Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er áfangaskóli sem býður upp á fjölbreytt bóklegt og verklegt nám.

Í dag fögnuðum við útskrift nemenda sem nú halda áfram út í lífið með reynslu, þekkingu og minningar úr Framhaldsskólanu...
29/05/2026

Í dag fögnuðum við útskrift nemenda sem nú halda áfram út í lífið með reynslu, þekkingu og minningar úr Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Alls voru útskrifaðir 45 nemendur frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum við skólalok vorannar 2026. Brautarlok voru fleiri en fjöldi einstaklinga, þar sem nokkrir nemendur luku námi af fleiri en einni braut. Flest brautarlok voru í iðnmeistaranámi, 14, og á húsasmiðabraut, 12. Þá luku 17 nemendur námi af stúdentsbrautum, 2 af sjúkraliðabraut, 2 viðbótarnámi til stúdentsprófs og 1 af starfsbraut.

Við erum stolt af ykkur og óskum ykkur alls hins besta á næstu skrefum.
Innilega til hamingju.

Gakktu menntaveginn með okkur í FÍV
22/05/2026

Gakktu menntaveginn með okkur í FÍV

Ekki missa af þessu !
07/05/2026

Ekki missa af þessu !

Frábær hópur fyrirtækjaeigenda úr Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum komst í úrslit í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla ...
28/04/2026

Frábær hópur fyrirtækjaeigenda úr Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum komst í úrslit í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla – JA Iceland 2026.

Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá þennan árangur í ljósi þess að nýsköpunaráfangi er einn af skylduáföngum til stúdentsprófs við FÍV. Í áfanganum stofna nemendur fyrirtæki, þróa hugmyndir, vinna saman, kynna lausnir og prófa sig áfram í raunverulegum verkefnum. Svona árangur sýnir hversu mikilvægt er að gefa ungu fólki rými til að skapa, framkvæma og trúa á eigin hugmyndir.

Eitt fyrirtækjanna, Eyjakonfekt, náði þeim glæsilega árangri að lenda í 3. sæti og hlaut að launum ferðalag til Tromsø á Arctic Youth Championship, auk fallegs verðlaunagrips.

Við erum ótrúlega stolt af þessum unga frumkvöðlakrafti úr Eyjum. Þetta er metnaður, sköpunargleði og hugrekki í verki.

Innilega til hamingju öll!

Í dag fengum við frábæra heimsókn frá 9. og 10. bekk grunnskólans á opið hús í FÍV. Það var einstaklega ánægjulegt að sj...
27/04/2026

Í dag fengum við frábæra heimsókn frá 9. og 10. bekk grunnskólans á opið hús í FÍV. Það var einstaklega ánægjulegt að sjá húsið fyllast af áhugasömum nemendum, foreldrum og starfsfólki.

Gestir kynntu sér námið, hittu kennara og nemendur, skoðuðu verkefni, námsefni og aðstöðu — og fengu vonandi góða tilfinningu fyrir því fjölbreytta og öfluga skólastarfi sem fer fram í FÍV.

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og hlökkum til að taka á móti nýjum nemendum í haust.

Tvö fyrirtæki frá Eyjum eru í úrslitum. Til hamingju, vel gert.
26/04/2026

Tvö fyrirtæki frá Eyjum eru í úrslitum. Til hamingju, vel gert.

