RIKK Háskóli Íslands

RIKK Háskóli Íslands RIKK - Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum er þverfagleg stofnun við Háskóla Íslands. RIKK - Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum er þverfagleg stofnun.

RIKK hefur starfað síðan 1991 og er leiðandi afl í kvenna-, kynja- og jafnréttisrannsóknum á Íslandi. Aðalmarkmið hennar er að efla og samhæfa jafnréttisrannsóknir og rannsóknir í kvenna- og kynjafræðum jafnframt því að vinna að og kynna niðurstöður rannsókna. RIKK miðlar þekkingu á sviði kvenna, kynja- og jafnréttisfræða með því að gangast fyrir námskeiðum, fyrirlestrum, ráðstefnum og útgáfu. Ran

nsóknastofnun í jafnréttisfræðum er ætlað að veita upplýsingar og ráðgjöf um kvenna- og kynjarannsóknir, hafa samstarf við innlenda og erlenda rannsóknaraðila og styðja og styrkja nám í kynjafræðum innan og utan Háskóla Íslands. Samkvæmt nýrri tilhögun stofnana sem áður heyrðu undir háskólaráð, var RIKK flutt yfir á Hugvísindasvið árið 2010, en hún er eftir sem áður sjálfstæð og þverfagleg stofnun og helst hlutverk hennar óbreytt. Stofnunin leggur metnað sinn í að starfa með fræðimönnum af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands. RIKK hefur margvísleg tengsl út fyrir skólann, jafnt innanlands sem á alþjóðavettvangi, og starfar í því samhengi sem fulltrúi Háskólans í heild. Saga Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum

Rannsóknastofan á rætur sínar að rekja til áttunda áratugarins þegar fræðikonur víða um heim hófu markvissar rannsóknir í kvennafræðum. Íslenskar fræðikonur létu ekki sitt eftir liggja og þegar upp úr 1980 var farið að bjóða upp á námskeið í t.d. kvennabókmenntum og kvennasögu við Háskóla Íslands. Sumarið 1985 var haldin fyrsta ráðstefnan um íslenskar kvennarannsóknir. Að henni stóð hópur kvenna sem hafði um árabil sinnt rannsóknum á þessu sviði. Í kjölfar ráðstefnunnar var stofnaður Áhugahópur um íslenskar kvennarannsóknir en í honum voru konur innan og utan háskólasamfélagins. Áhugahópurinn stóð fyrir reglulegum fyrirlestrum um kvennarannsóknir, beitti sér fyrir stofnun rannsóknastofu í kvennafræðum og að komið yrði á fót skipulegu námi í kvennafræðum við Háskóla Íslands. Sem fyrr segir varð stofnun rannsóknastofunnar að veruleika árið 1991 en námsbraut í kynjafræðum var sett á laggirnar fimm árum síðar, haustið 1996. Sjá upplýsingar um nám, námsbrautir og námskeið á sviði kvenna- og kynjafræða hér. Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum hafði um árabil takmarkaða fjárveitingu og gat af þeim sökum aðeins haft starfsmann í hlutastarfi. Engu að síður tókst stofunni að halda úti þéttri dagskrá á hverjum vetri sem samanstóð af hádegisfyrirlestrum, opinberum fyrirlestrum og málstofum, auk útgáfu rita á sviði kvenna- og kynjafræða. Samstarfssamningur Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar

Með samstarfssamningi RIKK og Reykjavíkurborgar árið 2000 varð gjörbreyting á starfsaðstæðum stofunnar því þá fyrst var hægt að ráða forstöðumann í fullt starf. Þann 26. júní 2000 undirrituðu Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þáverandi borgarstjóri samstarfssamning Háskólans og Reykjavíkurborgar, sem fól í sér að koma á fót stöðu forstöðumanns Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum. Markmið samningsins er að efla rannsóknir á sviði kvenna, kynja- og jafnréttisfræða innan Háskólans. Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar er ábyrg fyrir framkvæmd samningsins af hálfu Reykjavíkurborgar og RIKK er ábyrg fyrir framkvæmd samningsins fyrir hönd Háskólans. Samstarfssamningur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands hefur verið endurnýjaður fjórum sinnum, nú síðast árið 2014 til þriggja ára.

