The Icelandic Pavilion

The Icelandic Pavilion Informazioni di contatto, mappa e indicazioni stradali, modulo di contatto, orari di apertura, servizi, valutazioni, foto, video e annunci di The Icelandic Pavilion, S. Pietro di Castello, Venice.

Árið 1997 fór fyrsta konan fyrir Íslands hönd á Feneyjatvíæringinn og það var engin önnur en Steina (f. 1940). Ekki nóg ...
12/05/2026

Árið 1997 fór fyrsta konan fyrir Íslands hönd á Feneyjatvíæringinn og það var engin önnur en Steina (f. 1940). Ekki nóg með að vera fyrsta konan, heldur var hún einnig fyrsti vídeólistamaðurinn sem fór fyrir okkar hönd á þessa stærstu myndlistarsýningu í heimi. Steina málaði veggi Alvar Aalto skálans svarta, setti upp stóra spegla og varpaði verkinu „Orku” á speglana með þremur myndvörpum. Verkið var nýlega sýnt á yfirlitssýningu um Steinu í Listasafni Reykjavíkur.

Árið 1999 fór Sigurður Árni Sigurðsson (f. 1963) utan með fjögur málverk og áltré og hét sýningin „Paradise Reclaimed”. Hann var valinn með mjög stuttum fyrirvara en sýndi engu að síður ný málverk af manngerðri náttúru þar sem tré í lystigarði sáust ofan frá. Skúlptúrarnir voru þrír, tvö áltré inni í skálanum og eitt fyrir utan.

2001 var það Finnbogi Pétursson (f. 1959) sem fór til Feneyja með hljóðverkið „Diabolus”. Finnbogi var einmitt valinn myndlistarmaður ársins á Íslensku myndlistarverðlaununum fyrr á árinu. Finnbogi fékk meiri tíma en Sigurður og fékk hugmyndina að verkinu þegar hann fór í undirbúningsferð til Feneyja og skoðaði skálann. Verkið var s*xtán metra löng göng sem stóðu út úr skálanum og mjókkuðu inn á við og innst voru orgelpípa og hátalari sem gáfu frá sér hljóð.

Næst var það ein fremsta listakona þjóðarinnar, Rúrí (f. 1951) sem einmitt var útnefnd heiðurslistamaður ársins fyrr á þessu ári, sem sýndi árið 2003 verkið „Archive – endangered waters” í sýningarstjórn Laufeyjar Helgadóttur. Verkið samanstendur af 52 ljósmyndum og hljóði af fallvötnum á hálendi Íslands sem hafa horfið eða eru í hættu vegna virkjunarframkvæmda. Við opnun sýningarinnar voru í fyrsta skipti viðstaddir opinberir embættismenn á vegum íslenska ríkisins, þar á meðal Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra.

Myndir:
Steina, Orka, (1997), Listasafn Reykjavíkur.
Sigurður Árni Sigurðsson, Á flot, (1999), Listasafn Íslands.
Finnbogi Pétursson, Diabolus, (2001), mynd Daníel Magnússon.
Rúrí, Archive – Endangered Waters, (2003), birt með leyfi listamannsins.

Þrjú ár liðu og Feneyjatvíæringurinn í myndlist var haldinn árið 1993, svo sá næsti hitti á 100 ára afmæli bíennalsins. ...
26/04/2026

Þrjú ár liðu og Feneyjatvíæringurinn í myndlist var haldinn árið 1993, svo sá næsti hitti á 100 ára afmæli bíennalsins. Fyrir Íslands hönd sýndu listamennirnir Hreinn Friðfinnsson (1943-2024) og Jóhann Eyfells (1923-2019). Valið var komið í hendur Listasafns Íslands og Menntamálaráðuneytisins, og Bera Nordal safnstjóri var í forsvari fyrir valnefndina. Hreinn og Jóhann höfðu báðir nýlega haldið yfirlitssýningar og áttu merkilegan feril að baki. Jóhann sýndi þrjá grófgerða skúlptúra fyrir utan skálann, Hreinn sýndi s*x verk unnin í fjölbreytta miðla sem höfðu yfir sér ljóðrænt og fágað yfirbragð.

Árið 1995 var haldið upp á aldarafmæli tvíæringins, og franskur listfræðingur að nafni Jean Clair var ráðinn til að sjá um sýninguna. Valnefnd Listasafns Íslands og Menntamálaráðuneytisins valdi Birgi Andrésson (1955-2007) til ferðarinnar, og hann sýndi tólf handprjónaða lopafána í sauðalitunum. Laufey Helgadóttir segir í sýningarskrá Sýningar sýninganna að það hafi þurft áræði til að flytja lopa til Feneyja, þjóðartákn sem gæti hafa talist hallærislegt árið 1995. Birgir stillti upp fínlegum blýantsteikningum af uppgreftri gamalla bæjarrústa við hlið fánanna.

