Executive MBA í Háskóla Íslands

Executive MBA í Háskóla Íslands Executive MBA námið í Háskóla Íslands er hagnýtt meistaranám fyrir stjórnendur og sérfræðinga.

MBA-námið er tveggja ára hagnýtt meistaranám fyrir stjórnendur og sérfræðinga.

Skemmtilegur og lærdómsríkur dagur Executive MBA-nema í áfanganum Stafræn markaðssetning í umsjón Þórunnar Ingu Ingjalds...
27/08/2026

Skemmtilegur og lærdómsríkur dagur Executive MBA-nema í áfanganum Stafræn markaðssetning í umsjón Þórunnar Ingu Ingjaldsdóttur.

Lögð var áhersla á að tengja fræðin við raunverulegar áskoranir stjórnenda og þau tækifæri sem felast í öflugu og markvissu markaðsstarfi.

Við fengum góða gesti úr atvinnulífinu, þau Önnu Regínu Björnsdóttur, forstjóra Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi og Sigurð Má Sigurðsson frá Velora.

Anna Regína deildi reynslu sinni og innsýn úr rekstri og stjórnun en hún hefur gegnt fjölbreyttum stjórnunarstöðum innan fyrirtækisins, meðal annars á sviði sölu og fjármála, áður en hún tók við starfi forstjóra árið 2023. Sérstaklega áhugavert að fá hennar sjónarhorn á vörumerki og markaðsmál en Coca-Cola er eitt þekktasta vörumerki heims og starfar á afar samkeppnishörðum neytendamarkaði.

Sigurður Már fjallaði um gervigreind og hagnýta nýtingu hennar í markaðsstarfi. Þar var sjónum beint að þeim fjölmörgu tækifærum sem tæknin skapar en jafnframt þeim áskorunum og álitaefnum sem stjórnendur þurfa að vera meðvitaðir um.

Dagurinn endurspeglaði þannig vel það sem við viljum leggja áherslu á í Executive MBA-náminu: að tengja fræðilega þekkingu, reynslu úr atvinnulífinu og ný verkfæri við raunverulegar áskoranir stjórnenda.

Við þökkum Önnu Regínu og Sigurði Má fyrir þeirra framlag.

„MBA-námið í HÍ hefur gert mig að heildstæðari og beittari stjórnanda.“
26/08/2026

„MBA-námið í HÍ hefur gert mig að heildstæðari og beittari stjórnanda.“

Fjölbreyttur og fræðandi kennsludagur í áfanganum Leiðtogar og sjálfbærni hjá nemendum á öðru ári. 🌍Sara Júlía Baldvinsd...
24/08/2026

Fjölbreyttur og fræðandi kennsludagur í áfanganum Leiðtogar og sjálfbærni hjá nemendum á öðru ári. 🌍

Sara Júlía Baldvinsdóttir, sjálfbærnisérfræðingur hjá KPMG, fór yfir sjálfbærniregluverk er snertir fyrirtæki í Evrópu og á Íslandi.

Hrafnhildur Bragadóttir, lögfræðingur, sérhæfð í loftslagsrétti, sjálfstætt starfandi ráðgjafi og doktorsnemi við Lagadeild HÍ fræddi nemendur um viðskiptakerfi Evrópusambandsins. Hún fór m.a. yfir losunarheimildir (EU ETS), tilgang þess, virkni og stöðu Íslands í því samhengi.

Ágústa Þóra Jónsdóttir aðjúnkt við Háskólann Bifröst og Aðalsteinn Leifsson ráðgjafi og fyrrverandi Ríkissáttasemjari, stýrðu svokölluðum Loftslagsleikum fyrir hópinn (En-ROADS vinnustofu) þar sem nemendur stigu inn í hlutverk ríkisstjórna og hagsmunasamtaka með það verkefni að semja um loftslagsaðgerðir sem hægja á hamfarahlýnun jarðar.

Með En-Roads hermilíkaninu geta nemendur prófað mismunandi aðgerðir og séð áhrif þeirra á loftslagsmarkmið og hagvöxt í rauntíma. Þannig fá þeir að takast á við áskoranir sem einkenna loftslagsviðræður, þar sem ólíkir hagsmunir takast á og spurningin er hvaða aðgerðir skili raunverulegum ávinningi. Vinnustofan sameinar þannig marga þætti stjórnunar eins og samningatækni, stefnumótun, kerfishugsun og sjálfbærni, og færir raunverulegar áskoranir nútímans inn í kennslustofuna.

