Tónlistardeild Listaháskóla Íslands

Tónlistardeild Listaháskóla Íslands Music Department at Iceland University of the Arts
Skipholt 31

Instagram:

Þá er nýnemavika tónlistardeildar að baki! Meðal dagskrárliða voru ávarp hollnemans og tónlistarkonunnar 𝐆𝐲ð𝐮 𝐕𝐚𝐥tý𝐬𝐝ó𝐭𝐭...
24/08/2026

Þá er nýnemavika tónlistardeildar að baki!
Meðal dagskrárliða voru ávarp hollnemans og tónlistarkonunnar 𝐆𝐲ð𝐮 𝐕𝐚𝐥tý𝐬𝐝ó𝐭𝐭𝐮𝐫, fyrirlestur Þ𝐨𝐫𝐛𝐣𝐚𝐫𝐠𝐚𝐫 𝐃𝐚𝐩𝐡𝐧𝐞 𝐇𝐚𝐥𝐥 um tónlist og samfélag OG skapandi tónlistarsmiðja undir leiðsögn 𝐒𝐢𝐠𝐫ú𝐧𝐚𝐫 𝐒æ𝐯𝐚𝐫𝐬𝐝ó𝐭𝐭𝐮𝐫-𝐆𝐫𝐢𝐟𝐟𝐢𝐭𝐡𝐬.

Ræða 𝐆𝐲ð𝐮 𝐕𝐚𝐥tý𝐬𝐝ó𝐭𝐭𝐮𝐫 má finna hér að neðan⬇

Vikunni lauk með glæsibrag á föstudag þar sem 𝐅𝐞𝐫𝐦𝐚𝐭𝐚, nemendafélag tónlistardeildar kynnti starfsemi sína, sveitin 𝐒𝐡𝐚𝐫𝐞𝐝 𝐑𝐞𝐬𝐨𝐧𝐚𝐧𝐜𝐞𝐬 flutti spunatónlist með nemendum og svo var slegið upp pulsugrilli hjá nágrönnum okkar í RVK Brewing Company.

Takk fyrir frábæra viku – við hlökkum til vetrarins með ykkur!

//
Orientation week at the Music Department has come to a close!

Highlights included a welcome address by alumna and musician Gyða Valtýsdóttir, a lecture by Þorbjörg Daphne Hall on music and society, and a creative music workshop led by Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths.

We closed out the week in style on Friday, with Fermata, the Music Department’s student association, introducing their activities, the ensemble 𝐒𝐡𝐚𝐫𝐞𝐝 𝐑𝐞𝐬𝐨𝐧𝐚𝐧𝐜𝐞𝐬 performing improvised music with students, and a hot dog barbecue with our neighbours at RVK Brewing Company.

Thank you for a wonderful week — we’re looking forward to the year ahead with you!

--

Ræða Gyðu Valtýsdóttur til nýnema tónlistardeildar LHÍ:

Góðir hálsar og aðrir líkamspartar.

Mér hefur hlotnast sá heiður að ávarpa ykkur hér á fyrsta degi þessarar háskafarar sem það er að hætta sér inn í völundarhús æðri menntunar. Hér munið þið mæta ykkar stærsta óvini, ykkur sjálfum, skrímslum egósins, hættulegum hermönnum varnar-mekanismans og ef þið eruð heppin gætuð þið einnig lent í klóm tilvistarkreppunnar. Hér gefst einnig færi á að kanna djúpa dali snilldarinnar eða falla í straumharðar ár meðalmennskunnar eða festast í fjötrum fullkomnunaráráttuna

En hér færðu líka tól til að takast á við þessa vætti og víddir. Tól sem munu gagnast þér allt lífið, þótt svo að þú ákveðir einn daginn að óvissuþátturinn sem fylgir því að vera listamaður, eigi ekki við þig og þú snýrð á aðrar brautir. Mér kemur ekki til hugar annað nám, sem er jafn persónulegt og einstaklingmiðað eins og listnám. Listnám krefst ekki bara verkgetu og kunnáttu heldur ert þú ávallt líka að slípa sjálfan þig og spyrja spurninga sem liggja mjög nærri hjartanu.

Þess vegna er listnám svo frábært. Við lærum ekki bara fag, heldur einnig að mæta okkur sjálfum og í raun að vera meira við sjálf, því að þegar við höfum mætt skrímslum egósins og hermenn varna-mekanismans hafa lagt niður vopn sín og eru komin með okkur í lið, þá eru okkur allir vegir færir. Það ætti í raun að vera byrjendanámskeið fyrstu vikuna um varnarmekanisma, því að einmitt vegna þess hvað listnám er persónulegt, þá mæta varnarsveitinar, því það er hættulegt fyrir egó-ið að missa það sem það hefur. En það gerast ótrúlegir töfrar, þegar við leyfum okkur að vera “varnarlaus ”, treystum okkur til að mæta galopin og forvitin, því þannig stækkum við.
Listnám bíður upp á dansnámskeið með egóinu.