Myndir:
Hreinn Friðfinnsson í Feneyjum við verkið Höll frá 1990. Myndin er úr bókinni Hreinn Friðfinnsson Works 1964-2019, útg. Koening Books, London.
Jóhann Eyfells, Circular Linguisticity V, 1992, af vef Listasafns Reykjavíkur.
Birgir Andrésson, Nálægð (Tákn – Handiðn – Fánar), 1994-95, Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur.

Í nýjasta tölublaði Myndlist á Íslandi tekur Helena Solveigar Aðalsteinsbur viðtal við Ástu Fanneyju Sigurðardóttur sem ...
24/04/2026

Í nýjasta tölublaði Myndlist á Íslandi tekur Helena Solveigar Aðalsteinsbur viðtal við Ástu Fanneyju Sigurðardóttur sem tekur þátt í Feneyjatvíæringnum fyrir Íslands hönd sem verður haldinn í 61. sinn í byrjun maí. Viðtalið fjallar um ferðalag Ástu Fanneyjar um tilviljanir, drauma og leyndardóma í Feneyjum.

--------

In the latest issue of Art In Iceland magazine, Helena Solveigar Aðalsteinsbur interviews Ásta Fanney Sigurðardóttir, Iceland's representative at the 61st International Art Exhibition – La Biennale di Venezia, which opens in May. The interview traces the artist's journey through Chance, Dreams and Hidden Currents in Venice.

Myndlistarmiðstöð - Töfrar undir hverjum steini

Feneyjatvíæringurinn er stærsta alþjóðlega myndlistarsýning heims. Tvíæringur fór fyrst fram árið 1895 og hefur síðan þá...
24/04/2026

Feneyjatvíæringurinn er stærsta alþjóðlega myndlistarsýning heims. Tvíæringur fór fyrst fram árið 1895 og hefur síðan þá farið fram á tveggja ára fresti, að undanskildum hléum vegna heimstyrjalda. Ísland tók fyrst þátt árið 1960 og svo aftur árið 1972. Árið 1976 tekur svo listamaðurinn Sigurður Guðmundsson (f. 1942), þátt í hliðarviðburði, alþjóðlegu sýningunni „72-26” sem Olle Granath (f. 1940) sýningarstýrði.

Í kjölfarið bauð norræna sýningarnefndin Sigurði að sýna Norræna skálanum árið 1978, með fulltrúum Svíþjóðar og Finnlands í sýningarstjórn Björn Springfeldt (f. 1941). Í bæði skiptin sýndi Sigurður hluta úr ljósmyndaröðinni „Situations”. Norræna sýningarnefndin bauð Magnúsi Pálssyni (f. 1929) að sýna í Norræna skálanum árið 1980, með tveimur fulltrúum Danmerkur. Magnús sýndi þrívíð rýmisverk úr gifsi og epoxy og gaf út bókverkið „Bók um bók og fleira”, sem er afrakstur samtals Magnúsar og nemenda hans í nýlistardeild í Mynd- og Handíðarskólanum.

Það féll í hendur Magnúsar að velja næstu fulltrúa Íslands á Feneyjartvíæringum árið 1982 og fyrir valinu urðu Jón Gunnar Árnason (1931-1989) og Kristján Guðmundsson (1941-2025). Sýning Jóns og Kristjáns var sett upp í bráðabirgðaskála á vegum tvíæringsins, ásamt öðrum sýningum, og Magnús sá um sýningarstjórnun með aðstoð listamannsins Rúríar (f. 1951). Jón Gunnar sýndi spegilverkið „Cosmos” og veggverkið „Gravity” og Kristján sýndi m.a. myndaraðirnar „Lengsta nótt í Feneyjum” og „Lengsta nótt á Íslandi”. Á þeim tvíæringi sýndi einnig Íslandsvinurinn Dieter Roth (1930-1998) sem fulltrúi Sviss.

Myndir:
Sigurður Guðmundsson, Study for Bow (1977). Með leyfi listamannsins og i8 Gallerí, Reykjavík.
Magnús Pálsson, Hvískur (það sem Nefretíti hvíslaði að Alexander mikla) (2016), Safnasafnið.
Kristján Guðmundsson Lengsta nótt á Íslandi (1982), Listasafn Reykjavíkur.
Jón Gunnar Árnason, Cosmos (1982). Listasafn Íslands.

