Listkennsludeild Listaháskóla Íslands

Listkennsludeild Listaháskóla Íslands Upplýsingar um starf listkennsludeildar Listaháskóla Íslands. Kennslutungumál í listkennsludeild er íslenska.

Í listkennsludeild er lögð áhersla á efla persónulega færni nemenda með markvissri þjálfun í að setja sér persónuleg og fagleg markmið sem reyna á sjálfstæði og úthald ásamt tjáningar- og miðlunarhæfni.

Í náminu eru listamenn úr öllum listgreinum sem hafa ákveðið að bæta við sig menntun í kennslu og miðlun og einnig er boðið upp á listtengt almennt kennslufræðinám fyrir þau sem eru með bakkalár

gráðu í öðrum greinum en listum. Þó nemendum bjóðist námskeið og samtal tengd eigin greinum er meirihluti námskeiða opinn öllum og gerir það deildina að kraumandi potti listanna.

Í listkennsludeild eru nokkrar námsleiðir sem byggja á mismunandi bakgrunni og áhugasviði nemenda. Meistaranám og viðbótardiplómanám í listkennslufræðum miðar að því að mennta fólk til kennslu ásamt því að efla með því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum vettvangi. Meistaranám og viðbótardiplómanám í listum og velferð miðar að því að auka aðgengi og þátttöku ólíkra hópa í listtengdum verkefnum og viðburðum. Að loknu kennaranámi:
Að loknu námi hljóta nemendur ýmist meistaragráðu (6.2), meistarapróf (6.1) eða viðbótardiplóma (6.1) í listkennslufræðum. Nemendur hafa aflað sér þekkingar og reynslu til að starfa á öllum skólastigum sem og sinna ólíkum menningar- og menntunartengdum verkefnum í samfélaginu. Auk almennra réttinda sem meistaragráða, meistarapróf og viðbótardiplóma veita til frekara náms og starfa fá nemendur starfsréttindi (leyfisbréf) við útskrift. Leyfisbréfið innifelur rétt útskrifaðra nemenda til að kalla sig kennara og starfa sem slíkur hér á landi á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi. Að loknu námi í listum og velferð:
Að loknu námi hljóta nemendur ýmist meistaragráðu (6.2) eða viðbótardiplóma (6.1) í listum og velferð. Auk almennra réttinda sem meistaragráða og viðbótardiplóma veita til frekara náms og starfa hafa nemendur aflað sér þekkingar og reynslu í að vinna með ólíkum hópum að listtengdum verkefnum.

Í vikunni tók listkennsludeild LHÍ á móti sínum stærsta hópi nýnema frá upphafi en rúmlega 60 nemendur hefja nám við dei...
20/08/2026

Í vikunni tók listkennsludeild LHÍ á móti sínum stærsta hópi nýnema frá upphafi en rúmlega 60 nemendur hefja nám við deildina í haust. 🤩 Velkomin í Listaháskólann!

Listaháskóli Íslands býður alla nýnema velkomna á nýnemadaga 17.-18. ágúst 2026. Sameiginleg dagskrá nýnema fer fram í h...
14/08/2026

Listaháskóli Íslands býður alla nýnema velkomna á nýnemadaga 17.-18. ágúst 2026.

Sameiginleg dagskrá nýnema fer fram í húsnæði skólans við Stakkahlíð 1 og hefst kl. 10:30 mánudaginn 17. ágúst. Þar fá nýir nemendur ýmsa fræðslu um lífið og þjónustu skólans, kynnast samnemendum sínum og starfsfólki og fá afhent aðgangskort að byggingum.

Að loknum nýnemadögum taka deildir skólans við nemendum í áframhaldandi dagskrá.

Listaháskóli Íslands býður alla nýnema velkomna á nýnemadaga 17.-18. ágúst 2026. Sameiginleg dagskrá nýnema fer fram í húsnæði skólans við Stakkahlíð 1 og hefst kl. 10:30 mánudaginn 17. ágúst. Þar fá nýir nemendur ýmsa fræðslu um lífið og þjónustu skólans, kynnast s...

