Skylmingasamband Íslands

Skylmingasamband Íslands Skylmingasamband Íslands er æðsti aðili um öll mál skylmingaíþróttarinnar innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ).

---)-----  VIKING CUP 2026  -----(---MEN’S & WOMEN’S WORLD CUP SATELLITE SABRE TOURNAMENTSThe Icelandic Fencing Federati...
30/08/2026

---)----- VIKING CUP 2026 -----(---
MEN’S & WOMEN’S WORLD CUP SATELLITE SABRE TOURNAMENTS

The Icelandic Fencing Federation is pleased to welcome you to the Viking Cup 2026, the Icelandic International Sabre Tournaments, taking place on 5–6 September 2026 at the Fencing Sabre Center in Laugardal, Reykjavik.

28/08/2026

Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) hefur staðfest tilnefningar Sundsambands Íslands (SSÍ) og Skylmingasambands Íslands (SKY) á þeim keppendum og fylgdarliði sem fara munu fyrir hönd Íslands á Ólympíuleika ungmenna í Dakar 2026.

🤺 Ari Vilberg Jónasson keppir á Ólympíuleikum ungmenna í Dakar 2026 🤺
28/08/2026

🤺 Ari Vilberg Jónasson keppir á Ólympíuleikum ungmenna í Dakar 2026 🤺

🇮🇸 Íslenski hópurinn á Ólympíuleikum ungmenna í Dakar 2026 hefur verið valinn!

Þrír ungir íslenskir íþróttamenn munu keppa fyrir Íslands hönd á leikunum sem fara fram í Senegal dagana 30. október til 13. nóvember. Þau eru Alexander Ari Andrason og Sólveig Freyja Hákonardóttir sem keppa í sundi og Ari Vilberg Jónasson sem keppir í skylmingum.

Ólympíuleikar ungmenna eru stærsti alþjóðlegi íþróttaviðburður heims fyrir ungt afreksíþróttafólk og verða nú haldnir í Afríku í fyrsta sinn.

Við óskum unga íþróttafólkinu okkar góðs gengis í undirbúningi og keppni. 🇮🇸💪

🔗 Lesa fréttina hér: https://www.isi.is/um-isi/frettir/islenski-hopurinn-a-olympiuleikum-ungmenna-i-dakar-2026-valinn

Íslandsbikarmót SKY í skylmingum með höggsverði fyrir börn, unglinga og fullorðna30. maí 2026, Skylmingamiðstöð í Laugar...
13/05/2026

Íslandsbikarmót SKY í skylmingum með höggsverði fyrir börn, unglinga og fullorðna
30. maí 2026, Skylmingamiðstöð í Laugardal
Þann 30. maí verður haldið Íslandsbikarmót í skylmingum með höggsverði fyrir börn, unglinga og
fullorðna í Skylmingamiðstöðinni í Laugardal (Baldurshagi).
Skráning og keppnisgjald
Við hvetjum alla til að taka þátt! Skráningafrestur er til 26. maí 2026!
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í mótinu, vinsamlega sendið svar með nafni, kennitölu og félagi á: [email protected]

25/04/2026

Training is cancelled today because KSÍ does not let us. Hopefully we'll get our weekend training back soon

14/04/2026

• Mjólkin gefur styrk - 2,5 milljónir til íslensks afreksíþróttafólks •

Styrktarsjóðurinn Mjólkin gefur styrk leggur sérstaka áherslu á að styðja við íslenskt íþróttafólk vegna kostnaðar sem fellur til vegna æfinga, búnaðar og keppnisferða sem oft vegur þungt í vegferð afreksíþróttafólks. Nú í annarri úthlutun sjóðsins, fyrir árið 2026, er 2,5 milljónum króna úthlutað til 10 framúrskarandi íþróttamanna, sem hver um sig hlýtur 250.000 króna styrk. Með þessari fjárfestingu í íþróttafólki landsins vill MS leggja sitt af mörkum til að skapa enn sterkari grunn fyrir íslenskt afreksíþróttafólk og styðja það í að ná enn lengra á alþjóðlegum vettvangi.

„Við erum afar stolt af því að geta stutt við bakið á íslensku íþróttafólki með þessum hætti. Samstarfið við ÍSÍ við val á styrkþegum var okkur jafnframt afar dýrmætt og viljum við færa þeim kærar þakkir fyrir þeirra framlag,“ segir Gréta Björg Jakobsdóttir, markaðs- og vöruflokkastjóri hjá MS, en eitt af skilyrðum styrkveitinga var að íþróttagreinar umsækjenda væru viðurkenndar af Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ. „Það er afar ánægjulegt að MS taki þátt í að styðja við afreksíþróttastarf með því að veita þessu glæsilega íþróttafólki beina styrki. Svona stuðningur getur skipt sköpum fyrir íþróttafólkið sem leggur á sig ótrúlega mikla vinnu alla daga til þess að ná árangri, “ segir Kristín Birna Ólafsdóttir, afreksstjóri ÍSÍ.

Mjólkin gefur styrk – styrkþegar 2026

• Andri Nikolaysson Mateev - skylmingar
• Anna Kamilla Hlynsdóttir - snjóbretti
• Dagbjartur Sigurbrandsson - golf
• Dagur Kári Ólafsson - fimleikar
• Elísa Kristinsdóttir - utanvegahlaup
• Hlynur Andrésson - langhlaup
• Hulda María Agnarsdóttir - körfubolti
• Júlía Kristín Jóhannesdóttir - frjálsar íþróttir
• Marinó Máni Þorsteinsson - listskautar
• Sunna Björgvinsdóttir - íshokkí

Opið var fyrir umsóknir dagana 1.-28. febrúar og gátu einstaklingar 18 ára og eldri sótt um styrk. Alls bárust yfir 120 umsóknir frá öflugum og fjölbreyttum hópi íþróttafólks víðs vegar að af landinu, sem undirstrikar skýra þörf fyrir aukinn stuðning við afreksstarf í íslensku íþróttalífi.

„Umsóknirnar sem bárust sýna glöggt hversu mikill kostnaður fylgir því að stunda afreksíþróttir, hvort sem um ræðir æfingar, búnað eða ferðalög,“ segir Gréta og bætir við að þetta framtak MS er jafnframt liður í því að hvetja önnur fyrirtæki til þátttöku og auka þannig sameiginlegan stuðning við íslenskt íþróttafólk. Með samstilltu átaki atvinnulífsins er hægt að skapa betri aðstæður fyrir afreksfólk til að blómstra og ná árangri.

Um leið og við óskum styrkþegum ársins innilega til hamingju viljum við þakka þeim fjölmörgu sem sendu inn umsókn og óskum þeim góðs gengis með komandi verkefni. 🥛

Address

Engjavegi 6
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+3548980533

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skylmingasamband Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Skylmingasamband Íslands:

Shortcuts

Share