Feneyjatvíæringurinn í myndlist, stærsta alþjóðlega myndlistarsýning heims, var stofnuð af borgarstjórn Feneyja árið 189...
24/04/2026

Feneyjatvíæringurinn í myndlist, stærsta alþjóðlega myndlistarsýning heims, var stofnuð af borgarstjórn Feneyja árið 1895. „Tvíæringur” merkir að listsýningin er sett upp á tveggja ára fresti. Þetta er elsta listasýning sinnar tegundar og meðal virtustu viðburða í samtímalist í heiminum—jafnvel kölluð Ólympíuleikarnir í myndlist.

Fyrstu listamennirnir til þess að fara til Feneyja fyrir Íslands hönd voru kanónurnar Jóhannes Sveinsson Kjarval (1885-1972) og Ásmundur Sveinsson (1893-1982). Þetta var árið 1960. Kjarval sýndi tíu málverk og Ásmundur þrjá járnskúlptúra.

Svo liðu nokkur ár þar til Íslendingar tóku þátt næst, en það var árið 1972 þegar tveir brautryðjendur abstraktlistarinnar, Svavar Guðnason (1909-1988) og Þorvaldur Skúlason (1906-1984) fóru utan með sjö málverk hvor.

Myndir:
La scultura alla Biennale di Venezia 1895-1914, Zel Edizioni
Jóhannes S. Kjarval, Krýsuvík, 1954, Listasafn Íslands
Ásmundur Sveinsson, Samhljómur hnattanna, 1959, Listasafn Reykjavíkur
Svavar Guðnason, Íslandslag, 1944, Listasafn Íslands
Þorvaldur Skúlason, Bylgjur, 1979, Listasafn Háskóla Íslands

Very Large NumberArchival pigment print oncotton paper and stickerThat’s a Very Large Number — A Commerzbauby Hildigunnu...
07/11/2024

Very Large Number
Archival pigment print on
cotton paper and sticker

That’s a Very Large Number — A Commerzbau
by Hildigunnur Birgisdóttir
Curated by Dan Byers

At the 60th International Art Exhibition –
La Biennale di Venezia 2024

Photo credit: Ugo Carmeni


The article ‘Thresholds at the Venice Biennale’ by Sunna Dagsdóttir is now up on our website!This is the eighth article ...
16/10/2024

The article ‘Thresholds at the Venice Biennale’ by Sunna Dagsdóttir is now up on our website!

This is the eighth article about the Venice Biennale where the main themes and ideas are explored, as well as the national pavilions, the uncertainty of current events and the main exhibition, Foreigners Everywhere which is curated by Adriano Pedrosa. Newly graduated artists from Iceland University of the Arts and art theorists from The University of Iceland, interns situated in Venice, are currently working on articles and reports of key ideas and themes of current exhibitions of La Biennale.

Sunna Dagsdóttir is a curator and art historian from Reykjavík. Over the last year she has used the Erasmus+ funding for internships at Rupert Residency & Alternative Education Program in Vilnius, Lithuania and Kunsthall Trondheim in Norway.

07/10/2024
A glimpse into Hildigunnur’s studio during the making of That’s a Very Large Number - A Commerzbau by Hildigunnur Birgis...
28/09/2024

A glimpse into Hildigunnur’s studio during the making of That’s a Very Large Number - A Commerzbau by Hildigunnur Birgisdóttir.

Curated by Dan Byers
Design by Hrefna Sigurðardóttir

At the 60th International Art Exhibition –
La Biennale di Venezia 2024

On view until 24 November 2024


Recent graduates from Iceland University of the Arts and The University of Iceland, interns situated in Venice, are curr...
26/09/2024

Recent graduates from Iceland University of the Arts and The University of Iceland, interns situated in Venice, are currently working on articles and reports of key ideas and themes of current exhibitions of La Biennale.

Grétar Þór Sigurðsson is a 31 year old journalist from Reykjanesbær. He graduated with a BA- degree in Art History and Theory from the University of Iceland in 2019. He has recently been enrolled in the Art History and Art Theory MA-program at the University of Iceland, with a one- year-long exchange program at Stockholm University. Since 2020 Grétar has worked as a journalist for Kjarninn, Heimildin and RÚV - the Icelandic National Broadcasting Service.

Read the full article now on our website (Link in bio).


Indirizzo

S. Pietro Di Castello
Venice
30100

Notifiche

Lasciando la tua email puoi essere il primo a sapere quando The Icelandic Pavilion pubblica notizie e promozioni. Il tuo indirizzo email non verrà utilizzato per nessun altro scopo e potrai annullare l'iscrizione in qualsiasi momento.

Condividi