Við þökkum Söru Júlíu, Hrafnhildi, Ágústu Þóru og Aðalsteini kærlega fyrir fræðandi og gagnlegt framlag til MBA-námsins.

Engilbert nýr framkvæmdastjóri Nice Travel, segir MBA-námið hafa nýst vel í nýju hlutverki. Í sumar bárust fréttir af þv...
24/08/2026

Engilbert nýr framkvæmdastjóri Nice Travel, segir MBA-námið hafa nýst vel í nýju hlutverki.

Í sumar bárust fréttir af því að hópur fjárfesta hefði gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Nicetravel ehf. Engilbert Hafsteinsson leiddi hóp fjárfestanna og tók jafnframt við starfi framkvæmdastjóra félagsins.

Engilbert Hafsteinsson Betti útskrifaðist með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2024.

Aðspurður um hvernig námið hefðist nýst honum í þessu ferli segir
Engilbert

„MBA-námið hefur nýst mér gríðarlega vel, ekki síst í ferlinu við fjárfestinguna í Nicetravel og við það að fá sterkan hóp fjárfesta með mér í verkefnið. Námið styrkti mig í að horfa á tækifærið frá fleiri sjónarhornum en ég hefði annars gert og taka upplýstari ákvarðanir. Ég finn líka að það hefur mótað enn frekar sýn mína á hvernig ég vil leiða Nicetravel inn í framtíðina og mun án efa nýtast mér mikið í starfi mínu sem framkvæmdastjóri.“

Lokaverkefni Engilberts í MBA-náminu nýttist vel því margir þeirra sem komu að verkefninu höfðu lesið ritgerðina og þekktu því vel sýn hans og nálgun á verkefni af þessu tagi.

Við óskum Engilberti velfarnaðar í nýju starfi 💫

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2026/07/07/hopur_fjarfesta_kaupir_nicetravel/

Við óskum Ástu Dís Óladóttur, prófessor og stjórnarformanni MBA-námsins við Háskóla Íslands, innilega til hamingju með k...
20/08/2026

Við óskum Ástu Dís Óladóttur, prófessor og stjórnarformanni MBA-námsins við Háskóla Íslands, innilega til hamingju með kjörið í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, sem greint var frá í fjölmiðlum í dag.

Ásta Dís býr yfir umfangsmikilli reynslu af stjórnarstörfum og hefur setið í stjórnum tuga almennra fyrirtækja, stofnana og eftirlitsskyldra aðila. Sú reynsla skilar sér einnig beint inn í MBA-námið.

Í vetur kennir hún námskeiðið Ábyrgð og áhrif stjórnarmanna, í samstarfi við sérfræðinga Deloitte, þar sem fjallað verður um raunverulegt hlutverk stjórna, ábyrgð stjórnarmanna og hvernig öflug stjórnarvinna getur haft áhrif á stefnu, rekstur og framtíð fyrirtækja.

Til hamingju með kjörið Ásta Dís Óladóttir👏

Nemendur á öðru ári eru nú í lotu s*x þar sem áfangarnir Stafræn markaðssetning og Leiðtogar og sjálfbærni eru kenndir. ...
20/08/2026

Nemendur á öðru ári eru nú í lotu s*x þar sem áfangarnir Stafræn markaðssetning og Leiðtogar og sjálfbærni eru kenndir.

Námskeiðið Stafræn markaðssetning fjallar m.a. um stefnumótandi markaðsstarf, vörumerkjastjórnun, stafræna markaðssetningu og upplifun viðskiptavina með áherslu á hvernig gögn, stafrænir miðlar og gervigreind nýtast til að ná betur til markhópa.

Nemendur fá jafnframt innsýn í B2B markaðssetningu, CRM og fá til sín sérfræðinga úr atvinnulífinu sem miðla reynslu sinni og þekkingu.

Umsjónarkennari er Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður Trygginga á einstaklingssviði hjá Landsbankanum.

Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Síríusar, hélt fyrsta gestafyrirlestur dagsins þar sem hún kynnti m.a. samstarf Nóa Síríusar og MBA-námsins á hópaverkefni sem byggir á raunverulegu viðfangsefni fyrirtækisins.

