Rannsóknasetur um norðurslóðir

Rannsóknasetur um norðurslóðir Rannsóknasetur um norðurslóðir er vettvangur fyrir þverfaglegt samstarf á sviði norðurslóð

[See in English below]Rannsóknasetur um norðurslóðir er vettvangur fyrir þverfaglegt samstarf á sviði norðurslóðarannsókna með áherslu á hlutverk ríkja, stofnana og óopinbera aðila í stjórnarháttum, menningu og samfélagi á norðurslóðum. Setrið starfar innan Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
[ENGLISH] The Centre for Arctic Policy Studies (CAPS) is a forum for interdisciplinary collaboration in

the field of Arctic research with emphasis on the role and policies of states and institutions, non-state and corporate actors, and broader aspects of governance, culture and society in the High North. CAPS is run under the auspices of the Institute of International Affairs (IIA) at the University of Iceland.

Í síðustu viku ræddi Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknasetri um norðurslóðir, við The Wor...
26/08/2026

Í síðustu viku ræddi Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknasetri um norðurslóðir, við The World í Boston um áætlunarsiglingar Kína um norðurslóðir.

Þau ræddu meðal annars hvað þessi þróun þýðir fyrir vaxandi áhuga Kína á siglingum um Norðurslóðir, hlutverk Rússlands og norðursjóleiðarinnar (Northern Sea Route) sem og þær víðtækari geopólitísku og efnahagslegu forsendur sem móta samstarf Kína og Rússlands á svæðinu.

Viðtalið er í athugasemd fyrir áhugasama.

🌍 Fulltrúar Rannsóknaseturs um norðurslóðir sóttu í síðustu viku UArctic Congress 2026 í Færeyjum, stærstu ráðstefnu sem...
05/06/2026

🌍 Fulltrúar Rannsóknaseturs um norðurslóðir sóttu í síðustu viku UArctic Congress 2026 í Færeyjum, stærstu ráðstefnu sem haldin hefur verið í Færeyjum til þessa, með þátttöku yfir 1.400 gesta víðs vegar að úr heiminum.

Ráðstefnan er haldin af Háskóla norðurslóða (UArctic), sem er alþjóðlegt tengslanet háskóla, rannsóknastofnana og annarra aðila sem starfa að málefnum norðurslóða. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár var Health of People and Oceans in the Arctic.

Á ráðstefnunni kynntu fulltrúar rannsóknasetursins ásamt samstarfsaðilum verkefnið „Sterkari staða norðurslóðarannsókna á Íslandi“, sem unnið er í samstarfi við Háskólann á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands og Rannís. Markmið verkefnisins er að efla samtal, samráð og samstarf innan íslenska rannsóknasamfélagsins um málefni norðurslóða.

Í kynningunni voru dregnar fram helstu niðurstöður þeirra þriggja vinnustofa sem haldnar hafa verið á vegum verkefnisins og fjallað um stöðu og framtíð norðurslóðarannsókna á Íslandi samanborið við önnur ríki á svæðinu.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér:
https://ams.hi.is/is/projects/adlogun-ad-loftslagsbreytingum-og-samfelagsleg-seigla-a-nordurslodum/

Háskólinn á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands / Icelandic Arctic Cooperation Network, RANNÍS

🏆  Við viljum minna á að kallað er eftir tilnefningum fyrir Frederik Paulsen Arctic Academic Action Award.Opið er fyrir ...
22/04/2026

🏆 Við viljum minna á að kallað er eftir tilnefningum fyrir Frederik Paulsen Arctic Academic Action Award.

Opið er fyrir tilnefningar til 30. apríl 2026.

👉 Frekari upplýsingar um umsóknarferlið má finna hér:
https://www.arcticcircle.org/frederik-paulsen-arctic-academic-action-award?fbclid=IwY2xjawRVgKZleHRuA2FlbQIxMABicmlkETFTMTUya05UTTM1WklXRGdKc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHpY823gX0BAYq7MtGoqReoNh7Zcnn8cPCvHUdTRLSC1jjuxcd_ryDnWVk14t_aem_sUvZm5T2h9ZHsl_8wR54Rg

Address

Gimli Sæmundargata
Reykjavík
101

Telephone

+3545255993

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Rannsóknasetur um norðurslóðir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Rannsóknasetur um norðurslóðir:

Shortcuts

Share