Sálfræðideild Háskóla Íslands

Sálfræðideild Háskóla Íslands Á þessari síðu geta nemendur, starfsmenn og aðrir áhugasamir fylgst með nýjustu fréttum og tilkynningum frá Sálfræðideild Háskóla Íslands.

Athugið að þessi síða kemur ekki í stað Uglu, innri vef HÍ. Þessi síða er upplýsingasíða fyrir nemendur og starfsfólk Sálfræðideildar Háskóla Íslands. Hér verða ekki að finna upplýsingar um einstaka námskeið, enda eru þær upplýsingar inni á Uglu. Inni á þessari síðu verða almennar upplýsingar og tilkynningar og einnig munum við setja inn efni sem okkur þykir áhugavert og viljum deila með nemendum okkar.

26/08/2026

Þarftu hjálp við köngulóafælni eða félagskvíða?

Stúdentaklíník Sálfræðideildar Háskóla Íslands leitar að um 20 einstaklingum með köngulóafælni og 20 einstaklingum með félagskvíða til að hefja meðferð sem fyrst.

Þjónustan er í boði fyrir nemendur og starfsfólk Háskóla Íslands og börn þeirra.

Frekar upplýsingar ásamt skráningu má finna í hlekk í athugasemd.

Fyrsti kennsludagur í grunn - og meistaranámi í Sálfræðideild er mánudagurinn 24. ágúst. Við hlökkum til að hefja haustm...
21/08/2026

Fyrsti kennsludagur í grunn - og meistaranámi í Sálfræðideild er mánudagurinn 24. ágúst.

Við hlökkum til að hefja haustmisserið með ykkur!

Skrifstofa Sálfræðideildar lokar vegna sumarleyfa frá 1. júlí til og með 4. ágúst næstkomandi. Gleðilegt sumar!
30/06/2026

Skrifstofa Sálfræðideildar lokar vegna sumarleyfa frá 1. júlí til og með 4. ágúst næstkomandi. Gleðilegt sumar!

Kristjana Þórarinsdóttir varði doktorsritgerð sína í sálfræði þann 11. júní síðastliðinn. Heiti doktorsritgerðar er "Get...
29/06/2026

Kristjana Þórarinsdóttir varði doktorsritgerð sína í sálfræði þann 11. júní síðastliðinn. Heiti doktorsritgerðar er "Getur sjónrýmdarverkefni dregið úr áfallatengdum minningum? Rannsókn meðal íslenskra kvenna".

Andmælendur voru Debra L. Kaysen, prófessor við Stanford University og dr. Árni Gunnar Ásgeirsson, dósent við Háskólann á Akureyri. Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Andri Steinþór Björnsson, prófessor. Auk hans sátu í doktorsnefnd Berglind Guðmundsdóttir, prófessor, Arna Hauksdóttir, prófessor, Þórhildur Halldórsdóttir, dósent, og Emily Holmes, prófessor.

Við óskum Dr. Kristjönu Þórarinsdóttur innilega til hamingju með áfangann!

---

Kristjana Þórarinsdóttir defended her doctoral thesis in psychology on June 11th. The title of the doctoral thesis is "Can a novel imagery-competing task intervention reduce intrusive memories of trauma? A study among Icelandic women".

The opponents were Debra L. Kaysen, professor at Stanford University and Dr. Árni Gunnar Ásgeirsson, associate professor at the University of Akureyri. The supervising professor was Andri Steinþór Björnsson, professor. In addition the doctoral committee included Berglind Guðmundsdóttir, professor, Arna Hauksdóttir, Þórhildur Halldórsdóttir, associate professor and Emily Holmes, professor.

Congratulations Dr. Kristjana Þórarinsdóttir!

Urður Njarðvík prófessor við Sálfræðideild HÍ leiddi alþjóðlegan hóp vísindamanna sem birti nýverið grein um tengsl fráv...
16/06/2026

Urður Njarðvík prófessor við Sálfræðideild HÍ leiddi alþjóðlegan hóp vísindamanna sem birti nýverið grein um tengsl frávika í tilfinningastjórnun við einkenni ADHD, mótþróaþrjóskuröskunar og hegðunarröskunar. Rannsóknin náði til tæplega 12 þúsund barna og sýna niðurstöður að tilfinningastjórnun tengist einkennum þessara raskana óháð kyni, aldri, fylgiröskunum, lyfjameðferð og upplýsingagjafa. Að mati höfunda sýna niðurstöðurnar fram á að huga þurfi betur að þroska tilfinningastjórnunar við bæði greiningu og meðferð þessara raskana. Samstarfsfólk Urðar kom frá háskólum í Stokkhólmi, Bergen, Osló og Amsterdam.

Externalizing disorders (Attention Deficit Hyperactivity Disorder (ADHD), Oppositional Defiant Disorder (ODD) and Conduct Disorder (CD)) are frequent among children and adolescents referred to mental health services. Despite numerous studies linking emotion dysregulation to both severity and symptom...