Ég man ekki hver það var sem að sagði þetta, en ef listamaðurinn klúðrar einhverju í starfi sínu þá gerist ekkert hættulegra en að egó-ið fær á sig skrámu. Þetta er því algjörlega hættulaust starf, rútubílstjóri má t.d. engu klúðra í sínu starfi.

En þið hafið ekki bara valið ykkur listnám, heldur tónlistarnám. Sama hvaða deild þið völduð ykkur, þá eruð þið að fara að vinna fyrst og fremst með “hlustun”. Við erum sennilega flest hér með þetta skynfæri, hlustunina, sem okkar sterkasta skynfæri. Það er skynfærið sem við notum hvað mest til að komast dýpra og lengra inn í raunveruleikann, því öll viljum við finna fyrir honum og njóta hans. Til þess komum við.

Við höfum líklega öll átt augnablik þar sem við hlustum á tónlist og heimurinn stækkar einhvern veginn, tilfinningar þenjast út, eitthvað bærist innra með okkur. Mörg ykkar hafið líklega fundið eitthvað enn stærra við að spila eða semja tónlist. Hlustun, sem við tengjum hvað mest við þessa líkamsparta hér, eyrun, á sér í raun stað með öllum líkamanum og orkuhjúpnum sem umlykur okkur. Við hlustum með nærveru okkar, með því að vera á staðnum.

Það að kunna að hlusta, tel ég vera einn sá allra stærsti og mikilvægasti hæfileiki sem hægt er að tileinka sér, sama hvað þú tekur þér fyrir hendur. Góð Hlustun mun einnig gera þig að betri vin, betri maka, foreldri og manneskju. Læknar sem kunna að hlusta eru betri læknar, og einnig rithöfundar eða ljóðskáld, því að ljóðskáldið hlustar eftir ljóðinu, hlustar á skáldagyðjunar og hlustar á lífið fyrir innblæstri.
Hlustun þýðir ekki bara góð heyrn, hún er flóknara fyrirbæri sem við gerum með allri persónu okkar og hún er nátengd samkennd eða “empathy”. Hlustun er mikilvægasti hluti samtals og hún myndar tengingu.
Við hlustum á innsæið og æðri mátt, við hlustum eftir listaverkinu sem vill fæðast í höndum okkar.

Það er í gegnum djúpa hlustun, sem við getum heyrt betur í undirmeðvitundinni. Við heyrum í gegnum lög af röddum sem þjóna okkur ekki, ýmist rífa okkur niður eða þenja út. Það er djúp hlustun sem kennir okkur að heyra munin á sannleika og innantómum orðum.
Hlustun er alltaf opin, hún er víðátta, hún dæmir ekki, hún sér og býr til möguleika.
Ég trúi að það sé leiðin að vera meira við sjálf.

Listnám krefst þess að þú vinnir í sambandi þínu við sjálfan þig og við þurfum á nákvæmlega þér að halda.
Líka klassísku hljóðfæraleikararnir sem eru að spila Bach í milljónasta skipti, það spilar það engin eins og þú og það er samband þitt við Bach sem gerir flutninginn sterkan. Við þurfum á þér að halda, þér í þinum fegursta blóma,, ekki að reyna að vera aðeins meira eins og einhver annar.

Að lokum, til að hafa þetta alveg skýrt:

1. Leggið niður varnir, opnið upp á gátt, taktu þig í sátt áður en þú tekur fyrsta skrefið.
2. Lærðu að dansa tangó við egó-ið - það er ekki að fara neitt, en þú getur átt gott samband við það.
3. Æfðu hlustun, djúp-hlustun, alla daga. Sestu á bekk, lokaðu augunum og hlustaðu. Í stað þess að skoða símann næst þegar þú stendur í röð, hlustaðu.
Þegar þú átt næst í samræðum eða rökræðum, hugsaðu “hvernig get ég hlustað betur?” og hvernig hefur það áhrif á samskiptin.
4. Mundu, endapunkturinn er ekki að verða eitthvað meira og stærra heldur að gefa okkar sanna sjálfi kost á að blómstra. Leiðinn er ekki upp á topp, heldur inn á við.

5. Að lokum, þar sem ég tala svona mikið um naflaskoðun listnámsins, þá finnst mér ég verða að bæta einu við;
Afhverju skiptir þetta máli?

Þegar ég útskrifaðist úr listaháskólanum þá skrifaði ég lokaritgerðina list undir alræðisstjórn. Allir einræðisherrar sögunnar, vissu það að til að breyta samfélagi og hafa fullkomna stjórn, þarftu að stjórna list, því að það er listin sem kemst dýpst inn í sál mannsins.

