Tölfræðiráðgjöf Heilbrigðisvísindastofnunar HÍ

Tölfræðiráðgjöf Heilbrigðisvísindastofnunar HÍ Tölfræðiráðgjöf veitir rannsakendum við HVS ráðgjöf varðandi tölfræði

Spennandi staða í boði
09/09/2020

Spennandi staða í boði

Laust er til umsóknar fullt starf nýdoktors við StressGene rannsóknina sem ERC styrkir og Unnur Valdimarsdóttir, prófessor hjá Miðstöð lýðheilsuvísindum við Læknadeild Háskóla Íslands, leiðir.

Nú fer sumarfríi okkar að ljúka og tölfræðiráðgjöfin fer aftur í gang þann 10. ágúst.  Í ljósi aðstæðna þá mun ráðgjöfin...
07/08/2020

Nú fer sumarfríi okkar að ljúka og tölfræðiráðgjöfin fer aftur í gang þann 10. ágúst. Í ljósi aðstæðna þá mun ráðgjöfin næstu vikurnar fara fram í gegnum netið. Ráðgjöfin er bókuð í gegnum vefinn http://trhvs.hi.is/bokaradgjof/.

Veldu staðsetningu, dagsetningu og tíma, og skráðu svo viðeigandi upplýsingar.

01/07/2020

Tölfræðiráðgjöfin fer í sumarfrí!

Frá og með 13. júlí til og með 9. ágúst verður ráðgjöfin lokuð. Starfsmenn munu þó ekki sitja á auðum höndum því ráðgjöfin er með nokkur spennandi verkefni framundan.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll aftur í ágúst!

Tölfræðiráðgjöf Heilbrigðisvísindasviðs

Í byrjun maímánaðar hóf Sigurbjörg Anna Guðnadóttir, doktorsnemi í líftölfræði við Háskóla Íslands, störf hjá Tölfræðirá...
27/05/2020

Í byrjun maímánaðar hóf Sigurbjörg Anna Guðnadóttir, doktorsnemi í líftölfræði við Háskóla Íslands, störf hjá Tölfræðiráðgjöfinni.

Eftir útskrift úr stærðfræði við Háskóla Íslands fyrir 2 áratugum síðan hefur Anna unnið við gagnaúrvinnslu, tölfræði og framhaldsskólakennslu. Ásamt því að vinna í tölfræðiráðgjöfinni mun hún vinna í verkefnum í samstarfi við Áfallasögu kvenna þar sem áherslan verður m.a. á tengsl áfalla, erfða og lifunar.
Anna mun taka að sér að hitta skjólstæðinga í viðtöl tvo daga í viku og aðstoða við frekari úrvinnslu ef þörf er á. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa.

14/05/2020

Það er þétt dagskrá fræðslu á internetinu í dag!

Kl 17:00: MIDAS COVID-19 Special Seminar Series: Jon Zelner, “If the outbreak ended, does that mean the interventions worked?”

https://midas.umich.edu/event/midas-covid-19-special-seminar-series-jon-zelner-predicting-covid-19-transmission/

Kl 19:00: COVID-19 Data Forum, í boði R-Consortium og Stanford Data Science Institute. Fyrirlesarar eru Orhun Aydin, Ryan Hafen, Alison L. Hill, Noam Ross.

https://covid19-data-forum.org/

24/04/2020

Í nýjustu útgáfu af COVID19 mælaborði Heilbrigðisvísindastofnunar Háskóla Íslands má sjá þróun fjöldatalna fyrir dauðsföll auk þróunar dánartíðni á fjölda greindra COVID19 smita eftir löndum.

Vert er að taka fram að dánartíðnin vegna COVID19 í Evrópu er næst lægst hér á landi (0.56%), en einungis Færeyjar hafa lægri dánartíðni (0.00%).

Hér ber að nefna að mismikið er skimað fyrir COVID19 í löndum og slíkt hefur mikil áhrif á dánartíðni sem reiknast út frá í gögnum. Til dæmis er ekki jafnmikið skimað í Svíþjóð og hér, en skráð dánartíðni miðað við fjölda greindra tilfella er þar 12%.

Aukið framboð viðtalstíma! Nú er hægt að bóka tölfræðiviðtöl á þriðjudögum milli 09 - 14. Öll viðtöl fara fram með fjarf...
20/04/2020

Aukið framboð viðtalstíma! Nú er hægt að bóka tölfræðiviðtöl á þriðjudögum milli 09 - 14. Öll viðtöl fara fram með fjarfundahugbúnaðinum Teams. Bókið sem áður á vefsíðunni

Veldu staðsetningu, dagsetningu og tíma, og skráðu svo viðeigandi upplýsingar.

Address

Læknagarður, HÍ, Stofa 331
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tölfræðiráðgjöf Heilbrigðisvísindastofnunar HÍ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Tölfræðiráðgjöf Heilbrigðisvísindastofnunar HÍ:

Shortcuts

Share