Lyfjafræðideild HÍ

Lyfjafræðideild HÍ Faculty of Pharmaceutical Sciences, University of Iceland.

Fimmtudaginn 3. september ver Kristrún Ýr Holm doktorsritgerð sína í heilbrigðisvísindum við Lyfjafræðideild Háskóla Ísl...
27/08/2026

Fimmtudaginn 3. september ver Kristrún Ýr Holm doktorsritgerð sína í heilbrigðisvísindum við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Leit að lífmerkjum í blóðvökva fyrir greiningu brjóstakrabbameina. Search for novel biomarkers in human plasma for breast cancer diagnosis.

Andmælendur eru dr. John R Yates, III prófessor við The Scripps Research Institute, og dr. Julia Debik, dósent við NTNU (Norwegian University of Science and Technology).

Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Margrét Þorsteinsdóttir, prófessor og leiðbeinandi var Sigríður Klara Böðvarsdóttir, forstöðumaður. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd Margrét Helga Ögmundsdóttir, prófessor, Óttar Rolfsson, prófessor, Stefán Sigurðsson, prófessor og Zoltan Takats, prófessor.

Berglind Eva Benediktsdóttir, dósent og deildarforseti Lyfjafræðideildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13.00.

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Miðvikudaginn 19. ágúst varði Ismael Abo Horan doktorsverkefni sitt í lyfjavísindum við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands....
26/08/2026

Miðvikudaginn 19. ágúst varði Ismael Abo Horan doktorsverkefni sitt í lyfjavísindum við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands.
Ritgerðin hans bar heitið: Sjálfmyndandi nanóagnir fyrir lyfjagjöf til bakhluta augans. Self-assembled nanocarriers technology: Drug delivery to the posterior segment of the eye.
Andmælendur voru dr. René Holm, prófessor við Syddansk Universitet í Odense, og dr. Sveinn Hákon Harðarson, dósent við Læknadeild Háskóla Íslands.
Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Hákon Hrafn Sigurðsson, prófessor. Auk hans sátu í doktorsnefnd Carmen Alvarez-Lorenzo, prófessor, Paolo Gasco og Sara Nicoli, prófessor.

Við óskum Ismael innilega til hamingju með áfangann!

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Mælum heilshugar með hlustun á hlaðvarpið "Rannsóknarháskóli verður til" sem er aðgengilegt á hlaðvarpsveitum, í þættinu...
12/08/2026

Mælum heilshugar með hlustun á hlaðvarpið "Rannsóknarháskóli verður til" sem er aðgengilegt á hlaðvarpsveitum, í þættinum sem tileinkað er lyfjafræði er rætt við Kristínu Ingólfsdóttur og Þorstein Loftsson um tilurð kennslu í lyfjafræði við Háskóla Íslands.

https://open.spotify.com/episode/5TgB8ZBVzCndtm2Cz0nwUN?si=8df07f7393654272

Rannsóknaháskóli verður til · Episode

Hvert fara lyfin sem við notum? Stór hluti lyfja sem notuð eru af sjúklingum skiljast óbreytt eða sem virk umbrotsefni ú...
08/07/2026

Hvert fara lyfin sem við notum? Stór hluti lyfja sem notuð eru af sjúklingum skiljast óbreytt eða sem virk umbrotsefni út í fráveitukerfi landsins. Þessi efnasambönd berast í vatnsumhverfi okkar og geta þar haft skaðleg áhrif á lífríkið. En hvað getum við gert sem heilbrigðisstarfsfólk? Þessari spurningu er velt upp í grein Freyju Jónsdóttur, dósents, og Arndísar Sue Ching Löve, lektors, við Lyfjafræðideild ásamt Salóme Ástu Arnardóttur og Hjalta Má Björnssyni. Í greininni eru lagðar fram tillögur að því hvernig læknar geta stuðlað að sjálfbærri lyfjanotkun í þeim tilgangi að lágmarka umhverfisáhrif.