Öflug miðstöð nýsköpunar

RIKK hefur frá upphafi verið öflug miðstöð nýsköpunar. Stofnunin hafði á sínum tíma forgöngu um að námsbraut í kynjafræðum var komið á laggirnar og hvatti til stofnunar jafnréttisnefndar Háskólans. Einnig hefur hún átt samstarf við ýmis réttindasamtök kvenna. Þá átti hún mikinn þátt í þróun og uppbyggingu Alþjóðlegs jafnréttisskóla (GEST) og EDDU rannsóknaseturs sem eru framsækin verkefni á sviði jafnréttismála. Þessi verkefni starfa sem sjálfstæðar einingar, með aðskilið regluverk og stjórnir, en í nánu samstarfi við RIKK. Þessar þrjár einingar deila sama húsnæði og er stýrt af sama starfsfólki. Þær styðja hver aðra við að ná sameiginlegu markmiði sem er að efla jafnréttisrannsóknir og jafnréttisnám á Íslandi.

17/08/2026
Andrea Pető, prófessor í kynjafræði við Central European University í Vín hélt vel sóttan fyrirlestur á vegum RIKK og Kv...
23/04/2026

Andrea Pető, prófessor í kynjafræði við Central European University í Vín hélt vel sóttan fyrirlestur á vegum RIKK og Kvenréttindafélags Íslands þriðjudaginn 21. apríl s.l. í Veröld. Við þökkum öllum þeim sem mættu og hlýddu á frábært erindi Pető.

Í fyrirlestri sínum, sem byggði á bók hennar og blaðakonunnar Zsuzsönnu Balázs, Viktor Orbán’s Affairs with Women, fjallaði Pető meðal annaras um það hvernig kyn skipar lykilstöðu í mótun og viðhaldi ófrjálslyndra stjórnarhátta. Hún lagði áherslu á að spurningar um kyn, fjölskyldu og félagslega mótun væru ekki jaðarviðfangsefni heldur meðal þeirra þátta sem móta vald, réttlæta það og festa það í sessi.

Að loknum fyrirlestri fór fram pallborð þar sem þessi viðfangsefni voru rædd í víðara samhengi. Sjá frekari upplýsingar á heimasíðu RIKK:

https://rikk.hi.is/fyrirlestur-andreu-peto-hvernig-er-haegt-ad-grafa-undan-lydraedi-innan-fra-an-thess-ad-afnema-thad/

See information in English on RIKK's website here:

https://rikk.hi.is/en/gender-power-and-democratic-erosion-andrea-peto-at-rikk/

Við minnum á fyrirlestur Andreu Pető, prófessors við kynjafræðideild Central European University (CEU) í Vín í Veröld n....
19/04/2026

Við minnum á fyrirlestur Andreu Pető, prófessors við kynjafræðideild Central European University (CEU) í Vín í Veröld n.k. þriðjudag klukkan 16.

Fyrirlesturinn byggir Andrea Pető á nýlegri bók hennar og Zsuzsönnu Balázs, Viktor Orbán’s Affairs with Women. Þar er meðal annars geeind stjórnarstefna Viktors Orbáns, sem kennd er við „ófrjálslynt lýðræði“ (e. illiberal democracy) og sýnt hvernig hann hefur með markvissum hætti endurskilgreint og grafið undan bæði innlendum og alþjóðlegum viðmiðum um jafnrétti, inngildingu og bann við mismunun til að setja fram valkost við frjálslynd gildi.

Hvað hefur breyst að loknum kosningum og brotthvarfs Viktors Orbáns? Andrea Pető ræðir hér í meðfylgjandi pistli úrslit kosninga í Ungverjalandi, akademískt frelsi og kynjajafnrétti.

What has changed after the defeat of the illiberal FIDESZ Party as far as academic freedom and gender equality are concerned?

Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor við Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum, og Giti Chandra, rannsóknadósent við sömu...
06/02/2026

Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor við Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum, og Giti Chandra, rannsóknadósent við sömu stofnun, rituðu grein í sérrit Kvinder, Køn & Forskning sem ber heitið Decolonisation. Greinin nefnist „Decolonial practices in higher education“ og byggir á viðtölum sem tekin voru við nemendur á Hugvísinda-, Félagsvísinda og Menntavísindasviði um þátt nýlendusögu í námi þeirra. Greinin er í rafrænum og opnum aðgangi.

Decolonial practices in higher education Student perspectives in Iceland Forfattere Giti Chandra Research Specialist, University of Iceland https://orcid.org/0000-0002-3463-3469 Sólveig Sigurðardóttir Postdoctoral Researcher, University of Iceland https://orcid.org/0009-0004-3416-8626 DOI: https:...

Address

Gimli, Sæmundargötu 2, 3. Hæð
Reykjavík
102

Telephone

+3545255230

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when RIKK Háskóli Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to RIKK Háskóli Íslands:

Shortcuts

Share