12/02/2026
Algerlega frábært verkefni hér á ferð - endilega hvetjið áhugasama nemendur ykkar til að skrá sig til þátttöku . Viðburðurinn er opinn öllum framhaldsskólanemendum (nemendum í UNESCO-skólum er þó veittur forgangur) en nemendur í 10. bekk geta einnig sótt um...
Bendi einnig á ótrúleg flottan vef sem Félag Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu, settu í loftið síðast haust: https://verdurheimurinnbetri.is
Verður heimurinn betri? er kennsluverkfæri sem hjálpar ungu fólki að skilja heiminn sem við búum í. Með því að hvetja til ígrundunar um ástandið í heiminum styður verkefnið við fjölbreytta og gagnrýna hugsun, færni sem nýtist í öllum námsgreinum. Á vefnum má finna fjölbreytt og gagnvirkt efni fyrir skóla, kennara og aðra áhugasama.
Í þessu Model UN setja nemendur sig í spor fulltrúa aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna 🇺🇳.
Frekari upplýsingar og skráningarhlekkur í athugasemdum.
Í þetta sinn verður fjallað um öryggi kvenna í Afganistan, á vettvangi öryggisráðsins.
Þátttakendur þurfa enga sérstaka reynslu og er þess einungis krafist að nemendur vilji læra meira um starfsemi Sameinuðu þjóðanna. Þátttakendur fá sent efni til þess að undirbúa sig og áhugasömum verður boðið á undirbúningsfund.
🙋 Af hverju ættir þú að taka þátt?
🤝 Skemmtilegt tækifæri: Prófaðu þig áfram í ræðuhaldi, samningaviðræðum og samvinnu.
🌎 Skildu heiminn betur: Þú lærir hvernig Sameinuðu þjóðirnar starfa og hvernig ákvarðanir um stærstu mál samtímans eru teknar.
🏆 Vertu hluti af lausninni: Taktu þátt í að móta hugmyndir og lausnir sem skipta máli.
⭐️ Byggðu tengslanet: Þú hittir jafnaldra úr öðrum skólum, myndar ný vinatengsl og kynnist fólki.
😎 Einstök reynsla fyrir framtíðina: Þátttakan styrkir þig sem framtíðar leiðtoga og getur líka verið dýrmæt reynsla í námi og starfi.