með áhuga á heilsu, vörumerkjum og neytendamarkaði? Artasan býður upp á fjölbreytt starfsnám við markaðssetningu, kynningarefni og sölu heilsuvara.

Sendu ferilskrá og kynningarbréf á [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst.

Starfsnám í ráðningardeild IntellectaHefur þú brennandi áhuga á mannauðsmálum? Intellecta og Viðskiptafræðideild HÍ bjóð...
14/08/2026

Starfsnám í ráðningardeild Intellecta

Hefur þú brennandi áhuga á mannauðsmálum? Intellecta og Viðskiptafræðideild HÍ bjóða meistaranema starfsþjálfun í ráðningardeild þar sem unnið er að fjölbreyttum verkefnum tengdum ráðningarferlinu.

Starfsnámið er ætlað meistaranemum sem hafa lokið 60 ECTS-einingum með fyrstu einkunn (7,25).

Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst.

Starfsnám hjá DansverkstæðinuHefur þú áhuga á dansi, sviðslistum eða menningarstarfi? Dansverkstæðið leitar að sjálfstæð...
14/08/2026

Starfsnám hjá Dansverkstæðinu

Hefur þú áhuga á dansi, sviðslistum eða menningarstarfi? Dansverkstæðið leitar að sjálfstæðum starfsnema sem vill öðlast reynslu af viðburðahaldi, verkefnastjórnun, kynningu og rekstri menningarstofnunar.

Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst.

Kynntu þér stöðuna og sæktu um!

14/08/2026

Langar þig í starfsþjálfun í haust? Kynntu þér stöðurnar sem eru í boði!

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Ertu að fara að byrja í viðskiptafræði? Komdu á móttöku nýnema föstudaginn 21. ágúst kl. 13 í Stóra sal Háskólabíós.Við ...
10/08/2026

Ertu að fara að byrja í viðskiptafræði?

Komdu á móttöku nýnema föstudaginn 21. ágúst kl. 13 í Stóra sal Háskólabíós.

Við hlökkum til að taka á móti þér!

Address

Sæmundargötu 2
Reykjavík
102

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share