Á dögunum kynntu meistaranemar listkennsludeildar lokaverkefni sín á útskriftarviðburði deildarinnar. Verkefnin eru fjöl...
10/06/2026

Á dögunum kynntu meistaranemar listkennsludeildar lokaverkefni sín á útskriftarviðburði deildarinnar.

Verkefnin eru fjölbreytt og má lesa um þau hér: https://www.lhi.is/vidburdur/utskriftarvidburdur-listkennsludeildar-2026/

Á skólaárinu 2025-2026 útskrifast tæplega 40 meistaranemar frá deildinni. Þar af eru fimm nemendur sem útskrifast af listum og velferð, aðrir nemendur útskrifast með meistaragráðu/próf og kennsluréttindi.

Við óskum útskriftarnemum öllum til lukku með áfangann en útskrift LHÍ verður 19. júní næstkomandi.

Myndir: Eygló Gísladóttir

Nemendur listkennsludeildar standa að viðburðinum „Listir og velferð sem stjórnmálaafl“ á Listahátíð í Reykjavík / Reykj...
08/06/2026

Nemendur listkennsludeildar standa að viðburðinum „Listir og velferð sem stjórnmálaafl“ á Listahátíð í Reykjavík / Reykjavik Arts Festival þriðjudaginn 9. júní í Iðnó.

Á dagskrá verða meðal annars örverk, kynningar á listrannsóknum og tilraunir.

Fagfólk sem starfar að velferðarmálum er sérstaklega hvatt til að mæta.

Nánari lýsing á viðburði:

Listahátíð í Reykjavík fer fram 30. maí - 14. júní 2026.

Embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneyti, innviðaráðuneyti, Samtök iðnaðarins, Félag um menntarannsóknir, ...
28/05/2026

Embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneyti, innviðaráðuneyti, Samtök iðnaðarins, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag stjórnenda á skrifstofum fræðslumála í sveitarfélögum, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök áhugafólks um skólaþróun hafa með sér samstarf um að veita árlega viðurkenningu fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf eða aðrar umbætur í menntamálum. Verðlaunin heita Íslensku menntaverðlaunin.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístunda starfi og auka veg menntaumbóta. Verðlaunin eru veitt ár hvert og skulu þau bera ártal þess. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum, auk sérstakrar hvatningar til aðila sem stuðlað hafa að framúrskarandi menntaumbótum.

A. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr.

B. Framúrskarandi kennari. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.

C. Framúrskarandi þróunarverkefni. Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- eða frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum og hafa ótvírætt mennta- og uppeldisgildi.

D. Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun. Ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar.

E. Hvatningarverðlaun til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr.

Tillögur skulu hafa borist fyrir 1. júní ár hvert.

Hlekkur á innsendingarsíðu hér:

https://skolathroun.is/viltu-tilnefna-til-islensku-menntaverdlaunanna-2026/

Við fengum marga góða gesti á útskriftarviðburð listkennsludeildar á miðvikudaginn 20. maí þar sem fyrstu meistarar af n...
26/05/2026

Við fengum marga góða gesti á útskriftarviðburð listkennsludeildar á miðvikudaginn 20. maí þar sem fyrstu meistarar af námsbrautinni Listir og velferð kynntu lokaverkefni sín. Dagskrárgerðarmaðurinn Pétur Magnússon var á meðal okkar allan daginn og tók viðtöl við kennara og tvo útskriftarnemendur.

Takk fyrir komuna Pétur - og hér má hlusta á afraksturinn.

Ættu læknar að skrifa upp á list til að lækna sjúkdóma? Erum við ekki að horfa nógu lengi á hlutina í kringum okkur? Þetta er spurningar sem fyrstu útskriftarnemar af námsbrautinni Listir og velferð við Listaháskóla Íslands varpa fram í sínum lokaverkefnum. Í maí eru haldnir...

Í dag 20. maí kynna fyrstu meistaranemar í listum og velferð lokaverkefni sín á útskriftarviðburði listkennsludeildar LH...
20/05/2026

Í dag 20. maí kynna fyrstu meistaranemar í listum og velferð lokaverkefni sín á útskriftarviðburði listkennsludeildar LHÍ.