Lyf eru algengasta og í mörgum tilfellum árangursríkasta meðferð við sjúkdómum. Talið er að lyfjanotkun muni aukast áfram á næstu árum, meðal annars vegna fjölgunar eldri einstaklinga. Samhliða hefur þekking á umhverfisáhrifum lyfja aukist og vaxandi umræða er um að læknar h...

Í nýlegri rannsókn, þeirri fyrstu á viðhorfum íslenskra lækna til umhverfisáhrifa lyfja, kemur fram að tæplega þrír af h...
01/07/2026

Í nýlegri rannsókn, þeirri fyrstu á viðhorfum íslenskra lækna til umhverfisáhrifa lyfja, kemur fram að tæplega þrír af hverjum fjórum (73%) læknum telja umhverfis- og loftslagsmál mikilvæg. Er því ljóst að meirihluti íslenskra lækna hefur meðtekið mikilvægi boðskaps Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar um „Einnar heilsu nálgun“, að heilbrigt umhverfi sé lykilatriði til að halda heilsu. Rannsóknin var unnin af Hjalta Má Björnssyni, dósent við Læknadeild, Freyju Jónsdóttur, dósent við Lyfjafræðideild, Salóme Ástu Arnardóttur heimilislækni og Johanna Villén lyfjafræðingi.
Sjá nánar í meðfylgjandi frétt

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Fyrr í þessum mánuði var Dr. Berglind Eva Benediktsdóttir, deildarforseti Lyfjafræðideildar, heiðruð af Evrópskum samtök...
29/06/2026

Fyrr í þessum mánuði var Dr. Berglind Eva Benediktsdóttir, deildarforseti Lyfjafræðideildar, heiðruð af Evrópskum samtökum lyfjafræðideilda (European Association of Faculties of Pharmacy, EAFP), á árlegri ráðstefnu EAFP í Tartu, fyrir framúrskarandi framlag sitt til menntunar lyfjafræðinga í Evrópu. EAFP ráðstefnan er mikilvægur vettvangur akadmemísks starfsfólks sem sinnir menntun verðandi lyfjafræðinga og er þátttaka starfsfólks Lyfjafræðideildar HÍ því mikilvægur hlekkur í að fylgjast með stefnum og straumum í lyfjafræðimenntun í Evrópu.
Berglind vill deila þessum heiðri með samstarfsfólki sínu við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands og öðrum samstarfsaðilum, enda er sá árangur sem viðurkenningin byggir á afrakstur öflugs samstarfs og sameiginlegrar vinnu margra.

Lyfjafræðideild leitar að verkefnastjóra á rannsóknarstofur, sjá nánar hér:
26/06/2026

Lyfjafræðideild leitar að verkefnastjóra á rannsóknarstofur, sjá nánar hér:

Við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands er laust til umsóknar fullt starf verkefnastjóra á rannsóknastofum deildarinnar. Við Lyfjafræðideildina fer fram nám, kennsla og rannsóknir á sviði lyfjafræði og lyfjavísinda. Verkefnastjórinn gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri ...

Starfsfólk Lyfjafræðideildar minnist Þórdísar Kristmundsdóttur, fyrrum prófessors í lyfjafræði við Háskóla Íslands, sem ...
15/06/2026

Starfsfólk Lyfjafræðideildar minnist Þórdísar Kristmundsdóttur, fyrrum prófessors í lyfjafræði við Háskóla Íslands, sem lést þann 11. júní síðastliðinn.
Þórdís var brautryðjandi á sviði Lyfjafræði á Íslandi og önnur konan sem skipuð var prófessor við Háskóla Íslands. Gegndi hún lykilhlutverki í uppbyggingu Lyfjafræðideildar Háskóla Íslands. Framlag Þórdísar til rannsókna, kennslu og þróunar á lyfjafræði sem fræðigrein hér á landi var ómetanlegt og gegndi hún fjölmörgum trúnaðar- og forystustörfum á þeim vettvangi.
Við þökkum Þórdísi fyrir hennar merka framlag til vísinda, menntunar og samfélagsins alls og sendum við aðstandendum hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Þórdís Kristmundsdóttir, fyrrverandi prófessor í lyfjafræði við Háskóla Íslands, lést sl. fimmtudag, 11. júní. Þórdís var fædd 13. nóvember 1948.

