27/05/2025
Ný bók um menntun yngstu barnanna var að koma út. "Með nesti og nýja skó" er bæði fáanleg á prenti og á netinu. Hægt er að kaupa staka kafla. Kynnið ykkur þessa.
MEÐ NESTI OG NÝJA SKÓ💡📜
Út er komin ný bók hjá Háskólaútgáfunni sem heitir Með nesti og nýja skó: Greinar um tengsl leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. Jóhanna Einarsdóttir
Prófessor Emeritus við Menntavísindasvið og Björn Rúnar Egilsson, lektor við Menntavísindasvið ritstýra bókinni.
Bókin inniheldur 13 fræðigreinar sem greina frá niðurstöðum rannsókna sem tengjast menntun ungra barna og þáttaskilum leik- og grunnskóla frá ýmsum sjónarhornum. Fjallað er um sögulega þróun leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila á Íslandi. Þá er rannsóknum á sjónarmiðum barna, foreldra, kennara og starfsfólks fístundaheimila gerð skil. Sjónum er beint að starfsháttum og þverfaglegu samstarfi á mótum skólastiga og áhersluþáttum í menntun ungra barna eins og hugmyndum um fullgildi, lýðræði , inngildandi námsrými og skapandi stærðfræði. Þá er fjallað um leiklist og leikræna tjáningu leikskólabarna og rými barna til leiks og áhrifa í ólíku námsumhverfi.
Við óskum Jóhönnu, Birni Rúnari og greinarhöfundur til hamingju með nýja glæsilega bók!