08/04/2016
Velkomin á glænýju síðuna okkar. Nýja NAFNIÐ okkar er PRAKTA! Við hétum áður Praktísk söng, lagasmíða og píanókennsla en ákváðum að einfalt væri einfaldlega betra :)
Námskeiðin eru þau sömu en við höfum bætt við okkur raftónlistarnámskeiði og sumarnámskeiðum sem við munum auglýsa fljótlega. Við látum námskeiðs upplýsingar og verðskrá fylgja með hér fyrir neðan.
Prakta - praktískt tónlistarnám er klæðskerasniðið að hverjum nemanda eftir áhuga & getu. Hægt að nota FRÍSTUNDASTYRK á öll 10 vikna námskeið. Takmörkuð pláss í boði. Skráning fer fram á [email protected].
VERÐSKRÁ Á HAUSTÖNN 2015:
10 einkatímar í söng,lagasmíðum & píanóleik/söng & lagasmíðum/söng & píanóleik: 62.900 (55 mín.)
10 einkatímar í söng (55 mín): 57.900
10 hóptímar í söng (55 mín) 16 ára og eldri (2-4 í hóp): 42.900
10 hóptímar í söng & lagasmíðum (55 mín.) (2 í hóp): 47.900
Unglinganámskeið í söng 13 - 16 ára (3-4 í hóp) 10 tímar (50 mín.): 37.900
Krakkanámskeið í söng 6-8 ára og 9-12 ára (3-4 í hóp)10 tímar (50 mín): 37.900
Athugið: hópnámskeiðin eru aðeins í boði ef næg þáttaka næst.
NÁMSKEIÐS-LÝSINGAR:
10 vikna KRAKKA- eða UNGLINGANÁMSKEIÐ Í SÖNG sem endar á söngupptöku á einu lagi í hágæða hljóðnema. Helstu atriði sem farið verður í eru raddbeiting, öndun, stuðningur, upphitunartækni, túlkun og hljóðnematækni. Nemendur velja lag fyrir hvern tíma sem þeir æfa heima og farið verður í. Fyrir lengra komna verður einnig æft hvernig hægt er að syngja í röddum og nemendur fá að spreyta sig á að syngja laglínu og rödd. Hver tími er 50 mínútur og skiptist jafnt á milli nemenda. Söngupptakan fer fram "live" í síðustu kennslustundinni. Tónleikar verða í lok námskeiðs fyrir þá sem þess óska.
Verð: 37.900 (hóptímar)
10 VIKNA SÖNG-NÁMSKEIÐ sem endar á söngupptöku í hágæða hljóðnema. Söngnámið er einstaklingsmiðað en helstu atriði sem farið verður í eru raddbeiting, öndun, stuðningur, upphitunartækni, túlkun og hljóðnematækni. Í boði eru einkatímar og hóptímar þar sem tveir eru saman og báðir einstaklingar fá að njóta sín. Hver tími er 55 mínútur, hóptíminn skiptist jafnt til helminga. Söngupptakan fer fram "live" í síðustu kennslustundinni. Tónleikar verða í lok námskeiðs fyrir þá sem þess óska. Athugið að hóptímar fyrir eldri en 16 ára eru einungis í boði fyrir tvo til fjóra aðila saman ef næg þáttaka næst og unglinga og krakka einungis fyrir þrjá til fjóra. Sjá verðskrá fyrir unglinga- og krakkahópnámskeið.
Verð - Einkatímar: 57.900
Verð - Hóptímar: 42.900 (16 ára og eldri)
Verð - Hóptímar Krakka/Unglinganámskeið: 37.900
10 VIKNA SÖNG & LAGASMÍÐA-NÁMSKEIÐ er einnig einstaklingsmiðað. Helstu atriði sem farið verður í eru raddbeiting, öndun, stuðningur, túlkun, hljóðnematækni, lagasmíðar, form og uppbygging. Stefnt verður að því að nemandi semji lag en útkoman fer eftir iðjusemi nemanda þ.e.a.s. hvort hægt verði að taka upp fullklárað lag í lok námskeiðs. Ef ekki, er hægt að velja annað lag til upptöku í staðinn. Hver tími er 55 mínútur, hóptíminn skiptist jafnt til helminga. Söngupptakan fer fram "live" í síðustu kennslustundinni með píanóundirleik. Tónleikar verða í lok námskeiðs fyrir þá sem þess óska. Athugið að hóptímar eru einungis í boði fyrir tvo saman ef næg þáttaka næst.
Verð - Einkatímar: 62.900
Verð - Hóptímar: 47.900
10 VIKNA SÖNG & PÍANÓ-NÁMSKEIÐ. Helstu atriði sem farið verður í eru raddbeiting, öndun, stuðningur, upphitunartækni, túlkun, hljóðnematækni, píanóleikur eftir hljómum, hljómar kenndir í sinni einföldustu mynd upp í flóknari hljóma, grunnur lagður að því að spila eftir eyra þar sem þekkt dægurlag að eigin vali er notað til að hlusta eftir laglínu, takti, bassalínu ofl. Nýtist öllum sem vilja geta spilað undir eigin söng eða annarra, æft kórnótur (nótnalestur) svo eitthvað sé nefnt. Upptaka fer fram "live" í síðustu kennslustundinni. Ef næg þáttaka næst verða tónleikar í lok námskeiðs fyrir þá sem þess óska. Hver tími er 55 mínútur. Aðeins einkatímar í boði.
Verð - Einkatímar: 62.900 (12 ára og eldri)
(Ath! Hægt er að óska eftir undanþágu fyrir yngri börn og metið verður hvort það þetta námskeið henti barninu.)
Staðfestingargjald 20.000 kr er greitt við innritun til að tryggja pláss og er óendurkræft. Kennt er í Uppsölum 3, 201 Kóp (aðstaða í Lindakirkju), Hátúni 2, kjallara (aðstaða í Fíladelfíu) og í efra Breiðholti. Þessi námskeið tengjast ekki kirkjustarfsemi og eru sjálfstætt starfandi. Nánari upplýsingar: [email protected] eða 771-6259. Kennarar eru Þóra Gísladóttir og Björn Sigurðsson.