13/05/2026
X- Árskóli
Frambjóðendur til sveitarstjórnar, frá öllum listum, heimsóttu Árskóla í vikunni, spjölluðu við starfsfólk og kynntu sér málefni skólans.
Við þökkum kærlega fyrir heimsóknirnar og samtalið. Við óskum þeim góðs gengis í kosningunum og á komandi kjörtímabili.
Mikilvægasta verkefni sveitarfélags er að byggja upp gott samfélag fyrir börn og fjölskyldur. Þar skipta skólar, velferð og tækifæri til þátttöku gríðarlegu máli.
Árskóli er einn stærsti vinnustaður Skagafjarðar með hátt í 500 nemendur og starfsmenn sem eru í skólanum á hverjum skóladegi. Skólinn gegnir lykilhlutverki í samfélaginu með því að skapa börnum öruggt, metnaðarfullt og fjölbreytt námsumhverfi sem hefur bein áhrif á framtíð sveitarfélagsins.
Í skólanum er lögð rík áhersla á vellíðan nemenda, öfluga stoðþjónustu, fjölbreytt nám og gott samstarf heimila og skóla.
Árskóli er mikilvægur þáttur í því að gera Skagafjörð að eftirsóknarverðum stað til búsetu fyrir fjölskyldur.
Til að mæta kröfum nútíma skólastarfs er brýn þörf á bættri aðstöðu fyrir sérgreinar, s.s. náttúrufræði, textílmennt og tónmennt. Slík uppbygging er fjárfesting í framtíð barna, starfsfólks og samfélagsins alls.
Áfram Árskóli, áfram Skagafjörður!