Viðburðurinn er hluti af útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands og dagskrá er opin öllum. Kynningarnar fara fram í LHÍ Stakkahlíð í stofu H003 sem er á jarðhæð inn af bókasafninu.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Dagskrá og nánari upplýsingar um verkefni nemenda:
https://www.lhi.is/vidburdur/utskriftarvidburdur-listkennsludeildar-2026/

Í dag  19. maí kynna verðandi kennarar  lokaverkefni sín á útskriftarviðburði listkennsludeildar LHÍ. Viðburðurinn er hl...
19/05/2026

Í dag 19. maí kynna verðandi kennarar lokaverkefni sín á útskriftarviðburði listkennsludeildar LHÍ.

Viðburðurinn er hluti af útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands og dagskrá er opin öllum. Kynningarnar fara fram í LHÍ Stakkahlíð í stofu H003 sem er á jarðhæð inn af bókasafninu.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Dagskrá og nánari upplýsingar um verkefni nemenda:
https://www.lhi.is/vidburdur/utskriftarvidburdur-listkennsludeildar-2026/

Kristín Áskelsdóttir útskrifaðist með meistaragráðu og kennsluréttindi frá listkennsludeild veturinn 2026. Hún kynnir lo...
18/05/2026

Kristín Áskelsdóttir útskrifaðist með meistaragráðu og kennsluréttindi frá listkennsludeild veturinn 2026. Hún kynnir lokaverkefni sitt „Í hverju felst sköpun á sviði verkgreina? : rannsókn á skapandi áherslum textílkennara og sýn nemenda á skapandi verkgreinanám.“ á útskriftarviðburði listkennsludeildar LHÍ þriðjudaginn 19. maí í LHÍ Stakkahlíð. Öll velkomin.

„Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að kanna verkgreinakennslu á grunnskólastigi og sýn nemenda með tilliti til grunnþáttarins sköpunar ásamt því að móta mína starfskenningu. Rannsóknin var tvíþætt annars vegar var um að ræða eigindlega rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við starfandi textílkennara til að kanna viðhorf þeirra til sköpunar, frumlegra hugmynda nemenda og kennsluhætti þeirra. Viðtölin gáfu góða innsýn inn í áherslur þeirra á sköpun, hvernig þær birtust í kennslu og samspil þeirrar áherslu og hæfniviðmiða greinarinnar um tæknilega hæfni og færni.

Hins vegar var rannsókninni ætlað að vera mótandi fyrir starfskenningu mína og hafði ég hugmyndir um hverju mætti bæta við til þess að uppfylla betur skapandi nálgun í kennslu út frá kenningum og hugmyndafræði um hvað sköpun er og að efla ímyndunarafl og frumlegar hugmyndir nemenda. Einnig vildi ég að sýn nemenda myndi endurspeglast í niðurstöðum. Því framkvæmdi ég tilviksrannsókn og lagði verkefni fyrir nemendur í 5. og 9. bekk, hluti af niðurstöðum rannsóknarinnar hlutust úr ígrundun á minni kennslu og vettvangsdagbók.

Niðurstöður sýndu að viðmælendur mínir höfðu svipaða hætti í kennslu og vildu leggja áherslu á sköpun, tóku vel við frumlegum hugmyndum nemenda og leiðbeindu í hugmyndavinnu. Það sem ég vildi bæta við var að gefa nemendum meira svigrúm til þess að vinna að frjálsum verkefnum með frjálsa útkomu út frá hugðarefnum sínum. Niðurstöður úr tilviksrannsókn gáfu mis góðan árangur og að það er vandmeðfarið verk að draga fram sköpun nemenda í sjálfstæðum verkefnum, það þarfnast góðs ramma og uppsetningar.

Þessi rannsókn gaf mér góða innsýn inn í verkgreinakennslu á grunnskólastigi, hugmyndir að verkefnum og mótaði svo sannarlega mína starfskenningu. Báðar rannsóknir eru mitt framlag til þess að efla sköpun og sjálfstæði nemenda í list- og verkgreinum.“

Nánari upplýsingar og dagskrá hér: https://www.lhi.is/vidburdur/utskriftarvidburdur-listkennsludeildar-2026/

Address

Stakkahlíð 1
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Listkennsludeild Listaháskóla Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share