Skipulagsfræði LbhÍ

Skipulagsfræði LbhÍ Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Skipulagsfræði LbhÍ, College & University, Keldnaholt, Reykjavík.

Námsbraut í skipulagsfræði er 2 ára MSc nám. Áhersla er lögð á að samtvinna faglega þætti skipulagsfræðinnar og íslenskar aðstæður með sjálfbæra þróun og sköpun lífvænlegs umhverfis að leiðarljósi.

Í síðustu viku fóru nemendur í námskeiðinu "Borgarhönnun - kenningar og aðferðir" í skipulagsfræði við LbhÍ í vettvangsf...
02/09/2026

Í síðustu viku fóru nemendur í námskeiðinu "Borgarhönnun - kenningar og aðferðir" í skipulagsfræði við LbhÍ í vettvangsferð í umsjón Gunnars Ágústssonar og Jóns Kjartans Ágústssonar. Farið var um gömlu og nýju Reykjavík þar sem efni vettvangsferðarinnar varðaði í stórum dráttum tengsl milli hönnunar borgarrýma og mannlífs og hvernig gömul og jafnvel kuldaleg svæði hafa öðlast nýtt líf með breyttum skipulagsákvæðum.

Dr. Harpa Stefánsdóttir, prófessor í skipulagsfræði við LbhÍ  sótti viku heimsráðsstefnu skipulagsfræðiskóla - WPSC (Wor...
06/07/2026

Dr. Harpa Stefánsdóttir, prófessor í skipulagsfræði við LbhÍ sótti viku heimsráðsstefnu skipulagsfræðiskóla - WPSC (World Planning Schools Congress) í sl. viku, en ráðstefnan var haldin í fyrsta sinn í Evrópu í Helsinki. Þetta var gríðar stór ráðstefna en erindi voru 1200 talsins á 5 dögum í óteljandi samhliða málstofum, og ráðstefnugestir 1500. Ráðstefnan fór að mestu fram í Aalto University, en líka í University of Helsinki. Harpa flutti erindi í sérstakri málstofu um Norrænt skipulag - sem stjórn PLANNORD lagði upp með. Hún stýrði einnig annarri af tveimur málstofunum um Norrænt skipulag. Innan ráðstefnudagskránnar voru ýmsir fundir AESOP (Association of European Schools of Planning) en LbhÍ var tekin inn í regnhlífasamtökin í mars síðastliðnum. Sambærilegir fundir annarra heimsálfufélaga fóru einnig fram ásamt fjölda funda svo sem ritstjórna ýmissa vísindatímarita í faginu og fjölda funda og hringborðsumræðna um hin ýmsu þemu. Allt fjallaði samt um sviðið skipulagsfræði. Nánari upplýsingar má sjá undir einstaka myndum.

Föstudagurinn 8. júní var stór dagur fyrir MS námsbraut í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands en í ár tóku  9 ...
08/06/2026

Föstudagurinn 8. júní var stór dagur fyrir MS námsbraut í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands en í ár tóku 9 nemendur við prófskírteini sínu í skipulagsfræði, sem er veruleg fjölgun frá fyrri árum. Þá vörðu átta nemendur MS-ritgerðir sínar í lok maí og von er á fleiri vörnum um næstu jól.

Þessi árangur er afrakstur markvissrar uppbyggingar námsbrautarinnar á síðustu árum, en umfram allt afrakstur metnaðarfullra og duglegra nemenda sem hafa lagt mikið á sig til að ná markmiðum sínum. Verðlaun frá Skipulagsfræðingafélag Íslands (ef.) fyrir framúrskarandi námsárangur hlaut Magdalena Maria Mokrzan.

Við óskum öllum nýútskrifuðum skipulagsfræðingum innilega til hamingju með áfangann. Jafnframt óskum við starfsstétt skipulagsfræðinga á Íslandi til hamingju með öflugan hóp nýrra fagmanna sem munu án efa leggja sitt af mörkum til skipulagsmála á komandi árum.

Myndin var tekin af útskriftarnemunum og námsbrautarstjóra í Borgarnesi strax eftir útskriftarathöfnina.

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir aðjúnkt í skipulagsfræði er annar tveggja höfunda nýrrar skýrslu LbhÍ um eignarhald á landbún...
05/06/2026

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir aðjúnkt í skipulagsfræði er annar tveggja höfunda nýrrar skýrslu LbhÍ um eignarhald á landbúnaðarlandi. Þar er fjallað um ýmislegt tengt skipulagsmálum í dreifbýli.