Fimmtudaginn 11. júní ver Kristjana Þórarinsdóttir doktorsritgerð sína í sálfræði við Sálfræðideild Háskóla Íslands. Rit...
10/06/2026

Fimmtudaginn 11. júní ver Kristjana Þórarinsdóttir doktorsritgerð sína í sálfræði við Sálfræðideild Háskóla Íslands.
Ritgerðin ber heitið: Getur sjónrýmdarverkefni dregið úr áfallatengdum minningum? Rannsókn meðal íslenskra kvenna. Can a novel imagery-competing task intervention reduce intrusive memories of trauma? A study among Icelandic women.
Sjá frekari upplýsingar um doktorsritgerð Kristjönu og viðburðinn í hlekk í athugasemd.

Öll velkomin!

Ég valdi sálfræði því hún er svo viðeigandi í daglegu lífi, þetta er svo opin gráða. Þú hugsar "sálfræði" og það getur v...
01/06/2026

Ég valdi sálfræði því hún er svo viðeigandi í daglegu lífi, þetta er svo opin gráða. Þú hugsar "sálfræði" og það getur verið þunglyndi, kvíði en líka allt sem tengist skynjun, heilanum - hvernig þú sérð liti, hvernig sálfræðileg próf eru búin til, ótrúleg fjölbreytni.
Námið er mjög krefjandi, gefandi og skemmtilegt!

Lilja Hugrún Liyuan Pétursdóttir, BS-nemi í sálfræði

Umsóknarfrestur fyrir grunnnám í sálfræði er til 5. júní.
https://hi.is/salfraedideild

26/05/2026

Árni Kristjánsson, prófessor í sálfræði við Háskóla Íslands, segir Gunnari Smára frá rúm- og tímaháðum hugarvenjum sem hann hefur verið að rannsaka, en Samst...

DOKTORSNEMI ÓSKAST, NÝR STYRKUR FYRIR DOKTORSNEMA Í HÚS! DOCTORAL STUDENT WANTED! Áttu erfitt með að sjá hluti fyrir þér...
19/05/2026

DOKTORSNEMI ÓSKAST, NÝR STYRKUR FYRIR DOKTORSNEMA Í HÚS! DOCTORAL STUDENT WANTED!
Áttu erfitt með að sjá hluti fyrir þér í huganum? Eða sérðu kannski hlutina svo ljóslifandi fyrir þér að halda mætti að þeir væru beint fyrir framan þig? Heida Maria Sigurdardottir, prófessor og deildarforseti Sálfræðideildar, var að fá styrk (https://hi.is/frettir/riflega_30_styrkir_til_doktorsnema_vid_hi) fyrir verkefninu "Individual differences in visual imagery and associations with visual memory" og ætlar því að rannsaka slíkan einstaklingsmun í sjónrænni ímyndun í samstarfi við nýjan doktorsnema. Ert það ef til vill þú?

Ef þú vilt fara í þriggja ára LAUNAÐ doktorsnám við Sálfræðideild Háskóla Íslands, fylgstu þá með á Starfatorgi (https://island.is/starfatorg) þar sem starfið verður auglýst á næstu vikum. Einnig er meira en velkomið að hafa óformlega samband við Heiðu með því að senda henni póst: [email protected]

Nánar um Rannsóknamiðstöð um sjónskynjun: https://visionlab.is/
Nánar um störf Heiðu: https://visionlab.is/heidacv/
-----
Do you struggle to visualize things in your mind? Or do you perhaps see things so vividly that they might as well be right in front of you? Heida Maria Sigurdardottir, professor and head of the Department of Psychology, has received a grant (https://hi.is/frettir/riflega_30_styrkir_til_doktorsnema_vid_hi) for the project "Individual differences in visual imagery and associations with visual memory" and will use it to study such individual differences in visual imagery in collaboration with a new doctoral student. Could that be you?

If you're interested in a three-year PAID PhD position at the Department of Psychology, stay tuned on Starfatorg (https://island.is/starfatorg) where the position will be advertised in the coming weeks. You are also more than welcome to reach out informally to Heida by emailing her at [email protected]

More on the Icelandic Vision Lab: https://visionlab.is/
More information on her work: https://visionlab.is/heidacv/

Ég hef alltaf haft áhuga á hegðun og líðan en áhugi minn á sálfræði kviknaði í menntaskóla. Það sem mér finnst áhugaverð...
15/05/2026

Ég hef alltaf haft áhuga á hegðun og líðan en áhugi minn á sálfræði kviknaði í menntaskóla. Það sem mér finnst áhugaverðast við námi er hversu fjölbreytt þaðer og hversu margar greinar eru innan sálfræðinnar. Námið er krefjandi en líka ofboðslega gefandi, ótrúlega skemmtilegt og áhugavert.

Dagbjört Lilja Ólafardóttir Linn, BS-nemi í sálfræði

Umsóknarfrestur fyrir grunnnám í sálfræði er til 5. júní.
https://hi.is/salfraedideild

Address

Nýi Garður Sæmundargata 12
Reykjavík
102

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sálfræðideild Háskóla Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Sálfræðideild Háskóla Íslands:

Shortcuts

Share