Félagsvísindasvið Háskóla Íslands

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands Félagsvísindasvið er eitt fimm fræðasviða við Háskóla Íslands.

Félagsvísindasvið er stærsta fræðasvið Háskóla Íslands og býður upp á fjölda námsleiða í sex deildum: Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild, Félagsráðgjafardeild, Hagfræðideild, Lagadeild, Stjórnmálafræðideild og Viðskiptafræðideild. Námið er fjölbreytt og mikill sveigjanleiki gefur nemendum kost á að taka aðal- og aukagrein eða sérhæfa sig innan þeirrar greinar sem þeir kjósa að innrita sig

í. Nemendum í þeim greinum sem kenndar eru við sviðið fjölgar stöðugt, enda eykst eftirspurnin eftir fólki með menntun í félagsvísindum sífellt. Nám í félagsvísindum undirbýr stúdenta undir afar fjölbreytt störf, t.d. í fjölmiðlum, í opinbera geiranum, í alþjóðasamskiptum, bönkum og fjármálafyrirtækjum, lögfræðistofum og ráðgjafarfyrirtækjum, svo fátt eitt sé nefnt. Kennarar við félagsvísindasvið eru færustu fræðimenn í sínu fagi og miklar kröfur eru gerðar til kennara og nemenda. Fjallað er um viðfangsefni félagsvísindanna á frjóan og gagnrýninn hátt og krafist er virkrar þátttöku nemenda. Margir nemendur af félagsvísindasviði hafa lokið framhaldsnámi við framúrskarandi skóla erlendis og það hefur sýnt sig að grunnnám við Háskóla Íslands er frábær undirbúningur undir framhaldsnám úti um allan heim.

14/08/2026

Starfsþjálfun er ekki aðeins fyrir nemendur í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Kannaðu hvort deildin þín samþykkir ekki starfsþjálfunina sem valnámskeið hjá þér. Ef þú hefur áhuga, sendu póst á við[email protected] og kannaðu málið.

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

12/08/2026

Stjarneðlisfræðingar og eðlisfræðingar við Háskóla Íslands bjóða áhugasömum að njóta sólmyrkvans í skeifunni við Aðalbyggingu á morgun, 12. ágúst, en þar munu þeir reiða fram fróðleik og svara spurningum sem kunna að brenna á fólki um þetta fyrirbrigði.

Nánar í athugasemdum.

---

Astrophysicists and Physicists at the University of Iceland invite people to join them to enjoy the Total Solar Eclipse on the lawn in front of the University of Iceland´s Main Building, where they will share insights and answer questions about the eclipse.

More in comments

Nú fer að styttast í almyrkvann!Hvar ætlar þú að vera? Og ertu með sólmyrkvagleraugun klár?Ari Ólafsson útskýrir hvernig...
10/08/2026

Nú fer að styttast í almyrkvann!

Hvar ætlar þú að vera? Og ertu með sólmyrkvagleraugun klár?

Ari Ólafsson útskýrir hvernig best er að vernda augun á Vísindavefnum:

Nú er aðeins vika í sólmyrkvann. Ef þú ætlar að horfa til himins er mikilvægt að vera með réttu gleraugun á nefinu!

Vísindavefurinn hugar að augnvernd í pistli sínum og varar við heimagerðum lausnum.

👇
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=69651

06/08/2026

Opnað hefur verið fyrir móttöku ágripa á 27. Ráðstefnu Þjóðarspegilsins sem haldin verður 30. október 2026 í húsakynnum Háskóla Íslands.

Senda skal ágrip í gegnum heimasíðu ráðstefnunnar: [https://thjodarspegillinn.hi.is/radstefna/]

Þjóðarspegillinn er árleg ráðstefna Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands og mikilvægur vettvangur fyrir miðlun þekkingar og nýsköpun.

Ráðstefnan er opin öllum og er hugsuð sem lifandi samtal við samfélagið innan sem utan veggja háskólans.

Nýnemar á Félagsvísindasviði, verið hjartanlega velkomin í Háskóla Íslands 💙Móttaka nýnema fer fram föstudaginn 21. ágús...
27/07/2026

Nýnemar á Félagsvísindasviði, verið hjartanlega velkomin í Háskóla Íslands 💙

Móttaka nýnema fer fram föstudaginn 21. ágúst kl. 13:00 í Stóra sal Háskólabíós. Þar fáið þið gagnlegar upplýsingar, kynnist þjónustu HÍ og farið svo í kynningu hjá ykkar fræðigrein.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur!

Nánari upplýsingar á hi.is
https://hi.is/felagsvisindasvid/mottaka_nynema

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Frá og með 1. júlí hafa nýir deildarforsetar og varadeildarforsetar tekið við störfum í nokkrum deildum sviðsins:• Þórod...
02/07/2026

Frá og með 1. júlí hafa nýir deildarforsetar og varadeildarforsetar tekið við störfum í nokkrum deildum sviðsins:

• Þóroddur Bjarnason tekur við sem forseti Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideildar og Ragna Kemp Haraldsdóttir verður varadeildarforseti.
• Freydís Freysteinsdóttir verður forseti Félagsráðgjafardeildar og Kolbeinn H. Stefánsson varadeildarforseti.
• Stefanía Óskarsdóttir tekur við sem forseti Stjórnmálafræðideildar og Hulda Þórisdóttir verður varaforseti.
• Fyrr á árinu tók Ásta Dís Óladóttir við sem forseti Viðskiptafræðideildar og Gylfi Dalmann Aðalsteinsson er þar varaforseti.

Við óskum þeim öllum velfarnaðar í nýjum hlutverkum og hlökkum til áframhaldandi uppbyggingar öflugs náms og rannsókna á Félagsvísindasviði.

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands er komin á Instagram.Þar verður hægt að fylgjast með helstu fréttum, viðburðum, nám...
30/06/2026

Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands er komin á Instagram.

Þar verður hægt að fylgjast með helstu fréttum, viðburðum, námsframboði, rannsóknum og mannlífi deildarinnar.

Við hvetjum nemendur, starfsfólk, brautskráða nemendur og öll áhugasöm til að fylgja síðunni.

0 Followers, 0 Following, 4 Posts - See Instagram photos and videos from Félagsráðgjafardeild HÍ ()

Til hamingju, starfsfólk og stúdentar Háskóla Íslands um allt land og íslenskt samfélag!
30/06/2026

Til hamingju, starfsfólk og stúdentar Háskóla Íslands um allt land og íslenskt samfélag!

Address

Gimli V/Sæmundargötu Reykjavík
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00

Telephone

+3545254500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félagsvísindasvið Háskóla Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share