Helstu niðurstöður skýrslunnar eru að eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi sé almennt dreift og að erlent eignarhald sé takmarkað. Jafnframt kemur fram að verulegur fjöldi lögbýla er í eigu dánarbúa eða í sameign margra aðila, sem getur torveldað ákvarðanatöku um nýti...

Það var sannkölluð uppskeruhátíð hjá okkur í skipulagsfræðinni í LbhÍ á dögunum þegar átta nemendur kynntu meistaraverke...
02/06/2026

Það var sannkölluð uppskeruhátíð hjá okkur í skipulagsfræðinni í LbhÍ á dögunum þegar átta nemendur kynntu meistaraverkefni sín á opnum vörnum. Fjölbreytt viðfangsefni og áhugaverðar niðurstöður.
Við óskum nemendum til hamingju og þökkum þeim, leiðbeinendum, prófdómurum og gestum fyrir ánægjulegan dag og fróðlegar kynningar og umræður.

Verið velkomin að kynna ykkur meistaranámið í skipulagsfræði á opnum degi á Keldnaholti í Reykjavík þar sem öllum fyrirs...
18/05/2026

Verið velkomin að kynna ykkur meistaranámið í skipulagsfræði á opnum degi á Keldnaholti í Reykjavík þar sem öllum fyrirspurnum um námið verður svarað. Starfsfólk og nemendur verða á staðnum og svara spurningum.

Kynningin er opin öllum og verður 20. maí milli kl 16 og 18:00 á Keldnaholti í Reykjavík.

Verið velkomin að kynna ykkur meistaranámið í skipulagsfræði á opnum degi á Keldnaholti í Reykjavík þar sem öllum fyrirspurnum um námið verður svarað. Starfsfólk og nemendur verða á staðnum og svara spurningum.

Kjósendur telja skipulagsmál mikilvægasta málaflokk sveitarstjórnarkosninganna samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ...
13/05/2026

Kjósendur telja skipulagsmál mikilvægasta málaflokk sveitarstjórnarkosninganna samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ. Skipulagsmál voru í brennidepli í Kastljósi RÚV í gær, þar sem Bergsteinn umsjónarmaður þáttarins ræddi við Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur aðjúnkt við námsbraut LbhÍ í skipulagsfræði um ýmsar hliðar þeirra. Einnig var rætt við Eddu Ívarsdóttur, stundakennara í landslagsarkitektúr við LbhÍ.

Skakkir hvatar í skipulagsferlum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu gera að verkum húsnæðisuppbygging verður of dýr og áherslan verður á magn umfram gæði, að mati Eddu Ívarsdóttur borgarhönnuðar, sem starfaði lengi hjá Reykjavíkurborg. Hún leggur til að sveitarfélögin l...

Í nýjasta tölublaði Bændablaðsins er athyglisvert viðtal við Dr. Hörpu Stefánsdóttur prófessor í skipulagsfræði um skipu...
11/05/2026

Í nýjasta tölublaði Bændablaðsins er athyglisvert viðtal við Dr. Hörpu Stefánsdóttur prófessor í skipulagsfræði um skipulagsmálin, m.a. þéttingu byggðar og samgöngur. Hún leggur áherslu á að fórna þurfi hluta af því mikla rými sem fer undir einkabílinn fyrir fallegra umhverfi og bætt lífsgæði íbúa.

Í nýjasta tölublaði Bændablaðsins er athyglisvert viðtal við Dr. Hörpu Stefánsdóttur prófessor í skipulagsfræði um skipulagsmálin, m.a. þéttingu byggðar og samgöngur. Hún leggur áherslu á að fórna þurfi hluta af því mikla rými sem fer undir einkabílinn fyrir fallegra um...

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt í skipulagsfræði við LbhÍ, mætti í hlaðvarp Gímaldsins á dögunum í samtal um bílastæ...
05/05/2026

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt í skipulagsfræði við LbhÍ, mætti í hlaðvarp Gímaldsins á dögunum í samtal um bílastæði og skipulag.
https://gimaldid.is/born-og-bilastaedi-reykjavik-er-unglingur-i-borgarthroun/

REYKJAVÍK ER UNGLINGUR Í BORGARÞRÓUN
Nýr þáttur af Börn og bílastæði þar sem rætt er við sérfræðinga um bílastæði og skipulag. Hvað eru bílastæði og hvaða hlutverki gegna þau í borgarumhverfinu? Rætt er um fyrirbærið bílastæði, um hugmyndir annarra borga um bílastæði og tengsl þeirra við skipulag borga en einnig tengsl við líðan íbúa og heilsu.
Hlekkur í fyrstu athugasemd 👇

Address

Keldnaholt
Reykjavík
112

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skipulagsfræði LbhÍ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Skipulagsfræði LbhÍ:

Shortcuts

Share