Sem Íslendingi, þá fannst mér nefnilega svo ótrúlegt að ljóðskáld eða tónskálds skildi vera tekið til fanga eða jafnvel af lífi fyrir að semja ljóð eða tónverk sem að þótti ekki passa við stefnu stjórnvalda. Ég varð heilluð af þessum mætti listarinnar, að móta mannssálin. Að list geti vakið óhug meðal einræðisherra.

Ég sé það eins og ljós sem skín innra með okkur. Það er vitund okkar og frelsi. Og ef það slokknar á þessu ljósi þá erum við auðstjórnanleg. List getur glætt þetta ljós innra með okkur, getur minnt okkur á að við getum tendrað ljósið í hvort öðru.

Pétur Jónasson deildarforseti tónlistardeildar LHÍ er hér með áhugaverða grein um þróun tónlistarnáms á háskólastigi á Í...
19/05/2026

Pétur Jónasson deildarforseti tónlistardeildar LHÍ er hér með áhugaverða grein um þróun tónlistarnáms á háskólastigi á Íslandi, nýjar námsleiðir og mikilvægi framsækinnar hugsunar í menntun tónlistarfólks framtíðarinnar.

Það eru spennandi tímar framundan í Tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Undanfarin misseri hefur staðið yfir endurskipulagning á bakkalárnámi deildarinnar. Ljóst var orðið að breytinga var þörf ef námið ætti að þróast til framtíðar í takt við þarfir nemenda og þá þr...

Það verður nóg um að vera í tónlistardeild LHÍ í kvöld, hefjum leika kl. 17:00 á brautartónleikum fiðlu og kammer í Skri...
11/05/2026

Það verður nóg um að vera í tónlistardeild LHÍ í kvöld, hefjum leika kl. 17:00 á brautartónleikum fiðlu og kammer í Skriðu Stakkahlíð, þá kl. 19:00 taka við brautartónleikar flautu og píanós í Dynjanda, sal Tónlistardeildar í Skipholti og á sama tíma (19:00) fer fram TNT Showcase í Tónastöðinni 50 (hinum megin við götuna).

Að sjálfsögðu er frítt á alla viðburðina og öll hjartanlega velkomin.

Tónlistardeild er afar stolt af útskriftarnemendum sínum sem hafa sýnt mikla fagmennsku í lokaverkefnum sínum.
05/05/2026

Tónlistardeild er afar stolt af útskriftarnemendum sínum sem hafa sýnt mikla fagmennsku í lokaverkefnum sínum.

Fjölbreytt útskriftarhátíð hefur staðið yfir hjá Tónlistardeild LHÍ undanfarnar vikur, þar sem nemendur hafa komið fram í öflugri dagskrá sem undirstrikar fjölbreytni og metnað deildarinnar. Tónlistardeild er afar stolt af útskriftarnemendum sínum sem hafa sýnt sterka listræna ...

Fjórði útskriftartónleikadagurinn að baki og þvílík veisla af fjölbreyttum tónleikum!Útskriftarnemendur í nýmiðlatónsmíð...
29/04/2026

Fjórði útskriftartónleikadagurinn að baki og þvílík veisla af fjölbreyttum tónleikum!
Útskriftarnemendur í nýmiðlatónsmíðum stigu á svið með glæsibrag og sýndu ótrúlegan sköpunarkraft og hæfileika. Framtíð tónlistar er sannarlega björt!

Þriðji tónleikadagurinn á baki í útskriftarröð LHÍ í Salurinn Tónlistarhús. Finnskir og færeyskir útskriftarnemar settu ...
28/04/2026

Þriðji tónleikadagurinn á baki í útskriftarröð LHÍ í Salurinn Tónlistarhús. Finnskir og færeyskir útskriftarnemar settu fallegan norrænan svip á daginn. Anna-Maria heillaði með einstökum flautuhljómi og Katrina og Ari í geggjaðri rytmískri sveiflu!

Annar viðburðaríkur tónleikadagur í Salurinn Tónlistarhús að baki. Fjölbreyttur hljóðheimur hljóðfærasmíðanemenda í blan...
27/04/2026

Annar viðburðaríkur tónleikadagur í Salurinn Tónlistarhús að baki. Fjölbreyttur hljóðheimur hljóðfærasmíðanemenda í bland við rytmíska kvöldtóna. Ótrúlega öflugt tónlistarfólk sem við erum stolt af!

Viðburðarríkur útskriftartónleikadagur að baki. Þrjár glæsilegar söngkonur, barnakór, karlakór, samsöngur með foreldrum ...
26/04/2026

Viðburðarríkur útskriftartónleikadagur að baki. Þrjár glæsilegar söngkonur, barnakór, karlakór, samsöngur með foreldrum og að lokum píanóleikari með glæsilegan Tsjaíkovskíj Píanókonsert nr. 1 í b-moll!
Útskriftarhátíðin er heldur betur farin af stað og heilmikil veisla framundan í Salurinn Tónlistarhús!

Address

Skipholti 31
Reykjavík
105

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tónlistardeild Listaháskóla Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share