Seinni gestafyrirlesari dagsins var Edda Hermannsdóttir, forstjóri Lyfja og heilsu. Edda sagði frá umfangsmiklu umbreytingarferli fyrirtækisins í markaðsmálum og ræddi þær áskoranir og tækifæri sem fylgja slíkum breytingum.

Við þökkum Sigríði Hrefnu og Eddu kærlega fyrir þeirra framlag í MBA-námið.

Námskeiðið Leiðtogar og sjálfbærni er kennt í lotu s*x á öðru ári MBA-námsins. Umsjónarkennari er Tinna Hallgrímsdóttir,...
20/08/2026

Námskeiðið Leiðtogar og sjálfbærni er kennt í lotu s*x á öðru ári MBA-námsins. Umsjónarkennari er Tinna Hallgrímsdóttir, fyrrverandi sérfræðingur í loftslagsáhættu og sjálfbærni hjá Seðlabanka Íslands.

Námskeiðið fjallar um breytt rekstrarumhverfi fyrirtækja og auknar kröfur um sjálfbærni, samfélagslega ábyrgð og upplýsingagjöf. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist bæði fræðilegan skilning og hagnýtar aðferðir til að takast á við þessi viðfangsefni í eigin störfum.

Tveir gestafyrirlesarar fluttu erindi á fyrsta kennsludegi áfangans sl. laugardag.

Ástþór Helgason, yfirmaður fasteigna og sýningaframkvæmda Norræna hússins og MBA 2026, fjallaði um lokaverkefni sitt úr MBA-náminu, þar sem hann skoðaði hvernig samþætta megi sjálfbærni, vernd og rekstur Norræna hússins.

Gunnar Sveinn Magnússon, fyrrverandi meðeigandi og yfirmaður sjálfbærni- og loftslagsmála hjá Deloitte Íslandi, fór yfir þróun í umræðu og regluverki sem tengist sjálfbærni fyrirtækja. Þá fjallaði hann einnig um þann ávinning sem getur falist í markvissri innleiðingu samfélagsábyrgðar.

Við þökkum Ástþóri og Gunnari Sveini kærlega fyrir þeirra framlag til námsins

MBA-árgangur 2028 hóf nám sitt um helgina og ríkti mikil eftirvænting meðal nemenda. Hópurinn samanstendur af 23 reynslu...
18/08/2026

MBA-árgangur 2028 hóf nám sitt um helgina og ríkti mikil eftirvænting meðal nemenda. Hópurinn samanstendur af 23 reynslumiklum stjórnendum úr fjölbreyttum greinum atvinnulífsins.

Rektor Háskóla Íslands - Silja Bára Ómarsdóttir, bauð nemendur velkomna áður en Gestur K. Pálmason, MBA 2022 og markþjálfi, leiddi vinnustofu um persónulega færni og hópefli. Deginum lauk svo með haustfagnaði MBA-nemenda þar sem árgangarnir tveir hittust, deildu reynslu og styrktu tengslin.

Framundan er spennandi vegferð þar sem ólík reynsla, þekking og sjónarhorn fá að njóta sín.

Við hlökkum til að kynnast árgangi MBA 2028.

Silja Bára, rektor HÍ, kom og bauð MBA árgang 2028 hjartanlega velkomin í námið.
17/08/2026

Silja Bára, rektor HÍ, kom og bauð MBA árgang 2028 hjartanlega velkomin í námið.

Velkomin í MBA-námið árgangur 2028🎓✨Í dag tókum við á móti nýjum MBA-nemendum og buðum jafnframt MBA árgang 2027 velkomi...
14/08/2026

Velkomin í MBA-námið árgangur 2028🎓✨

Í dag tókum við á móti nýjum MBA-nemendum og buðum jafnframt MBA árgang 2027 velkominn aftur til náms.

Framundan er spennandi námsár þar sem árgangarnir tveir takast á við nýjar áskoranir, deila reynslu og byggja áfram upp öflugt MBA-samfélag.

Við hlökkum til vetrarins með þessum frábæra hópi!

Address

Sæmundargata 10
Reykjavík
102

Telephone

+3545254000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Executive MBA í Háskóla Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Executive MBA í Háskóla Íslands:

Shortcuts

Share