Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ

Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðifræðideild annast kennslu og rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði. Boðið er upp á grunn- og framhaldsnám í hjúkrunarfræði.

Hjúkrunarfræðideild annast kennslu og rannsóknir í hjúkrunarfræði og ljósmóðurfræði.

Myndir frá námskeiði um sjálfbærni í heilbrigðisþjónustu sem haldið var í Kaupmannahöfn síðastliðið vor. Fjórir nemendur...
03/09/2026

Myndir frá námskeiði um sjálfbærni í heilbrigðisþjónustu sem haldið var í Kaupmannahöfn síðastliðið vor. Fjórir nemendur frá Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild tóku þátt ásamt tveimur kennurum.

Við vinnum markvisst að því að efla alþjóðlegt samstarf og bjóða bæði grunn- og framhaldsnemendum fjölbreytt tækifæri til að sækja námskeið erlendis.

Nýlokið er alþjóðlega námskeiðinu Empathic Communication, sem haldið var við Malmö-háskóla. Fimm nemendur frá Háskóla Ís...
02/09/2026

Nýlokið er alþjóðlega námskeiðinu Empathic Communication, sem haldið var við Malmö-háskóla. Fimm nemendur frá Háskóla Íslands tóku þátt ásamt nemendum frá Svíþjóð, Grikklandi og Írlandi.

Á námskeiðinu var meðal annars unnið með samkennd, samskipti, núvitund og menningarlæsi. Nemendurnir komu heim ánægðir og reynslunni ríkari eftir bæði faglegt og skemmtilegt samstarf. Námskeiðið verður væntanlega endurtekið á næsta ári og vonandi fá þá fleiri nemendur tækifæri til þátttöku. 🌍

09/07/2026

BirthSAGA er verkefni Emmu Marie Swift, prófessors í ljósmóðurfræði við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ og Helgu Zoega, prófessors í lýðheilsuvísindum við Læknadeild HÍ, þar sem þær skoða áföll í æsku og fæðingarupplifun og birtist fyrsta grein í tengslum við verkefnið í fyrra.

Nú var að birtast önnur grein úr verkefninu þar sem þær skoða fjölda inngripa í fæðingu og fæðingarupplifun.

Greinin er birt í opnum aðgangi og hana má nálgast hér:

02/07/2026

Fjörutíu akademískir starfsmenn af öllum fimm fræðasviðum Háskóla Íslands hafa fengið framgang í starfi að undangengnu ítarlegu faglegu mati á vegum dóm- og framgangsnefnda fræðasviða skólans.

Að þessu sinni fá 14 starfsmenn framgang í starf prófessors, 25 í starf dósents og einn í stöðu rannsóknadósents.

Í þeim hópi eru þrjár starfandi við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild en það eru þær Berglind Hálfdánsdóttir í starf prófessors, Emma Marie Swift í starf prófessors og Sigrún Sunna Skúladóttir í starf dósents.

Við óskum þeim innilega til hamingju!

📸 Tækjadagar Landspítala – hluti af móttökudögum nýs starfsfólks.1️⃣ Fyrsta myndin sýnir hvernig það gæti verið að eldas...
05/06/2026

📸 Tækjadagar Landspítala – hluti af móttökudögum nýs starfsfólks.
1️⃣ Fyrsta myndin sýnir hvernig það gæti verið að eldast á einni nóttu – öldrunarbúningurinn sló í gegn og vakti bæði hlátur og umhugsun.
2️⃣ Á næstu mynd er næsýni af thoraxdreni. Kannski ekki það fyrsta sem fólk tekur selfie með, en afar mikilvægt tæki þegar á reynir.
3️⃣ Þriðja myndin sýnir ómun í notkun – tækni sem gerir okkur kleift að sjá meira en augað eitt greinir.
Og svo er það kennarinn sem bíður spenntur eftir nemendum, umkringdur ýmsum gerðum af thoraxdrenum, tilbúinn að miðla þekkingu, reynslu og kannski einni eða tveimur góðum sögum úr klíníkinni.
Fræðsla, forvitni, tæki og tól – og ekki síst gott fólk. Svona hefst nýtt ævintýri á Landspítala. 👩‍⚕️👨‍⚕️

29/05/2026

Kynningar brautskráningarnema á MS lokaverkefnum sínum í ljósmóðurfræði til starfsréttinda.

Nokkrar svipmyndir frá ráðstefnu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar, Rannsóknir í ljósmóðurfræði -horft til framtíðar, ...
29/05/2026

Nokkrar svipmyndir frá ráðstefnu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar, Rannsóknir í ljósmóðurfræði -horft til framtíðar, þar sem brautskráningar nemendur úr ljósmóðurfræði til starfsréttinda kynntu MS loka verkefni sín.

Í gær kynntu brautskráningarnemar úr ljósmóðurfræði til starfsréttinda MS lokaverkefni sín. Við óskum þeim öllum velfarn...
29/05/2026

Í gær kynntu brautskráningarnemar úr ljósmóðurfræði til starfsréttinda MS lokaverkefni sín. Við óskum þeim öllum velfarnaðar í leik og starfi.

Í dag fór Philip Amnyire í heimsókn að Laugarás þar sem Svandís Birna Bjarnadóttir kynnti fyrir honum starfsemi geðdeild...
28/05/2026

Í dag fór Philip Amnyire í heimsókn að Laugarás þar sem Svandís Birna Bjarnadóttir kynnti fyrir honum starfsemi geðdeildarinnar og þjónustuna sem þar er veitt um 120 einstaklingum. Það vekur athygli að Philip er annar af aðeins tveimur geðhjúkrunarfræðingum í Úganda með meistaragráðu í geðhjúkrun.

Address

Eirberg, Eiríksgata 34
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 14:00
Tuesday 09:00 - 14:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00
Friday 09:00 - 14:00

Telephone

+3545254960

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ:

Shortcuts

Share