Eftirtalin fyrirtæki eru komin í úrslit í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla - JA Iceland 2026. Til hamingju!
Næst á dagskrá eru viðtöl við dómara í Arion banka mánudaginn 27. apríl frá kl. 9.00-12.30 (sjá tímatöflu sem var send á nemendur og kennara) og svo verður Uppskeruhátíðin í Arion banka þriðjudaginn 28. apríl frá kl. 13.00 - 16.30/17.00 :-)
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mun veita verðlaun í eftirfarandi flokkum:
1. Aðalverðlaun: Fyrirtæki ársins, keppir fyrir Íslands hönd í stærstu nýsköpunarkeppni í Evrópu GEN_E 2026 7. – 10. júlí.
2. Fyrirtæki ársins 2. Sæti, fær ferð á Arctic Youth Championship í TromsØ 18. - 21. maí (samstarfsverkefni með JA Norway, JA Finland og JA Sweden, en 30 þátttakendur fara héðan)
3. Fyrirtæki ársins 3. Sæti, fær ferð á Arctic Youth Championship í TromsØ 18.- 21. maí
4. Frumlegasti sölubásinn
5. Öflugasta sölustarfið
6. Áhugaverðasta nýsköpunin
7. Samfélagsleg nýsköpun
8. Áhugaverðasta fjármálalausnin
9. Besti sjó-bissnessinn
10. Matvælafyrirtæki ársins
11. Besta hönnunin
12. Áhugaverðasta tækninýjungin
13. Umhverfisvænasta lausnin

Verðlaunahafar fá viðurkenningaskjöl og fallegt glerlistaverk sem er smíðað af Jónasi Braga glerlistamann

Erum svo stolt af okkar nemendum sem tóku þátt í vörumessu ungra frumkvöðla í Smáralind um helgina. Þau stóðu sig afar v...
19/04/2026

Erum svo stolt af okkar nemendum sem tóku þátt í vörumessu ungra frumkvöðla í Smáralind um helgina. Þau stóðu sig afar vel og sýndu bæði frumkvæði, hugmyndaauðgi og metnað.

Á föstudag og laugardag fór fram svokölluð vörumessa ungra frumkvöðla í Smáralind. Þar kynntu og seldu nemendur úr framhaldsskólum víðs vegar af landinu hugmyndir sínar og verkefni. En alls tóku um 620 nemendur frá 18 framhaldsskólum þátt í messunni. Framhaldsskólinn í Vestma...

Árshátíð nemendafélags FÍV heppnaðist frábærlega! Stemning, glæsileiki og gleði – nemendur áttu kvöldið.
27/03/2026

Árshátíð nemendafélags FÍV heppnaðist frábærlega!
Stemning, glæsileiki og gleði – nemendur áttu kvöldið.

Árshátíð Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum fór fram í Höllinni í gær og hún vel sótt. Þema kvöldsins var „Midnight Summer“ og lögðu nemendur mikið upp úr útliti og mættu í litríkum fatnaði sem setti skemmtilegan svip á stemninguna. Salurinn var einnig skreyttur í anda ....

26/03/2026

Veðrið er ekkert að lagast hérna fyrir utan og því fellur niður kennsla það sem eftir er dags.
Ætluðum hvort sem er alltaf hafa stuttan kennsludag í dag útaf árshátíðinni í kvöld sem verður eins og áætlað var.

Kennararnir verða í sambandi við ykkur í gegnum Innu og fylgist þið með hvað þið eigið að gera í staðinn fyrir að mæta í tíma.

Minni á vikuáætlun í Innu

26/03/2026

Aðvörun
Veðrið er mjög slæmt og einhverjir hafa þurft aðstoð við að komast inn af bílastæði skólans. Allt hefur samt farið vel. Veðrið er að versna og í ljósi þess ætlum við að fella niður næsta tíma og taka stöðuna klukkan 10:00. Mælum gegn því að koma upp í skóla fyrr en veðrið hefur gengið niður og búið að taka ákvörðun um framhaldið. Það fer vel um okkur sem erum mætt og við erum ekki að fara neitt fyrr en veðrið gengur niður.

Address

Dalavegur 2
Vestmannaeyjar
900

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:00
Tuesday 08:00 - 15:00
Wednesday 08:00 - 15:00
Thursday 08:00 - 15:00
Friday 08:00 - 15:00

Telephone

+3544881070

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The University

Send a message to Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum:

Shortcuts

Share