11/06/2026

Glæsilegur árangur starfsfólks Lyfjafræðideildar í úthlutun Tækniþróunarsjóðs Rannís:
Lyfjafræðideild Háskóla Íslands óskar starfsfólki deildarinnar innilega til hamingju með þann árangur að hljóta styrki úr Tækniþróunarsjóði Rannís. Styrkirnir styðja við öflugt rannsóknar- og nýsköpunarstarf innan deildarinnar og munu stuðla að frekari framþróun á sviði lyfjaþróunar, líftækni og heilbrigðisvísinda.
Hagnýt rannsóknarverkefni
• PUREV: Þróun á sértæku og skalanlegu skiljuferli fyrir framleiðslu á erfðabreyttum utanfrumubólum – verkefnið er leitt af Dr. Jens Guðmundi Hjörleifssyni, Dr. Berglindi Evu Benediktsdóttur og Dr. Páli Þór Ingvarssyni. Markmið verkefnisins er að þróa nýja tækni sem getur einfaldað og bætt framleiðslu utanfrumubóla til framtíðarnota í greiningu og meðferð sjúkdóma.
• Staðbundin meðferð við handaslitgigt – verkefnið er leitt af Dr. Bergþóru Sigríði Snorradóttur og miðar að þróun nýrra meðferðarmöguleika fyrir einstaklinga sem glíma við handaslitgigt.
Markaðsþróunarverkefni
• BIOSIL-M – verkefnið er leitt af Dr. Vivien Nagy og Dr. Má Mássyni og hlaut styrk til markaðsþróunar.

Verkefnið “Nýtt lyf við meðferð á Psoriasis - Rannsókn á öryggi og verkun NS01 í mönnum” fékk styrk til að hefja undirbúning á fasa I/IIa rannsókn en Lyfjafræðideild og Hákon Hrafn Sigurðsson hafa unnið með Nepsone í þessu verkefni undanfarin ár.

Við óskum öllum styrkþegum innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með framgangi verkefnanna og þeim áhrifum sem þau munu hafa á rannsóknir, nýsköpun og samfélagið.

Liðið Lyfjaform innan Lyfjafræðideildar Háskóla Íslands, skipað þeim Berglindi Evu Benediktsdóttur, Elvari Erni Viktorss...
10/06/2026

Liðið Lyfjaform innan Lyfjafræðideildar Háskóla Íslands, skipað þeim Berglindi Evu Benediktsdóttur, Elvari Erni Viktorssyni og Hákoni Hrafni Sigurðssyni, bar sigur úr býtum í keppninni Hjólað í vinnuna innan HÍ í flokki liða með hlutfallslega flesta hjólaða kílómetra.
Verðlaunin voru afhent á vorfagnaði Háskóla Íslands í síðustu viku, þar sem Elvar Örn tók við viðurkenningunni fyrir hönd liðsins. Jafnframt sigraði Stjórnsýsla HVS, lið skipað s*x starfsmönnum, í keppninni um hlutfallslega flesta þátttökudaga.

Árangurinn endurspeglar þann kraft og metnað sem starfsfólk HÍ sýnir í að velja virka samgöngumáta í daglegu lífi. Lyfjafræðideild óskar verðlaunahöfum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og vonast til að hann verði öðrum hvatning til að hjóla, ganga eða nýta aðra virka ferðamáta til og frá vinnu.

Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa sigurliðanna tveggja, Guðrúnu Björk Friðriksdóttur og Elvar Örn Viktorsson, ásamt rektor Háskóla Íslands.

Address

Hofsvallagata 53
Reykjavík
107

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00
Friday 10:00 - 15:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lyfjafræðideild HÍ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Lyfjafræðideild HÍ:

Shortcuts

Share