Environment and Natural Resources at University of Iceland

Last week was a very busy one in the ENR programme. On Monday our students presented their finished master´s thesis at E...
26/05/2026

Last week was a very busy one in the ENR programme. On Monday our students presented their finished master´s thesis at ENR master´s day. And on Thursday our 1st year students presented their thesis idea at Colloquium and received feedback and comments from our teachers. Like on master´s day this was a very inspiring day with very various and interesting thesis topics. It will certainly be exciting to see the students finished masterpieces next year :D

Today 13 graduating students from ENR presented their thesis at the ENR master´s day. Our students explored various inte...
18/05/2026

Today 13 graduating students from ENR presented their thesis at the ENR master´s day. Our students explored various interesting research topics like natural hazards, death practices in Taiwan, the role of fast fashion brands in driving overconsumption, how board composition influences CSR, teaching climate change through art and how external barriers affect environmental attitudes and behavior in Reykjavík to name a few. The audience greatly enjoy listening to their introduction and we are already looking forward to next master´s day which will be held in September 2026.

Monday 18th of May the ENR master´s day will be held in Oddi, room 101 between 9-12:15 o´clock. There our students will ...
15/05/2026

Monday 18th of May the ENR master´s day will be held in Oddi, room 101 between 9-12:15 o´clock. There our students will present their master´s thesis. All are welcome. Come and be inspired by the various interesting research topics that our students have explored.

Námsleið í umhverfis- og auðlindafræði hlýtur verðlaun fyrir frumkvæði og forystu innan Háskóla Íslands árið 2026 en þau...
12/05/2026

Námsleið í umhverfis- og auðlindafræði hlýtur verðlaun fyrir frumkvæði og forystu innan Háskóla Íslands árið 2026 en þau voru afhent á ársfundi skólans sem fram fór í Hátíðasal Aðalbyggingar í dag. Ársfundurinn var helgaður samstarfi þvert á fræðigreinar innan skólans.

Þetta var í áttunda sinn sem verðlaunin voru afhent en þau eru ætluð hópi eða teymi sem hefur sýnt sérstakt frumkvæði og forystu við þróun og uppbyggingu framúrskarandi starfs innan Háskóla Íslands.

Kennarar sem standa að námsleiðinni umhverfis- og auðlindafræði hljóta verðlaunin fyrir frumkvæði og forystu í þverfræðilegu samstarfi en námsleiðin er eina þverfræðilega framhaldsnámið við Háskóla Íslands sem tengist öllum fimm fræðasviðum skólans.

Um þessar mundir eru 20 ár frá því að kennsla hófst í umhverfis- og auðlindafræði en með stofnun hennar var brugðist við ákalli úr samfélaginu um aukna þekkingu og rannsóknir tengdar umhverfis- og sjálfbærnimálum. Sjá nánar á www.hi.is

14/04/2026

Eins og Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði segir þá koma umhverfismálin inn á öll svið samfélagsins. Sæktu endilega um :D

10/04/2026

Tinna Hallgrímsdóttir segir frá því hvað henni fannst áhugaverðast við umhverfis- og auðlindafræði. Sæktu um fyrir 15. apríl :)

Haustið 2025 hófst nýtt meistaranám í sjálfbærum landbúnaði og byggðaþróun, sem er samstarfsverkefni Landbúnaðarháskóla ...
09/04/2026

Haustið 2025 hófst nýtt meistaranám í sjálfbærum landbúnaði og byggðaþróun, sem er samstarfsverkefni Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskóla Íslands og var styrkt af Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu (HVIN). Nú þegar fyrsta skólaárið er að líða undir lok er ljóst að mikil þörf var fyrir slíka námsleið og að samstarfið milli skólanna hefur reynst afar öflugt.

Námið er byggt á þverfaglegri nálgun þar sem landbúnaðarvísindi, umhverfisvísindi, nýsköpun, félagsvísindi og byggðaþróun eru samþætt. Markmiðið er að námið skili út sérfræðingum í samfélagið sem geti leyst raunverulegar áskoranir í landbúnaði og fæðukerfum framtíðar hér heima og alþjóðlega, með sjálfbærni að leiðarljósi. Námið er kennt á ensku

Aðdragandi námsins var umfangsmikill – meðal annars var haldin fjölmenn vinnustofa sumarið 2024 í samstarfi við Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins, þar sem 43 fulltrúar úr ólíkum stofnunum og fyrirtækjum komu saman og lögðu sitt af mörkum við mótun námsins.

Í fyrsta námsárganginum hefur þegar skapast tenging við atvinnulíf og opinberar stofnanir, ekki síst í gegnum vettvangsferðir og heimsóknir nemenda til ýmissa aðila og stofnana. Nemendur hafa sinnt fjölbreyttum verkefnum sem snúa meðal annars að sjálfbærri framleiðslu, nýsköpun, fæðuöryggi, loftslagsmálum, byggðaþróun og hringrásarhagkerfi. Þá hefur samkennsla og þekkingarflæði á milli skólanna reynst mikil styrking fyrir námið og kennarar beggja háskóla koma að bæði kennslu og leiðsögn.

Lagt er upp með að við stofnun námsleiðarinnar sé verið að mæta brýnni þekkingarþörf er varðar samspil landbúnaðar, fæðuöryggis og búsetu í dreifbýli. Nám í sjálfbærum landbúnaði er því orðinn mikilvægur vettvangur fyrir þau sem vilja taka þátt í að þróa íslenskan landbúnað, fæðukerfi og hinar dreifðu byggðir með framtíðina að leiðarljósi.

Opið er fyrir umsóknir í námið og rennur frestur út 15. apríl næstkomandi. Við hvetjum öll til þess að fara inn á heimasíðuna www.haskolanam.is til þess að kynna sér námið betur, en hægt er að innrita sig í það í gegnum annaðhvort umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands eða búvísindi við Landbúnaðarháskóla Íslands.

08/04/2026

Sæktu um í umhverfis- og auðlindafræði - umsóknarfrestur til 15. apríl næstkomandi 😃

20 ára afmæli umhverfis- og auðlindafræðinnar var haldið með pompi og pragt í gær. Viðburðurinn heppnaðist frábærlega þr...
27/03/2026

20 ára afmæli umhverfis- og auðlindafræðinnar var haldið með pompi og pragt í gær. Viðburðurinn heppnaðist frábærlega þrátt fyrir að veðrið hafi sett strik í reikninginn og viljum við þakka gestum, fyrirlesurum og öllum sem komu að undirbúningi þessa viðburðar kærlega fyrir sitt framlag. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir :)

Lára Jóhannsdóttir, prófessor og umsjónarkennari í umhverfis- og auðlindafræði var í viðtali á Bylgjunni í morgun þar se...
26/03/2026

Lára Jóhannsdóttir, prófessor og umsjónarkennari í umhverfis- og auðlindafræði var í viðtali á Bylgjunni í morgun þar sem hún fór yfir tuttugu ára sögu námsins.
Í dag kl. 15:00 ætlum við að fagna að 20 ár (!) eru liðin frá því að nám í umhverfis- og auðlindafræði hófst við Háskóla Íslands. Viðburðurinn fer fram í fyrirlestarsal Eddu og hefst kl. 15:00.

https://tinyurl.com/2my7b4uk

Address

Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Environment and Natural Resources at University of Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Environment and Natural Resources at University of Iceland:

Shortcuts

Share